Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 30

Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 30
 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR30 Viljum við vændi á Íslandi? Er stór spurning. Reykjavíkursundið er hápunktur undirbúningsins fyrir Ermarsundið í haust og ætlað að vekja athygli á ýmsum skuggahlið- um alþjóðlegrar klámvæðingar, m.a. mansali og annarri kynlífs- verslun með fólk. Sjálft sundið er á mörkum hins mögulega og gífurleg áskorun fyrir reyndan sjósundmann eins og mig. Sundið hef ég þróað síðastliðin ár og hef þegar synt tvo áfanga sunds- ins af þremur. Síðast reyndi ég við Reykjavíkursundið 22. júlí sl. Tókst að klára fyrsta áfanga og hérumbil þriðja, en vegna skipaumferðar og kuldastraums frá Elliðaám varð ég að sleppa síðasta kílómetranum inn í Grafarvog, sló hins vegar per- sónulegt met til Viðeyjar og synti það sund, 4,3 km, á aðeins 2 tímum. Nesáfanginn reyndist mér lang- erfiðastur. Hann lætur ekki mikið yfir sér, en svo lúmskur er hann og kaldur á köflum, að í raun má líkja honum við sjálft Drangeyjarsund, eitt mest krefjandi sjósund á Íslandi, enda er sá áfangi rúmlega 7 km. Næstu helgi, 12.-13. ágúst, mun ég reyna við alla áfanga Reykja- víkursundsins aftur, bara hina leið- ina, þ.e. frá Grafarvogi til Nauthóls- víkur. Um leið og sundið veitir mér bestu hugsanlega reynsluna hér á landi fyrir Ermarsundið nota ég tækifærið og syndi í þágu æðri hugsjónar, nefnilega til varnar sak- leysinu, gegn mansali og hvers lags kynferðislegri misnotkun. Sameinumst öll um að sporna gegn lágkúru kynlífsþrælkunar og hefjum andann á loft í hæðir mann- legrar reisnar. Gefum sálinni séns! Hægt er að leggja hugsjóninni lið með því að heita á mig með tvennum hætti: 1. Annars vegar með því að hringja í 905 20 20 og verða þá 1.500 kr. sjálfkrafa gjaldfærðar af sím- reikningi hringjandans. 2. Hins vegar með því að heita á mig með frjálsum framlögum í síma 562 3500. Dagskrá sundsins er sem hér segir: Fyrsti áfanginn hefst kl. 08.00 í Bryggjuhverfi í Grafarvoginum og lýkur kl. 11.00 við olíutankana á Örfirisey. Næsti byrjar kl. 18.30 við bæki- stöð Lýsis og er áætlað að honum ljúki um kl. 22.30 við Bakkavör. Þriðji og síðasti áfanginn hefst svo næsta dag eða kl. 14.00 við Bakkavör á Seltjarnarnesi og lýkur í Nauthólsvík kl. 17.00 við rampinn hjá Siglunesi. Sjá nánar: www.ermasund.is/ rvksnd.html SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líð- andi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Frétta- blaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Umræður á Alþingi um klám og vændi hafa leitt í ljós greinilegan flokkspólitískan áherslumun, nokk- uð sem fyrirfram hefði mátt ætla að yrði með öðrum hætti. En við að lesa grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í Fréttablaðinu 4. ágúst sl. sést greinilega hvers vegna sjálfstæðismenn líta þessi mál allir sömu augum. Hannes er jú einn af hugmyndasmiðum hægri- manna á Íslandi og sem slíkur ágætur útskýrandi stefnunnar. Hægrimenn hafna sem sé hug- myndum um aðgerðir til að tak- marka útbreiðslu kláms eða vændis vegna hinnar ófrávíkjanlegu grunn- reglu frjálshyggjunnar um frelsi einstaklingsins. Hannes kemst þannig að orði í greininni: „Afleið- ingarnar af því að banna slíka hátt- semi [klám og vændi] eru verri en afleiðingarnar af að leyfa hana, og fullorðið, skynsamt fólk hefur rétt til að gera það, sem það vill, svo framarlega sem það skaðar ekki aðra eða stofnar góðri allsherjar- reglu í voða.“ Svo dregur Hannes upp klisjukennda mynd af stúlkum sem drýgja tekjur sínar með atlot- um fyrir framan myndavélar og gamla manninum sem á engan séns og spyr hver sé fórnarlambið í klisjunni. En hann ítrekar jafn- framt að ganga verði út frá því að framleiðsla klámefnisins og neysla hljóti að einskorðast við fullorðið, upplýst fólk, sem ekki hafi verið beitt neins konar nauðung. Hér fara viðvörunarbjöllurnar af stað og maður spyr: Hvað ef ekki?! Hvað ef þessum skilyrðum er ekki fullnægt? Hvað ef kaupend- urnir eru börn undir 18 ára aldri? Og hvað ef stúlkurnar á myndunum eru ekki að vinna sér inn fyrir háskólagráðu, heldur hafa verið seldar mansali? Hvað þá? Það er enginn miði á stúlkunum, eða stimp- ill, sem segir að þær hafi lent í klón- um á glæpasamtökum og hafi verið lokaðar inni vikum eða mánuðum saman, þeim raðnauðgað og þær svo þvingaðar til að þjóna 25 kyn- sveltum körlum á dag, sumum svo ofbeldisfullum að ekki er hægt að segja frá athöfnunum sem þær voru þvingaðar til að inna af hendi. Það er heldur ekki að finna neinar upp- lýsingar um að þær fái einungis 10- 25% af því sem greitt er fyrir við- vikið í eigin vasa, og ekki heldur hvernig þeim hefur verið hótað að fjölskyldur þeirra í heimalandinu verði myrtar eða svívirtar ef þær reyni að flýja eða gera yfirvöldum viðvart. Þætti Hannesi heppilegt að innleiða merkingar, sem klámiðnað- urinn gæti notað í svipuðum til- gangi og snyrtivöruframleiðendur merkja afurðir sínar að kröfu neyt- enda: „No animal testing?“ Alþjóðleg glæpasamtök hagnast árlega um stjarnfræðilegar upp- hæðir, ýmist með því að selja vopn, eiturlyf eða manneskjur. Talið er að hálf milljón kvenna sé árlega seld til landa Evrópusambandsins þar sem þær eru þvingaðar til að stunda vændi. En það eru engar merking- ar, engir stimplar... Gamli kynferðis- legi munaðarleysinginn hans Hann- esar getur ekki vitað hvort stúlkurnar á myndunum hans eru hamingjusamar hórur eða svívirt stúlkubörn í þrældómi. Hannes viðurkennir raunar sjálfur í grein sinni að erfitt sé að koma auga á fórnarlambið. En þá er eðlilegt að spurt sé hver eigi að njóta vafans? Hannes heldur því fram að af tvennu illu sé betra að leyfa vændi og gera það löglegt, háð leyfum og heilbrigðiseftirliti, en að banna það. Þannig skili skatttekjur þeirra sem stunda vændið sér í ríkissjóð og þeir sem stunda vændið verði þá ekki byrði á samfélaginu. Þetta er sjónarmið sem alltaf er hreyft í þessari umræðu en byggir á ósk- hyggju þeirra sem loka augunum fyrir veruleikanum. Staðreyndin er sú að alls staðar þar sem vændi hefur verið heimilað með þessum rökum hefur „neðanjarðarstarf- semin“ vaxið um allan helming. Það er nefnilega ekki þannig að glæpa- samtökin, sem selja þessi hundruð þúsunda kvenna í kynlífsiðnaðinn, þoli dagsljósið. Og það er ekki þannig að vændiskúnnarnir geri greinarmun á stúlkunni með leyfis- bréfið og vottorðið um að hún sé hvorki eyðnismituð né með klamydíu, og hinni sem hefur ekk- ert slíkt. Svo reynist það líka svo skelfing einfalt fyrir hina ólöglegu starfsemi að dyljast í skjóli litla, sæta, löglega og vel upplýsta hóru- hússins. Það eru meira að segja sömu eigendur í mörgum tilfellum. Í hugum okkar, sem höfum vilj- að setja ábyrgðina á herðar þeirra sem búa til eftirspurnina eftir vændi og klámi, þá er allt tal um frelsi marklaust. Því í heimi kláms, vændis og mansals er það bara annar aðilinn sem hefur í raun frelsi til að velja, þ.e. sá sem á peningana. Valið er hans og valið stendur um að kaupa eða kaupa ekki. Klám = vændi = mansal ... og frelsi til að velja UMRÆÐAN MANSAL KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR ÞINGMAÐUR Viljum við vændi á Íslandi? UMRÆÐAN MANSAL BENEDIKT S. LAFLEUR LISTAMAÐUR OG SJÓSUNDMAÐUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.