Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Erla Tryggvadóttir, dagskrárgerðarkona
í Kastljósi, heldur mikið upp á gamlan
plötuspilara og ferðatösku sem færa
hana aftur til fortíðar.
„Þessi plötuspilari var í eigu langömmu og
-afa. Hann var alltaf í bústað þeirra á Þing-
völlum en þangað fór ég oft í heimsókn. Ég
fékk meira að segja að leika mér með hann
og hlustaði agndofa á sérstaka hljóðið sem
kemur frá honum,“ segir Erla en nú fær
plötuspilarinn góði að standa í íbúð hennar
og þá aðallega upp á punt.
„Hann virkar reyndar ennþá en ég nota
hann voða sjaldan. Í þau skipti sem hann er
notaður þá dettur maður aftur um rúm
fimmtíu ár út af tónlistinni sem maður spil-
ar og hljómnum sem kemur úr honum. Mér
þykir samt vænst um að plötuspilarinn
minnir mig á langömmu og -afa sem voru
svo glæsileg hjón og miklir heimsborgarar,“
segir Erla. „Það er gott að hafa hluti í kring-
um sig sem hafa verið í eigu einhvers sem
manni þykir vænt um. Svo er alltaf gaman
ef þeir búa yfir sögu. Ég á til dæmis gamla
ferðatösku sem ég keypti á markaði í
London. Taskan er merkt konu sem hefur
greinilega ferðast víða því að hún er mikið
notuð og það eru alls kyns límmiðar á henni.
Það er því gaman að ímynda sér söguna
bakvið töskuna og þau ævintýri sem eigand-
inn hefur lent í á ferðalögum sínum.“
Erla sankar þó ekki eingöngu að sér
gömlum hlutum heldur er hún einnig mikið
fyrir alls kyns hönnun. Þessa dagana er hún
að koma sér fyrir í íbúð sem hún hefur
nýlega fest kaup á. „Ég er að vinna í því að
gæða íbúðina lífi og sál. Ég lít á heimilið
sem griðastað þar sem maður á að geta
slakað á og liðið vel. Þá er gott að hafa fal-
lega hluti í kringum sig, hvort sem þeir eru
gamlir eða nýir,“ segir Erla að lokum.
erlabjorg@frettabladid.is
Hlutir með sögu
Erla Tryggvadóttir með gamla plötuspilarann sem gefur frá sér sérstakan en notalegan hljóm. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
10. ágúst, 222. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.02 13.33 22.02
Akureyri 4.34 13.18 21.59
Útsölurnar eru enn ekki alveg
búnar. Til dæmis eru nú í
gangi síðustu dagar stórútsölu
tískuvöruversluninnar Anas í
Hafnarfirði og nú má finna þar
vörur á enn meiri afslætti.
Landsleikur milli Íslendinga
og Spánverja fer fram fram
næstkomandi laugardag á nýjum
Laugardalsvelli. Þangað er tilvalið
að fara til að anda að sér fersku
lofti og þenja raddböndin í níu-
tíu mínútur. Mun heilsusamlegra
en að hanga heima með snakk-
poka fyrir framan sjónvarpið.
Miele þvottavélarnar hafa lengi
verið taldar með þeim bestu í
heimi. Eirvík býður nú upp að
allt að 30% afslátt á nokkrum
tegundum Miele þvottavéla
og þurrkara. Vélarnar eru með
íslensku stjórnborði.
ALLT HITT
[ TÍSKA, HEILSA OG HEIMILI ]
MUNIR ÚR
MARGS KONAR
HRÁEFNI
Handverkssýningin
á Hrafnagili hefst í
dag en þar kennir
ýmissa grasa.
HEIMILI 8
KONUR GEGN KÖRLUM
Verslunin KVK á Laugavegi hefur
upp á margt á bjóða og er
til marks um framsókn
íslenskra hönnuða.
TÍSKA 3