Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 37

Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 37
FIMMTUDAGUR 10. ágúst 2006 7 Það dylst engum hversu mikilvægt er að halda heimilinu hreinu. Regluleg þrif eru ekki bara undirstaða þess að vistaverurnar líti vel út, heldur hefur það beinlínis neikvæð áhrif á heils- una, bæði andlega og líkamlega, að draga þrifin of lengi. Í fyrstu getur verið erfitt að koma þrifum fyrir í daglegt skipulag heim- ilisfólks en með því að nota gátlista verða þau leikur einn. Búnir eru til þrír listar; fyrir dagleg, vikuleg og ársfjórðungsleg þrif. Á hverjum lista eru svo atriði fyrir hvert herbergi íbúðarinnar aðgreind. Á daglega listanum eru atriði eins og búa um rúm, strjúka af eldavélinni og vaskaborðinu inni á baði. Á viku- lega listanum atriði eins og skipta um rúmföt, sópa, ryksuga og skúra, þurrka af, hreinsa spegla og þar frameftir götunum. Á ársfjórðungs- listanum eru skápar þrifnir, glugga- tjöld þvegin, gluggar hreinsaðir og fleira í þeim dúr. Með þessu móti er það ekki lengur undir hælinn lagt hvort eða hvenær hreingerningar fara fram og í beinu framhaldi minnka áhyggjurnar af þrifunum. Þau verða fljótlegri og öll svæði fá þá meðferð sem þau þurfa. Ekkert verður útundan og ekkert er þrifið oftar en þarf. Þegar listarnir eru fyrst teknir í notk- un getur borgað sig að hengja þá til dæmis upp á ísskápinn og merkja við jafnóðum og atriði á þeim eru kláruð, ekki síst fyrir börnin. Ef vel gengur að koma þrifunum upp í vana verða listarnir brátt óþarfir, en gott er að eiga eintak og kíkja á það við og við til upprifjunar. Hreinasta snilld GÁTLISTAR GERA ÞRIFIN AUÐVELD- ARI, MARKVISSARI OG FLJÓTLEGRI. Með gátlistum má breyta þrifum úr handahófskenndu puði í reglubundin smáverkefni. LJÓSMYND NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Verslunin Signature við Kirkjulund 17 í Garðabæ selur húsgögn sem hæfa vel í sumar- bústaðinn. Tágar, bast og brasilískur harðvið- ur einkenna sum þeirra húsgagna sem verslunin Signatura í Garða- bæ selur. Verslunin hefur verið við lýði í tvö ár og þar er mikið úrval af munum til að prýða heim- ili og einnig veröndina, sumarhús- ið og garðinn. Meðal þess sem þar fæst eru garðhúsgögn úr plast- basti sem þola vel regn. Ekta tága- húsgögn eru líka til í versluninni og henta vel í sólskálann eða sum- arhúsið. Einnig fást þar fágaðri húsgögn sem hæfa hvaða heimili sem er. Hægt er að skoða úrvalið á síðunni www.signature.is. „Sumt eigum við á lager og annað sér- pöntum við,“ sagði Böðvar Frið- riksson verslunareigandi. -gg Brasilískur viður, tágar og bast Tágahúsgögnin bera með sér framandi blæ. Skenkur úr brasilískri furu og basti. Í honum eru bæði skúffur og skápar með hillum. Góð aðferð til þess að ná erfiðum blettum úr dökkum viðarhúsgögnum er að nudda þá með með majonesi í tusku og láta það liggja á blettinum í nokkrar mínútur. Að því er segir á vefsíðum á netinu, þar sem fólk skiptist á húsráðum sem þessum er majones sérstaklega gott gegn vatns- blettum sem myndast hafa í dökkum viði. Eftir að majonesið hefur verið þurrkað af á bletturinn að dofna verulega. Samkvæmt vefsíðunum virðast fjölmargir hafa reynt þetta frumlega húsráð og verið ánægðir með árangurinn. Majones á blettina

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.