Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 10. ágúst 2006 9
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Stundum langar mann að breyta til á
heimilinu án þess að ráðast í miklar
framkvæmdir. Með réttu hlutunum má
til dæmis lífga heilmikið upp á eldhúsið
og skapa alveg nýtt andrúmsloft.
Ómissandi í
eldhúsið
ÞAÐ ER EKKI FLÓKIÐ AÐ SKAPA NOTA-
LEGA STEMNINGU Í ELDHÚSINU
Brauðkassi sem er í senn gamaldags og
framúrstefnulegur. Eldhúsið fær á sig léttan
blæ.
Litlu hlutirnir skipta mestu máli. Glasamott-
urnar hennar Tinnu Gunnarsdóttur standa
alltaf fyrir sínu.
Vefurinn uppbod.is er nýr vefur
sem sérhæfir sig í uppboðum á
antíkmunum, svo sem húsgögnum
og málverkum.
Kaupendur geta skoðað myndir og fengið
nákvæmar lýsingar af sölumunum á vef-
síðunni, en einnig geta þeir skoðað mun-
ina í sýningarsölum vefjarins sem til-
greindir eru nánar í lýsingum á mununum.
Nú þegar eru mörg hundruð ólíkir munir
til sölu á vefsíðunni. Aðsetur uppbod.is er
hjá Antíkmunum, Klapparstíg 40.
Uppboðsvefur
á antíkmunum
Máltíðin
bragaðst
miklu betur
ef hnífa-
pörin eru
skemmtilega
hönnuð.
Það er miklu
skemmtilegra
að hella upp
á kaffi ef
kaffikannan
er dálítið
flippuð.
Leirtauið frá ömmu kemur sér vel þegar
skapa á rólegt andrúmsloft. Kleinur og
pönnukökur ætti að sjálfsögðu að bera
fram á gömlum diskum og heitt súkkulaði
bragðast best úr gömlum postulínsbollum.
Rauður eldhússtóll í
gamaldagsstíl. Minnir
í senn á eldhúsið
heima hjá ömmu og
afa og gamla amer-
íska vegasjoppu.
Sápugerð
SÁPULEIFARNAR VERÐA AÐ NÝRRI
SÁPU.
Ávallt er gott að tileinka
sér nýtni í búskapnum
enda kostar það skild-
inginn að versla inn til
heimilisins. Hægt er að
halda til gömlum haga
sápuleifum og geyma í plastpoka.
Þegar nóg hefur safnast í pokann til
að mynda nýtt sápustykki er honum
dýft í heitt vatn.
Við hitann rennur innihaldið saman
og þegar það hefur gerst er pokanum
strax stungið ofan í kalt vatn þar til
sápan storknar. Þeir sem vilja leggja
metnað í þetta verk geta leikið sér að
því að láta sápuna storkna í smámót-
um og fá þannig fallegri sápustykki.
- jóa
húsráð }
Hægt er að finna margar gersemar á vefsíðunni
uppbod.is, eins og þennan fallega skenk.