Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 51

Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 51
FIMMTUDAGUR 10. ágúst 2006 Dagur stærstu niðurlægingar fyrir íslenska þjóð nálgast. Mestu umhverfisspjöll Íslandssögunnar af mannavöldum eru í nánd. Eftir örfáar vikur verður vatni hleypt yfir 57 ferkílómetra af hálendi Austurlands og Hálslón verður til. Umfang lónsins samsvarar því að Hvalfjörður væri settur niður á hálendið. Gróðurbreiður, tugir fossa og gljúfra, dýrmætt varp- land gæsa og beitar- og burðar- svæði hreindýra hverfa fyrir fullt og allt. Einstakt og óbætanlegt landsvæði á hálendi Íslands verð- ur botninn á miðlunarlóni erlends álrisa. Á mannsaldri fyllist lónið af framburði jökulánna og er þá líf- tíma lónsins og þar með Kára- hnjúkavirkjunar lokið. En eyði- leggingarmáttur Hálslóns mun halda áfram og umhverfisáhrifin eru óafturkræf. Hvernig er hægt að réttlæta slíka gjörð? Ég skammast mín fyrir aðför stjórnvalda að óbyggðum Íslands. Ég skammast mín fyrir að hafa sofnað á verðinum. Ég skammast mín fyrir að láta misvitra embætt- is- og stjórnmálamenn telja mér trú um að stóriðja sé leiðin til ham- ingjunnar. Stjórnvöld, Landsvirkjun og Alcoa hafa vanrækt upplýsinga- skyldu sína gagnvart almenningi hvað varðar umhvefisskemmdir og áhættu sem fylgir Kárahnjúka- virkjun og álveri í Reyðarfirði og má nefna örfá atriði: • Stórfellt fok (leir og sandur) úr Hálslóni yfir gróðurlendi og byggðarlög. • Alvarlegar loftslagsbreytingar sem fylgja stóru jökulvatni. • Neikvæð áhrif á íslenskt hag- kerfi; verðbólga eykst, rekstrar- umhverfi fyrirtækja í sjávar- útvegi versnar og starfsfólk missir atvinnu, og hugbúnaðar- og hátæknifyrirtæki flýja land. • Lækkun á hitastigi Lagarfljóts með ófyrirséðum afleiðingum fyrir lífríkið í vatninu, Hallorms- staðarskóg og umhverfi Fljóts- dals. • Loftmengun; álverið á Reyðar- firði mun losa jafn mikinn koltví- sýring (CO2) út í andrúmsloftið og allur bílafloti Íslendinga. Það er umhugsunarefni að rekstur fiski- mjölsverksmiðju hefur ekki verið leyfður þar að sumarlagi vegna mengunarhættu. • Skýrsla Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings; þar kemur fram m.a. að „Hálslón ætti að flokkast sem náttúruvá sem getur leitt af sér hamfarahlaup. Kára- hnjúkavirkjun er mikil áhættu- framkvæmd og í versta falli lífs- hættuleg þeim sem næst Jöklu búa“. Ég skil ekki að Kárahnjúka- virkjun hafi verið samþykkt á Alþingi. Einkum þegar fyrir liggur að fjárhagslegur hagnaður af virkjuninni verður enginn og gríðarleg umhverfisspjöll hljótast af. Hvernig munu Íslandssögurit- arar næstu aldar fjalla um mestu umhverfisspjöll í einni aðgerð af mannavöldum í Evrópu? Munu þeir álykta að íslenska þjóðin hafi verið svo værukær af velsæld að hún þekkti ekki sinn vitjunartíma? Að stjórnmálamenn hafi beitt blekkingum og hræðsluáróðri og leynt upplýsingum? Að alþingis- menn hafi ekki kynnt sér mat vís- indamanna á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar áður en gengið var til atkvæðagreiðslu á Alþingi? Að hagsmunir verktaka, verkfræðinga, embættismanna, fyrirgreiðslupólitíkusa og erlendra stórfyrirtækja hafi ráðið meiru en hagsmunir lands og þjóðar? Að hégómagirnd stjórmálamanna og þrá eftir að reisa sér minnisvarða hafi ráðið för? Hafi svo verið þá eru engir Íslendingar, þrátt fyrir leit aftur til landnámsaldar, jafn ólánssamir með valið og fyrrver- andi umhverfis- og iðnaðarráð- herrar og má bæta fyrrverandi forsætisráðherra og stjórnendum Landsvirkjunar í þann hóp. Íslensk stjórnvöld hafa ekki staðið vörð um grundvallarstoðir mannlegs samfélags s.s. virðingu fyrir tjáningarfrelsi og tilfinning- um fólks, virðingu fyrir landinu og virðingu fyrir lífinu í öllum þess myndum. Þessi grundvallargildi hafa lotið í lægra haldi fyrir emb- ættismannahroka og gróðahyggju. Á langri afrekaskrá má finna öryrkjadóminn, lögin um lífeyris- réttindi alþingismanna, handtökur friðsamra mótmælenda Falun- Gong, opinberan stuðning við stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Írak, lítilsvirðingu við aldraðra og öryrkja, og síðast en ekki síst lítils- virðingu við land og þjóð sem krist- allast í stóriðjustefnu stjórnvalda og hrokafullri framkomu lögreglu gegn umhverfissinnum og ferða- mönnum á Kárahnjúkasvæðinu. Stjórnarflokkarnir bera ábyrgð á stóriðjustefnunni og afleiðingum hennar. Stjórnmálamenn hafa talið íbúum heilu byggðarlaganna trú um að virkjanir og stóriðja sé eina leiðin til að tryggja áframhaldandi velmegun og ekkert komi í stað- inn. Stjórnmálamenn og flokkar sem enn eru í hlekkjum stóriðju- hugarfarsins þurfa að breyta áherslum fyrir næstu kosningar. Einstaka pólitíkus hefur nú þegar hrokkið í gang og álítur hag sínum betur borgið með því að afneita glæpnum. Fyrrverandi iðnaðar- ráðherra hóf undanhaldið með yfirlýsingu þess efnis að hann væri að framfylgja vilja Alþingis og landsbyggðarfólks. Núverandi iðnaðarráðherra er genginn til liðs við flóttaliðið og heldur því fram að stóriðja hafi ekki verið á stefnu- skrá ríkisstjórnarinnar undanfar- in ár. Hörðustu virkjunarsinnar viður- kenna að Kárahnjúkavirkjun hafi umtalsverð umhverfisáhrif og fórnarkostnaður sé hár. Æ fleiri bætast í hóp þeirra sem álíta fórnarkostnaðinn óásættanlegan. Náttúrugersemar, ósnortin nátt- úra sem engan veginn er hægt að meta til fjár, samábyrgð okkar á lífríki jarðarinnar og orðspor okkar sem þjóðar er ógnað, verði Hálslón að veruleika. Íslendingar, það er ekki of seint að hætta við Hálslón. Við látum ekki hrædda stjórnmálamenn telja okkur trú um slíkt. Það er mögu- legt að fresta Hálslóni fram yfir næstu alþingiskosningar. Þing- menn og ráðherrar, ég hvet ykkur til að kynna ykkur betur áhættu og umhverfisáhrif framkvæmdanna við Kárahnjúka á grunni vísinda- legra staðreynda. Ég hvet ykkur til að hlusta á rödd þjóðarinnar, virða lögmál lýðræðisins þar sem virðing fyrir landi og þjóð ræður för. Ég hvet ykkur til að íhuga hvort stóriðja færi börnunum okkar hamingju. Ég hvet ykkur til að láta af fylgispekt við erlend gróðafyrirtæki og ganga til liðs við þann stóra hóp Íslendinga sem vill vernda einstaka náttúru Íslands. Saga Íslands og framtíð er í ykkar höndum. LOVÍSA BALDURSDÓTTIR SKRIFAR UM KÁRAHNJÚKA Hæfileikinn til endurnýjunar er einn stórkostlegasti eiginleiki mannsins. Að henda því versta úr fortíðinni, byggja á því skásta og bæta splunkunýju við svo útkom- an er alveg ófyrirséð. Þegar best tekst til getur hópur hugsandi fólks í fyrirtækjum, stofnunum og jafnvel í stjórnmálaflokkum lagt saman þessa endurnýjunarhæfi- leika sína svo úr verður algjörlega ný og óvænt heild. Nú þegar Framsóknarflokkur- inn gerir tilraun til gagngerrar endursköpunar á sjálfum sér er mikilvægt fyrir flokksmenn að hafa í huga að hálfvelgja og mála- miðlanir skemma yfirleitt andann í góðum boðskap. Þessa sjálfs- endurnýjun þarf flokkurinn því að gera með gleði og djörfung. Framsókn síðustu aldar var afar afturhaldssamur stjórnmála- flokkur sem nærðist á sérkenni- lega blygðunarlausri þjónkun við sérhagsmuni örfárra á kostnað allra hinna: Samsölur, kaupfélög og bændur ásamt SÍS annars vegar og öll þjóðin hins vegar. Framsókn síðustu aldar lagði á ráðin um gríðarlega peningaflutn- inga úr skattsjóðum hins almenna borgara til velunnara sinna á bak- við luktar dyr. Enda líktust emb- ættismenn, alþingismenn og ráð- herrar Framsóknar þess tíma fremur launuðum starfsmönnum Bændasamtakanna og SÍS heldur en þjóðarinnar. Þegar SÍS dó bætti landbúnaðarráðuneytið upp máttarstólpamissinn og er ennþá úthlutunarstöð á skattfé almenn- ings til sérhagsmunahópa. Kjósendur eru klókir Allt hugsandi fólk á Íslandi veit að enn í dag hefur það sem fram fer innan veggja ráðuneytisins ekki þjóðarhag að leiðarljósi fyrst og fremst heldur eitthvað allt annað. Það veit að „lobbíistarnir“ banka ekki á dyr ráðuneytisins til að þrýsta á sérhagsmuni sína heldur starfar ráðherrann sjálfur fyrir þá og bara í þykjustunni fyrir þjóðina. Til að lifa af þarf Fram- sókn að breyta þessu. Því kjósend- ur þéttbýlisins eru klókir og engir kjánar. Þeir sjá í gegnum blekk- ingar eins og komið hefur fram í fylgishruni Framsóknarflokksins. Það besta sem Framsóknar- flokkurinn gæti gert til að fá inn- göngu inn í framtíðina á rauðum dregli er því að verða sjálfur höf- undur að róttækri uppstokkun og endurnýjun á þessu eldgamla og gatslitna peningasóunarkerfi með skattfé íslenskra borgara. Fyrir flokkinn væri slíkt mikið gæfu- og snilldarspor og í raun eina leiðin til að öðlast aftur traust kjósenda. Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. Klaufalegt hálfkák er örlagaríkt Enn er tími til að fresta skemmdarverki! KÁRAHNJÚKAR Eftir örfáar vikur verður vatni hleypt yfir 57 km2 af hálendi Austurlands og Hálslón verður til. RAGNAR HALLDÓRSSON SKRIFAR UM FRAMSÓKNARFLOKKINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.