Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 72
52 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
7 8 9 10 11 12 13
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
19.00 Þrír leikir í 1. deild karla.
Víkingur Ó.-KA, Fram-Haukar og HK-
Þróttur.
19.15 Fjórir leikir í Landsbanka-
deild karla. ÍA-Valur, Grindavík-
Breiðablik, Víkingur-ÍBV og FH-Fylkir.
■ ■ SJÓNVARP
08.40 EM í frjálsum á RÚV.
19.00 Landsbankadeildin á Sýn.
Leikur Víkings og ÍBV í beinni.
22.25 Landsbankadeildarmörkin
á Sýn.
23.20 Fótboltakvöld á RÚV.
Indriði Sigurðsson gekk í fyrrakvöld til
liðs við norska úrvalsdeildarliðið Lyn og
náði því ekkert að leika með KR-ingum
í sumar en hann fékk leikheimild með
liðinu í síðustu viku. Samningur
hans við belgíska félagið Genk rann
út í vor og ákvað hann að koma
heim í KR í lok júlí en hefur nú
samið við Lyn til loka tímabilsins
2008.
Áður en Indriði lék í Belgíu
var hann á mála hjá
Lilleström í þrjú ár og
þekkir því vel til norsku
úrvalsdeildarinnar.
Fyrir hjá Lyn er félagi
Indriða í íslenska
landsliðinu, Stefán
Gíslason.
„Ég er mjög ánægður með þetta
enda hörkugóður leikmaður,“ sagði Stef-
án. „Við höfum líka verið í vandræðum
með þá leikstöðu sem hann mun
leysa, vinstri bakvörðinn, og hann
gæti einnig nýst vel sem miðvörð-
ur. Að því leytinu til er þetta hið
besta mál.“
Indriði verður áttundi Íslend-
ingurinn í norsku úrvalsdeildinni,
auk eins sem leikur í 1.
deildinni. Íslendingarnir
hafa flestir verið mjög
áberandi í deildinni í
ár en Stefán þykir til
að mynda hafa staðið
sig mjög vel með
Lyn. Þá er markahæsti
leikmaður deildarinnar
Veigar Páll Gunnarsson og varnartvíeyk-
ið Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn
Sigurðsson hefur hlotið mikið lof fyrir
frammistöðu sína í hjarta varnarinnar
hjá toppliði Brann.
„Veigar fær mikla athygli fyrir að
skora öll þessi mörk en Kristján hefur
einnig fengið mikla og verðskuldaða
athygli fyrir frammistöðu sína. Hann
er svo gífurlega fljótur að Brann getur
leyft sér að vera mjög framarlega með
varnarlínu sína og ef einhver sleppur
í gegn nær Kristján iðulega að hlaupa
viðkomandi uppi og stöðva sóknina,“
sagði Stefán.
Næsti leikur Lyn verður gegn Stabæk
og því aldrei að vita nema að Indriði
fái það erfiða verkefni að hafa gætur á
Veigar Páli, markamaskínunni sjálfri.
STEFÁN GÍSLASON: ÁNÆGÐUR MEÐ NÝJAN ÍSLENSKAN LIÐSFÉLAGA Í LYN
Indriði mun styrkja lið okkar mikið
Annar leikur Blikastúlkna
Kvennalið Breiðabliks leikur í dag sinn
annan leik í Evrópukeppni félagsliða
en leikið er í Austurríki. Eftir 4-0 sigur
í fyrsta leik er komið að heimaliðinu
Neulengbach í dag en það lið vann sinn
fyrsta leik 5-1 og því má reikna með
hörkuleik.
> ÍBV farið að safna liði
Kvennalið ÍBV í handbolta hefur fengið
liðsstyrk því Valentina Radu, 25 ára
örvhent rúmensk skytta, hefur samið
við félagið en hún á nokkra A-lands-
leiki að baki. Á síðasta ári lék hún með
Rulmentul Brasov sem varð meistari
í heimalandi hennar auk þess sem
það vann Áskorendakeppni Evrópu.
Samkvæmt heimasíðu ÍBV er fleiri frétta
af leikmannamálum og þjálfaramálum
hjá félaginu að vænta næstu daga enda
hefur það misst mikið frá síðasta tíma-
bili. Nú síðast
var það
hin efni-
lega Ester
Óskarsdótt-
ir sem ÍBV
missti en hún
mun spila á
Akureyri á kom-
andi tímabili.
KÖRFUBOLTI U16 ára landslið
kvenna í körfubolta tapaði í gær
með fjórtán stiga mun, 59-73, fyrir
Írlandi í fyrsta leik sínum í milli-
riðli B-deildar Evrópumótsins.
Írska liðið hafði forystuna allan
tímann. Íslensku stelpurnar hafa
því tapað öllum fjórum leikjum
sínum á mótinu til þessa en í dag
leika þær gegn Finnlandi sem
vann Írland 63-57 á þriðjudag.
Lilja Ósk Sigmarsdóttir skoraði
nítján stig og var stigahæst íslenska
liðsins í gær en fyrirliðinn Hafrún
Hálfdánardóttir var kosin besti
leikmaður Íslands af mótshöldur-
um en hún var með átján stig og
fimm fráköst í leiknum. - egm
U16 landslið kvenna:
Fjórða tap Ís-
lands í röð
FÓTBOLTI Lokaspretturinn í Lands-
bankadeild karla er hafinn en í
kvöld verða fjórir leikir á dagskrá
og hefjast þeir allir klukkan 19:15.
Með þeim lýkur þrettándu umferð-
inni og þá verða aðeins fimm
umferðir eftir. FH hefur örugga
forystu í deildinni en þar fyrir
neðan er pakkinn þéttur og nær öll
lið deildarinnar geta fallið.
Íslandsmeistarar FH taka á
móti Fylki í kvöld en þeir unnu
viðureign þessara liða á Fylkis-
velli 2-1 með mörkum frá Tryggva
Guðmundssyni og Ármanni Smára
Björnssyni. Nú er Ármann kom-
inn í landsliðið líkt og Sigurvin
Ólafsson og markvörðurinn Daði
Lárusson sem einnig leika með
FH, sem gerir þennan leik óneit-
anlega enn athyglisverðari. Þá er
Leifur Garðarsson, þjálfari Fylk-
is, Hafnfirðingum að góðu kunnur
eftir að hafa verið aðstoðarþjálf-
ari Fimleikafélagsins síðustu ár.
Skagamenn eru enn í fallsæti
en eru líklega staðráðnir í að
breyta því þegar þeir taka á móti
Valsmönnum í kvöld. Valsmenn
eru þó funheitir þessa dagana og
hafa ekki tapað leik síðan í fimmtu
umferð en í síðustu viku unnu þeir
5-0 stórsigur á ÍBV. Valur vann
fyrri viðureign liðanna í sumar
með naumindum en ÍA verður án
Igor Pesic og Hjartar Hjartarson-
ar í kvöld þar sem þeir taka út
leikbann.
Sjónvarpsleikurinn á Sýn verð-
ur viðureign Víkings og ÍBV en
það verður fyrsti leikur Eyja-
manna eftir að Heimir Hallgríms-
son tók við stjórnartaumunum.
Liðið er í botnsætinu og ljóst er að
ekkert verður gefið eftir í þessum
leik. Síðast en ekki síst leikur
Breiðablik gegn Grindavík í kvöld
en illa hefur gengið hjá Suður-
nesjamönnum eftir að þeir burst-
uðu KR í áttundu umferð. Annað
er á teningnum hjá Breiðabliki
sem ekki hefur tapað leik síðan
Ólafur Kristjánsson tók við. Bak-
vörðurinn Stig Krohn Haaland
leikur ekki með liðinu í kvöld
vegna leikbanns.
- egm
Þrettándu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld með fjórum leikjum:
Fjórir mikilvægir leikir í kvöld
LOKASPRETTURINN HAFINN Valsmenn unnu Skagamenn fyrr í sumar en þeir gulklæddu
eru líklega staðráðnir í að snúa dæminu við í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson
hefur valið landsliðshópinn sem
mætir Tékklandi laugardaginn 19.
ágúst. Leikurinn er í undankeppni
fyrir HM 2007 og er Ísland, sem
stendur í þriðja sæti riðilsins, með
jafnmörg stig og Tékkar. Einn
nýliði er í hópnum en það er Katr-
ín Ómarsdóttir. Þá kemur fyrirlið-
inn Ásthildur Helgadóttir aftur
inn í liðið en hún var í leikbanni í
síðasta leik gegn Portúgal.
Þóra B. Helgadóttir úr Breiða-
bliki og Guðbjörg Gunnarsdóttir
úr Val voru valdar sem markverð-
ir en aðrir leikmenn eru: Guðlaug
Jónsdóttir, Edda Garðarsdóttir,
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Erna
Sigurðardóttir, Ólína Viðarsdóttir
og Greta Mjöll Samúelsdóttir úr
Breiðabliki. Katrín Jónsdóttir,
Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra
María Lárusdóttir, Málfríður Sig-
urðardóttir, Ásta Árnadóttir og
Guðný Björk Óðinsdóttir úr Val.
Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir úr KR. Ásthildur
úr Malmö og Erla Steina Arnar-
dóttir úr Mallbackens.
- egm
Íslenska kvennalandsliðið:
Ásthildur aftur
inn í hópinn
Í ÞRIÐJA SÆTI Íslensku stelpurnar eru í
þriðja sæti riðilsins eftir fimm leiki.
FÓTBOLTI Viktor Unnar Illugason
hefur vakið verðskuldaða athygli
með liði Breiðabliks í Landsbanka-
deildinni í sumar en hann er yngsti
leikmaður deildarinnar, varð sex-
tán ára fyrr á þessu ári. Laugar-
daginn 20. maí síðastliðinn lék
hann sinn fyrsta leik í efstu deild
þegar hann kom inn sem varamað-
ur á lokamínútunni í leik gegn ÍBV
á Kópavogsvellinum. Viktor var
aðeins búinn að vera á vellinum í
tvær mínútur þegar hann náði að
skora sitt fyrsta mark.
„Það var mjög ljúf tilfinning og
gaman að ná að skora þetta mark,
ég slapp bara einn í gegn og renndi
boltanum framhjá markverðin-
um,“ sagði Viktor Unnar. Síðan
Ólafur Kristjánsson tók við Breiða-
bliksliðinu hefur Viktor alltaf verið
í byrjunarliðinu en hann getur spil-
að í fremstu víglínu og einnig á
kantinum. „Ég get ekki verið annað
en mjög ánægður með þau tæki-
færi sem ég hef fengið.“
Viktor er nýkominn heim frá
Færeyjum, þar sem hann spilaði
lykilhlutverk með U17 landsliði
Íslands á Norðurlandamótinu.
Strákunum gekk ekki vel, þeir
höfnuðu í fimmta sæti, en Viktor
skoraði tvö mörk á mótinu. Hann
hefur farið þónokkrum sinnum
erlendis til reynslu. „Ég hef farið
til reynslu hjá Feyenoord í Hol-
landi og Reading og Ipswich á Eng-
landi. Ég fékk tilboð frá báðum
ensku liðunum en hef tekið þá
ákvörðun að fara til Reading eftir
að tímabilinu hér heima lýkur,“
sagði Viktor en enn á þó eftir að
ganga frá örfáum lausum endum.
„Það er að skapast hefð fyrir
íslenskum leikmönnum hjá
Reading og þá er mjög jákvætt að
ég fæ að klára tímabilið hérna
heima. Ég hlakka mikið til,“ sagði
Viktor, en aðallið Reading vann sér
inn sæti í ensku úrvalsdeildinni á
síðustu leiktíð. Með félaginu leika
íslensku landsliðsmennirnir Ívar
Ingimarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson og þá er hjá liðinu
annar íslenskur unglingalandsliðs-
maður, Gylfi Þór Sigurðsson.
„Ég hafði nánast ekkert séð til
Viktors þegar ég tók við en hann er
með mjög góðan vinstri fót og er
nokkuð sterkur líkamlega miðað
við aldur. Þá hefur hann fína tækni
og er með nef fyrir markinu og
hefur verið að skapa sér færi.
Hann getur þó bætt sig mikið því
hann er líkamlega sterkur frá nátt-
úrunnar hendi en er nokkuð óþjálf-
aður og ýmislegt sem hann getur
bætt. Þá á hann það til að detta út
úr leikjum en það er eðlilegt miðað
við að þetta er hans fyrsta tímabil
með meistaraflokki,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks.
Ólafur er þó ekki fullviss um að
það væri rétt skref fyrir Viktor að
fara út strax. „Að spila með ungl-
ingaliði Reading er nokkuð langt
frá því að vera fullorðinsfótbolti
en þetta er hans val. Ég þekki ekki
vel til unglingastarfs Reading en
almennt séð skil ég oft á tíðum ekki
hvað ungum leikmönnum liggur á
að komast út.“ elvargeir@frettabladid.is
VIKTOR UNNAR ILLUGASON Er á leið til Englands í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fer líklega til Reading
Yngsti leikmaður Landsbankadeildarinnar, hinn sextán ára gamli Viktor Unnar
Illugason hjá Breiðabliki, heldur að öllum líkindum til Englands í haust.