Fréttablaðið - 10.08.2006, Page 78

Fréttablaðið - 10.08.2006, Page 78
 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR58 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 opið alla laugardaga 11-14 Stór humar, túnfiskur og úrval fiskrétta á grillið LÁRÉTT 2 orðagjálfur 6 rykkorn 8 fiskur 9 segi upp 11 hætta 12 fiskilína 14 lúkar 16 í röð 17 niður 18 tímabil 20 guð 21 bæli. LÓÐRÉTT 1 þungi 3 samþykki 4 veit allt 5 rá 7 óstöðuglyndur 10 knæpa 13 tangi 15 hástétt 16 frestur 19 í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2 fjas, 6 ar, 8 áll, 9 rek, 11 vá, 12 girni, 14 káeta, 16 tu, 17 suð, 18 öld, 20 ra, 21 flet. LÓÐRÉTT: 1 farg, 3 já, 4 alvitur, 5 slá, 7 reikull, 10 krá, 13 nes, 15 aðal, 16 töf, 19 de. „Ég hef nú alltaf verið tvöfaldur karakter, hef bæði starfað í mark- aðsmálum og í skemmtanabrans- anum. En það rétt, nú er ég kom- inn í PR-ið,“ segir plötusnúðurinn og athafnamaðurinn Baldur Bald- ursson, sem hóf nýverið störf hjá almannatengslafyrirtækinu Inn- taki. Baldur hefur getið sér gott orð hjá yngri kynslóðinni sem umsjónarmaður Fönkþáttarins á X-inu 977, plötusnúður á skemmtistöðum og í skipu- lagningu viðburða á skemmtistöðum. Þar að auki var Baldur, eða Balli eins og hann er jafnan kall- aður, einn stofnenda og eigenda tímarits- ins Vamm og þar áður var hann markaðsstjóri Undir- tóna. Auk nýja starfsins er Baldur orðinn sendiherra Reyka vodka á Íslandi og sér um kynningu á þeim íslenska drykk hérlendis. „Ég er búinn að vera hjá Inn- taki í tvo mánuði. Þetta er að mörgu leyti svipað því sem ég hef verið að gera, bara á öðruvísi for- sendum,“ segir Baldur, sem hefur alls ekki skipt alfarið um ham þó hann sé farinn að vinna hjá virðulegu fyrirtæki. „Nei, þeir sögðu við mig að ég ætti bara að vera ég sjálfur. Þeir vildu alls ekki að ég reyndi að vera eitthvað sem ég er ekki. Það vant- aði einhvern yngri mann í fyrir- tækið og ég hef auðvitað mikla reynslu úr afþreyingarheimi yngri kynslóðarinnar.“ Athygli vekur að Baldur er þegar farinn að klæða sig í sam- ræmi við nýja starfið. Sá klæðnað- ur passar ekki beint við Balla fönk, útvarpsmann og plötusnúð, sem þó er vissulega enn við lýði. „Maður varð auðvitað að „súta“ sig upp. Manni væri nú varla vel tekið á fundum úti í bæ ef maður færi að mæta í Stüssy-bol,“ segir Baldur Baldursson, markaðsmað- ur, plötusnúður og útvarpsmaður. - hdm Fönkkóngurinn orðinn fullorðinn BALDUR BALDURSSON Plötusnúðurinn og útvarpsmaðurinn er búinn að kasta Stüssy- bolnum fyrir jakkaföt. Baldur er farinn að vinna hjá almannatengslafyrirtækinu Inntaki. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI BALLI FÖNK Í dag er sjaldgæft að sjá hann með derhúfuna en hann stjórnar þó Fönkþættin- um enn og er plötusnúð- ur um helgar. HRÓSIÐ ... fá Guðrún Margrét Guðmunds- dóttir og aðrir aðstandendur árlegrar kertafleytingar til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprenginganna í Japan, en kertafleytingin var haldin í 22. sinn í gærkvöld. VEISTU SVARIÐ 1. Forgangsréttarákvæði. 2. 41. 3. Cafe Amsterdam, Gaukur á Stöng og The Dubliner. Eyrún Huld Haraldsdóttir og Mar- inó Bjarni Magnason, unnusta og sonur Magna Ásgeirssonar, vöktu mikla athygli áhorfenda sjón- varpsþáttanna Rock Star: Super- nova í fyrrakvöld. Eins og frægt er orðið flugu þau til Los Angeles til að vera með Magna, íslenska keppenda þáttanna, og fylgjast með honum keppa. „Kvöldið var auðvitað dálítið súrrealískt en ótrúlega skemmti- legt,“ segir Eyrún Huld og Marinó tekur undir það í bakgrunninum með ánægjulegu hjali. Hún segir að mestur tími hennar hafi þó farið í að halda Marinó góðum enda hafi hann verið orðinn dálítið þreyttur undir lokinn. „Ég þurfti auðvitað að labba með hann inn og út enda voru svo mikil læti þarna inni að það var ekki hægt að hafa hann þar allan tímann.“ Þau voru þó að sjálfsögðu í saln- um á meðan Magni flutti Dolphin‘s Cry með hljómsveitinni Live með eftirminnilegum hætti. „Þetta var auðvitað alveg geggjað flott og hann var alveg á meðal þeirra þriggja bestu,“ segir Eyrún, greini- lega ánægð með sinn mann. Myndatökumenn sjónvarps- þáttanna sýndu myndir af Eyrúnu Huld og Marinó og er mál manna að þau hafi tekið sig vel út á skján- um. „Ég þurfti aðeins að leika við Marinó til að reyna að láta hann brosa í myndavélarnar,“ segir Eyrún Huld og hlær. Hún er ekki viss um að Marinó hafi þekkt pabba sinn á meðan hann var á sviðinu, enda var það langt í burtu frá þeim. „Marinó fylgdist samt vel með öllum hljóðunum og ljós- unum og var eiginlega bara heill- aður af þessu.“ Á meðan á dvöl Eyrúnar Huldar og Marinó stóð fengu þau að heim- sækja setur keppendanna í tvær klukkustundir og færðu þeim háls- men með íslenskum rúnum. „Maður labbar eiginlega inn í ein- hvern draumaheim, með mynda- vélar og mæka í kringum okkur allan tímann.“ Eyrún segist ekki hafa kynnst dómnefnd raunveru- leikaþáttanna að ráði heldur bara séð þeim bregða fyrir. „Ég hitti bara Tommy Lee aðeins og hann bauð mig velkomna.“ Aðspurð segist Eyrún Huld ekki búast við að fara aftur út til að fylgjast með Magna keppa. „Þetta er auðvitað mjög langt ferðalag og ég held ég treysti mér ekki aftur með hann með mér. Ekki nema það sé úrslitaþátturinn, þá veit maður aldrei.“ annat@frettabladid.is EYRÚN HULD HARALDSDÓTTIR: SÁ UNNUSTANN Í ROCK STAR: SUPERNOVA Í draumaheimi í LA EYRÚN HULD OG MARINÓ ÁSAMT MAGNA Mæðginin fylgdust með Magna keppa í Rock Star: Supernova og segir Eyrún Huld að Marinó hafi verið heillaður af lokakvöldi keppninn- ar þótt aðeins hafi þurft að leika við hann til að kalla fram bros fyrir myndavélarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FEÐGARNIR SAMAN Eyrún hélt ekki að Marinó hefði þekkt pabba sinn á sviðinu, enda var það langt í burtu. Fjölskyldan átti þó góðar stundir á meðan Eyrún og Marinó voru úti hjá Magna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA FRÉTTIR AF FÓLKI Líkamsræktarátak rapparans og útvarpsmannsins Halldórs Halldórssonar, Dóra DNA, gengur að óskum. Eins og kom fram hér fyrir skemmstu æfir Dóri undir stífri leið- sögn Egils Gillzen- eggers Einarssonar og hann er þegar farinn að uppskera. Dóri hefur lést um heil fimm kíló á tæpum þremur vikum og er bara rétt að byrja. Hann stefnir á að losa sig við allar óþarfa byrðar og styrkja sig umtalsvert. Dóri mun einhvers staðar hafa lýst því yfir að hann ætli sér að verða eins og The Rock og ekki verður af honum tekið að hann fer vel af stað. Rokkhljómsveitin Reykjavík! leggur hönd á plóginn í réttindabaráttu sam- kynhneigðra í tilefni af Gay Pride hátíðinni um helgina. Sveitin hefur sett í útvarps- spilun lagið All Those Beautiful Boys en texti þess er að mestu saminn af Guðmundi Birgi Halldórssyni gítarleikara. Guðmundur er að öllum líkindum eini homminn í íslensku rokki um þessar mundir. Textinn fjallar um sjálfsmynd trúhneigðs homma sem finnst hann settur út í kant af einstreng- ingslegri túlkun bókstafstrúarmanna á boðskap Krists. Reykjavík kórónar svo þetta framlag sitt til Hinsegin daga með því að koma fram á Lækjartorgssviðinu á laugardag. Þar lofa piltarnir óvæntum uppákomum. F riðrik Weisshappel og félagar hans fagna nú tveggja ára afmæli The Laundromat Café í Kaupmannahöfn. Vel hefur gengið með rekstur kaffihússins á þessum tíma, svo vel að annað útibú þess hefur nú verið opnað á Austurbrú í Kaupmannahöfn. Eins og Fréttablaðið greindi frá við opnunina er nýja kaffihúsið meira fyrir fjölskyldur, er barnvænna en það fyrra, og grænn litur er áberandi í hönnum staðarins. Íslend- ingar búsettir í borginni eru fastagestir á Laundromat og íslenskir ferðamenn gera sér margir ferð á staðina tvo. Minna hefur farið fyrir þessari útrás Íslendinga í Danaveldi en fjölmiðlarekstri og kaup- um á stórverslunum. Það dregur ekki úr Friðriki og hans fólki, þeir eru sagðir stefna á opnun fleiri kaffihúsa í borginni innan tíðar. - hdm Stúlkunni sem Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Sam- fylkingarinnar, átti í anddyrinu heima hjá sér fyrir rúmri viku var gefið nafnið Rósa. „Ég á mjög kæra vinkonu sem heitir Elínrós en er kölluð Rósa. Rósa litla heitir því í höfuðið á henni enda er þetta rosalega fallegt nafn,“ segir Margrét Gauja, stolt af yngri dóttur sinni. „Kannski á Oddur bróðir minn líka sinn þátt í nafninu því hann vildi ekki bekenna nafnið á eldri dóttur okkar, Björk, og kallaði hana Rósu hálft ár á eftir. Kannski nafnið hafi síast inn þá.“ Eins og fram kom í Fréttablað- inu fyrir skömmu lá Rósu litlu svo rosalega á að komast í heiminn að hún fæddist í forstofunni heima hjá sér. Davíð Arnar Stefánsson, pabbi Rósu litlu, tók á móti henni en hann naut dyggrar aðstoðar frá Neyðarlínunni. Magrét Gauja segir að Rósa litla dafni vel. „Hún er alveg yndis- leg og það gengur allt eins og í sögu. Annars er Rósa kannski líka skírð í höfuðið á Rósu Guð- bjartsdóttur, því hún á dóttur sem heitir Margrét. Það má því segja að við séum kvittar,“ segir Margrét Gauja hlæj- andi. - kh Dóttir bæjarfulltrúans skírð Rósa RÓSA DAVÍÐSDÓTTIR Litla stúlkan dafnar vel og er alveg yndisleg. Hún er barnabarn Magnúsar Kjartanssonar tónlistarmanns. MARGRÉT GAUJA Er búin að jafna sig eftir þessu óvenjulegu fæðingu. 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.