Tíminn - 05.03.1978, Page 10
Sunnudagur 5. tnarz 1978
10
Tíminn heimsækir Bolunarvík
Bolungarvik. Blaðamanni var sagtað jafnan væri mikið um að fólk opinberaði trúlofun sina i
byrjun þorra i Bolungarvík. Astæðan er sú,að áþorrablótið fær aðeins gift fólk eða trú-
lofað að fara og allar konur mæta þar i Islenskum búningi.
't ’f
Háar tekjur og
mikil fólksfjölgun
Mikill vöxtur 1 bæjarfélaginu og atvinnuleysi óþekkt
Ráöhúsið i Bolungarvik.
» ■ *■
Mikið kapp var i þessum ungu mönnum og þeir létu kuldann ekkertá sig fá. Mikið er um hús
byggingar i bænum og þessi hús hafa öli verið byggð á siðustu árum.
Siðasta ár var hagstætt bæði
fyrir sveitarfélagið, fyrirtæki og
einstaklinga sagði Giiðmundur
Kristjánsson, bæjarstjóri i
Bolungarvik er blaðamaður
Timans leit þar við á dögunum.
Héreru tekjur einstaklinga með
þvi hæsta á landinu og hér er
mikil atvinna og atvinnuleysi
óþekkt. Mikill vöxtur hefur
verið i bæjarfélaginu hin siðari
ár og fólksfjölgun hér mjög
mikil. NU eru ibúar Bolungar-
vikur 1188 og fjölgaði þeim um
54 á siðasta ári.
A siðasta ári var unnið fyrir
um 70 millj. kr. i gatnagerð i
Bolungarvik. Nú er búið að
leggja bundið slitlag á um 70%
af gatnakerfi bæjarins og á
þessu ári er áformað að ganga
frá kantsteinum og gangstéttum
þar sem þvi verki er ekki þegar
lokið. bað var árið 1975 sem
hafizt var handa um lagningu
bundins slitlags á göturnar en
áður hafði hluti af aðalgötunni i
bænum verið steyptur.
Nú er heilsugæzlustöð í
smiðum i Bolungarvik og sam-
kvæmt verksamningum á henni
að vera lokið 15. april. betta er
360 fermetra hús. Jafnframt er
Bolungarvik aðili að byggingu
sjúkrahUssins sem nú er verið
að reisa á ísafirði og er fyrir-
hugað að langlegusjúklingar
liggi þar. Sjúkraskýli er hins
vegar rekið i Bolungarvik og
hefur svo verið siðan 1955. bar
geta nokkrir sjúklingar legið og
i framtiðinni á að byggja legu-
deild við heilsugæzlustöðina. 1
Bolungarvik er læknir með
fastri búsetu og á svo að vera
samkvæmt lögum um heilsu-
gæzlu.
Ráðgert er að byggja ibUðir
fyrir aldraða á lóð heilsugæzlu-
stöðvarinnar. Óskað hefur verið
eftir fyrirgreiðslu frá HUsnæðis-
málastjórn til að byggja sex
ibúðir fyrir aldraða og er
ráðgertaðframkvæmd hefjistá
þessu ári. Ekki hefur fram-
kvæmdahraði verið ákveðinn en
' von er til að útboðsgögn verði
tilbúin i marz.
Ákveðið er að i ár verði byrjað
á byggingu leikskóla i
Bolungarvik og verður sú fram-
kvæmd i samvinnu við félaga-
samtök i bænum. A siðasta ári
var unnin ýmiskonar undir-
búningsvinna vegna þessarar
byggingar. Leikskóli hefur
verið rekinn i gamla barna-
skólanum i nokkur ár. bar er
rúm fyrir tvisvar sinnum
tuttugu börn.
A fjárlögum rikisins i ár var
varið 77 millj. kr. til hafnar-
framkvæmda i Bolungarvik.
Aætlað er að byggja 60 mlangan
löndunar- og viðlegukant og er
hann m.a. hugsaður sem
löndunaraðstaða fyrir loðnuflot-
ann og skuttogarana. Einnig er
nauðsynlegt að dýpka höfnina.
Ekki verða hafnarmál Bolvik-
inga þó leyst að fullu með þess-
ari framkvæmd. Sérstaklega er
nauðsynlegt að fá aukið legu-
rými fyrir bátana en bátum sem
gerðir eru út frá Bolungarvik
hefur fjölgað mjög siðari árin,
jafnframt þvi sem þeir hafa
stækkað.
Hins vegar er höfnin i
Bolungarvik orðin trygg fyrir
bátana en er hins vegar ótrygg
fyrir s tærri s kip eins og skutto g-
arana.
Af öðrum framkvæmdum sem
fyrirhugað er að ráðast i á
Bolungavik á þessu ári má
nefna að ráðgert er að endur-
nýja og endurbyggja aðstöðu
fyrirbæjarbókasafn.M.a. á þar
að koma upp lesstofu. bá er á
fjárlögum þriggja milljón kr.
fjárveiting til byrjunarfram-
kvæmda við iþróttahús. bað á
að byggja áfast við sundlaugina
sem tekin var i notkun I byrjun
árs 1976. Teikningar eru tUbún-
ar en enn er óráðið hvenær
iþróttahúsið verður fullbúið.
Á siðasta ári bárust 39 þúsund
lestir af fiski á land i Bolungar-
vik. bar af voru tæp 30 þúsund
lestir af loðnu. Bolfiskaflinn og
rækjuaflinn var svipaður og
árið áður, en loðnan var nær
þriðjungi meiri en árið 1976.
MÓ