Fréttablaðið - 20.08.2006, Side 6
6 20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
STJÓRNMÁL Jón Sigurðsson, for-
maður Framsóknarflokksins,
sagði nafn forvera síns, Halldórs
Ásgrímssonar, tengjast flest öllum
mikilvægustu umbótamálum og
framförum í íslensku samfélagi á
umliðnum mörgum árum. „Hann
hefur verið sannkallaður baráttu-
maður og brautryðjandi góðra
málefna fyrir okkur öll hin,“ sagði
Jón meðal annars í ræðu sinni
eftir að úrslit í formannskjörinu
höfðu verið kunngjörð.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Jón ekki auðvelt að setjast í stól
Halldórs og svaraði aðspurður að í
raun mætti ekki bera þá saman.
„Ég græði nú ekki mikið á þeim
samanburði. Við erum ólíkir menn,
Halldór hefur sinn svip og sínar
áherslur og ég hef mínar áherslur.
En við erum algjörir samherjar í
málefnavinnu.“
Jón sagði stefnu Framsóknar-
flokksins setta á oddinn í sinni for-
mannstíð en hún sé í meginatrið-
um að ná jafnvægi í
efnahagsmálunum og halda áfram
að þroska og efla íslenskt þekk-
ingarþjóðfélag. „Evrópumálin eru
allri þjóðinni hugleikin en aðild að
Evrópusambandinu er ekki á dag-
skrá á næstu árum. Við þurfum
fyrst að ná varanlegum styrkleika
og stöðugleika til þess að við
getum metið það, sem frjáls þjóð,
hvað sé mesta gæfusporið fyrir
landsmenn.“
Hefð er fyrir því að formaður
þess ríkisstjórnarflokks sem ekki
fer með forsætisráðuneytið sé
utanríkisráðherra en aðspurður
sagðist Jón ekki eiga von á að taka
við því embætti. Í það minnsta
liggi ekkert fyrir um það.
Siv Friðleifsdóttir, sem sóttist
eftir formannsembættinu, sagðist
þakklát fyrir stuðninginn sem hún
fékk í kosningunni og metur stöðu
sína innan flokksins sterkari á
eftir. „Ég fæ afar góðan stuðning í
embætti formanns og mun áfram
bjóða mig fram til góðra verka í
næstu þingkosningum.“ Siv sagð-
ist ennfremur telja að Framsókn-
arflokkurinn væri sterkari nú en
fyrir formannskosninguna.
Bæði fóru þau fögrum orðum
hvort um annað, Siv þakkaði Jóni
harða en drengilega baráttu og
óskaði honum til hamingju með
sigurinn. Jón sagði Siv vera í for-
ystusveit flokksins og verða það
áfram. „Við höfum unnið vel
saman innan Framsóknarflokks-
ins og ég hef stutt hana í hennar
kjördæmi og við munum áfram
vinna að því að efla Framsóknar-
flokkinn.“ bjorn@frettabladid.is
Ekki auðvelt að
setjast í stól Halldórs
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, lauk lofsorði á Halldór Ás-
grímsson í ræðu á flokksþinginu í gær og þakkaði honum árangursrík störf fyr-
ir land og þjóð. Siv Friðleifsdóttir segir stöðu sína innan flokksins hafa styrkst.
FRAMSÓKN Jónína Bjartmarz,
umhverfisráðherra, segist ætla að
halda ótrauð áfram að starfa í for-
ystu Framsóknarflokksins þrátt
fyrir ósigurinn í varaformanns-
kjörinu. Hún sagði Guðna njóta
góðs af því að hafa starfað lengi í
forystu flokksins og þekkja flokks-
menn vel. „Annaðhvort sigrar
maður eða tapar í kosningum eins
og þessum. Guðni hefur gegnt
stöðu varaformanns í Framsókn-
arflokknum um árabil og hafði
hug á því að gegna þeirri stöðu
áfram. Hann hefur starfað lengi í
flokknum og þekkir vel til þeirra
sem starfa í flokknum. Ég gerði
alltaf ráð fyrir því að kosningarn-
ar gætu farið á þennan veg, en ég
held áfram að vera í forystustarfi
fyrir flokkinn og stefni að því að
bjóða mig fram í næstu alþingis-
kosningum.“
Jónína sagðist í ræðu sinni hafa
í tvígang tapað fyrir Guðna í kosn-
ingum um varaformannsembætt-
ið, en sagðist, meira í gamni en
alvöru, treysta sér í þriðju kosn-
ingarnar. „Allt er þegar þrennt
er,“ sagði Jónína og brosti.
Hún sagðist ætla sér að starfa
af miklum krafti með nýrri for-
ystu. „Það er spennandi vinna
framundan og ég ætla svo sannar-
lega að leggja mitt af mörkum á
komandi kosningavetri, og hlakka
til samstarfsins við forystusveit
flokksins.“ - mh
Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, segist hlakka til samstarfs við nýja forystu:
Telur bjarta tíma framundan
STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson kvaðst
hrærður og þakklátur eftir vara-
formannskjörið. Hann sló á létta
strengi í ræðu sinni og þakkaði
Jónínu Bjartmarz fyrir að hann
hefði þurft að hafa fyrir sigrinum.
Þá sagði hann Jónínu sterkari
stjórnmálamann eftir glímuna við
hann. Guðni beindi svo orðum
sínum að Margréti Hauksdóttur
eiginkonu sinni og sagði hana hafa
dreymt fyrir úrslitunum nákvæm-
lega eins og tölurnar féllu.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Guðni að einhverjar breytingar
yrðu á flokknum með breyttri for-
ystu. „Með nýjum mönnum koma
alltaf einhverjir nýir vindar og
hér er flokksþing sem er gríðar-
lega sterkt og leggur mikla áherslu
á samstöðuna. Við horfum núna til
framtíðarinnar og það sem er að
baki er að baki. Ég trúi því að hér
sé sterkur flokkur á ferð sem mun
endurheimta fylgi sitt.“
Guðni sagði Framsóknarflokk-
inn hafa áorkað miklu í níutíu ára
langri sögu sinni og gefið þjóðinni
mikið. Nú þurfi flokksmenn að
gefa flokknum sínum einingu og
samstöðu.
Þá þakkaði Guðni Halldóri
Ásgrímssyni farsæl störf um
langa hríð og sterka forystu í
flokknum.
-bþs
Guðni Ágústsson var endurkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins með rúmlega 60% atkvæða:
Eiginkonu Guðna dreymdi úrslitin
STJÓRNMÁL „Ég er fyrst og fremst
þakklát þingfulltrúum fyrir þetta
mikla traust sem mér var sýnt. Ég
held að það sé ekki hægt að biðja
um betra kjör en þetta miðað við
að tveir voru í framboði,“ segir
Sæunn Stefánsdóttir, nýkjörinn
ritari Framsóknarflokksins.
„Framsóknarflokkurinn hefur
alltaf haft konur í forystu flokks-
ins og það verður engin breyting á
því núna. Ég á ekki von á að ég
hafi einungis verið kosin kynferð-
is míns vegna heldur líka vegna
þess sem ég stend fyrir og hef upp
á að bjóða.“ - sþs
Sæunn Stefánsdóttir:
Gat ekki beðið
um betra kjör
BREYTT FORYSTA Jón Sigurðsson segir meginatriðin í stefnu Framsóknarflokksins í hans formannstíð vera að ná jafnvægi í efnahagsmálum
og halda áfram að efla íslenskt þekkingarþjóðfélag. Siv Friðleifsdóttir segist þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk í kosningunni.
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Hann segir nýja forystu
hafa í för með sér
breytingar í flokknum.
Horft sé til framtíðar og
það sem sé að baki sé
að baki.
ÚRSLIT KOSNINGA
FORMANNSKJÖR
Jón Sigurðsson
417 atkv. 54,8%
Siv Friðleifsdóttir
336 atkv. 44,15%
Aðrir*
8 atkv. 1,05%
Á kjörskrá 841
Greidd atkvæði 761 - 90,5%
VARAFORMANNSKJÖR
Guðni Ágústsson
437 atkv. 60,95%
Jónína Bjartmarz
262 atkv. 36,54%
Aðrir**
18 atkv. 2,51%
Á kjörskrá 841
Greidd atkvæði 718 - 85,4%
* Guðni Ágústsson (3 atkv.)
Jón Kristjánsson (2)
Jónína Bjartmarz (1)
Ómar Stefánsson (1)
Haukur Haraldsson (1)
** Siv Friðleifsdóttir (17 atkv.)
Ísólfur Gylfi Pálmason (1)
JÓNÍNA BJARTMARZ Sætti sig við úrslitin í
kosningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Var rétt ákvörðun að skipta upp
menntaráði Reykjavíkurborgar?
Já 23%
Nei 77%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Mun Jón Sigurðsson auka fylgi
Framsóknarflokksins?
Segðu skoðun þína á Vísi.is