Fréttablaðið - 20.08.2006, Síða 25

Fréttablaðið - 20.08.2006, Síða 25
ATVINNA SUNNUDAGUR 20. ágúst 2006 5 ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - A LC 3 37 87 08 /2 00 6 Búðareyri 3 730 Reyðarfjörður Sími 470 7700 www.alcoa.is Þitt tækifæri 100 ný og vel launuð störf Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu IMG Mannafls-Liðsauka, www.mannafl.is og láta ferilskrá fylgja með. Frekari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug@img.is) og Helgu S. Guðmundsdóttur (helgas@img.is) hjá IMG Mannafli-Liðsauka. Almennar kröfur sem gerðar eru til allra starfsmanna: •Færni í mannlegum samskiptum •Vilji til að starfa í teymum með jafningjum •Jákvæðni og virðing fyrir öðrum •Vilji til að leita stöðugra endurbóta •Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum •Vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni Við leitum að góðu fólki í fjölbreytt framleiðslustörf sem felast meðal annars í stjórnun framleiðslutækja, framleiðslukerfa og farartækja. Unnið er samkvæmt verkferlum í teymum á mismunandi vinnustöðvum. Framleiðslustarfsmenn munu jafnframt vinna við ýmis konar stoðferli. Unnið verður á vöktum þegar álframleiðsla hefst. Þegar framleiðslustarfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna sjálfstætt á tilskildum fjölda starfsstöðva eru viðmiðunarlaun yfir árið um 4.032.258 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í október 2006 eða síðar. Umsóknarfrestur er til og með 3. september. Störfin henta jafnt konum sem körlum Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli. Starfsumhverfi er hannað þannig að öll störf henta jafnt báðum kynjum og stefnt er að góðri aldursdreifingu starfsmanna. Framleiðslustarfsmenn: 4.032.258 kr. í árslaun Nánari upplýsingar um launakjör á heimasíðu Alcoa Fjarðaáls, www.alcoa.is – undir starfsmannamál. Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík www.studlar.is mru@studlar.is Viljum ráða starfsmenn á meðferðardeild Stuðla. Vilt þú taka þátt í krefjandi og spennandi starfi með unglingum? Starfið felst í beinni meðferðarvinnu og tómstundastarfi og einstaklingsbundnum stuðningi við unglingana í meðferð í samvinnu deildarstjóra, og sálfræðinga. Nýir starfsmenn fá fræðslu og stuðning til að takast á við starfið. Menntunar- og hæfniskröfur. Við erum að leita að fólki sem hefur reynslu af vinnu með unglinga t.d. í tómstun- dastarfi eða íþróttastarfi eða hafi aðra þá starfsreynslu eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi. Umsækjendur þurfa að hafa hæfni í mannlegum sam- skiptum og áhuga á meðferðarstörfum. Þeir þurfa að vera stundvísir, geta farið eftir verklagsreglum og jafn- framt sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að ræða vaktavinnu. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði. Laun skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum. Umsóknir berast til Stuðla – Meðferðarstöðvar ríkisins fyrir unglinga, Fossaleyni 17, 112 Reykjavík eigi síðar en 3. september n.k. Nánari upplýsingar veita forstöðumaður, yfirsálfræðingur og deildarstjóri meðferðardeildar og í síma 530-8800. Forstöðumaður. Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Framtíðarstörf hjá Norðuráli Hvaða kröfur gerum við? ● Sveinspróf í vélvirkjun ● Góð samskiptahæfni, geta til að vinna sjálfstætt og starfsáhugi ● Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við sambærileg störf er æskileg Hvað veitum við? ● Góður aðbúnaður hjá fyrirtæki í stöðugri sókn ● Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks ● Starfsþjálfun og símenntun ● Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd Umsókn Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 4. september n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsókn@nordural.is eða póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna. Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veita Rakel Heiðmarsdóttir framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, og Lárus Hjaltested, vaktstjóri á rafgreiningasviði í síma 430 1000. Vegna stækkunar Norðuráls óskum við eftir að ráða vélvirkja til starfa í vaktavinnu. Um framtíðarstörf er að ræða og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér að framleiðslugeta álversins verður aukin í 260.000 tonn á næsta ári. Hjá okkur starfar fjöldi iðnaðarmanna sem sinna eftirliti og viðhaldi á búnaði í öllum deildum. Áhersla er lögð á jafnan rétt kvenna og karla til starfa. VÉLVIRKJAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.