Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 66
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR26
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
HLAUPARAR!
TIL HAMINGJU
MEÐ ÁRANGURINN
Í REYKJAVÍKUR-
MARAÞONI GLITNIS.
ÞÖKKUM FRÁBÆRA
ÞÁTTTÖKU OG SJÁUMST
Á NÆSTA ÁRI!
Starfsfólk
Íþróttabandalags Reykjavíkur
> Bók vikunnar
Plötusnúður Rauða hersins eftir
rússneska rithöfundinn Wladimir Kam-
iner. Ekki hefðbundin þroskasaga en
einstök tíðarandafrásögn.
Nú haustar að
Einhverja nóttina koma skógarþrestirnir
að tína reyniber af trjánum
áður en þeir leggja í langferðina yfir hafið,
en það eru ekki þeir sem koma með haustið
það gera lítil börn með skólatöskur.
Úr ljóðabókinni Laufið á trjánum eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur sem kom út hjá
Heimskringlu árið 1960.
Skapandi endurvinnslu kvik-
myndaiðnaðarins á skáldverkum
linnir vart og bíógestir eiga nú
von á að sjá óbermi á borð
við Jean-Baptiste Grenouille úr
Ilminum eftir Patrick Süskind og
hinn lánlausa Lionel Essrog úr
skáldsögu Jonathans Lethem,
Motherless Brooklyn, á hvíta
tjaldinu. Þýski leikstjórinn Tom
Tykwer sem er máski þekktast-
ur fyrir mynd sína Lola rennt,
leikstýrir Ilminum og skartar hún
stjörnufans - þar á meðal Dustin
Hoffmann og Alan Rickman.
Leikarinn Edward Norton mun
hins vegar vera bæði leikstjóri,
handritshöfundur og aðalleikari
Motherless Brooklyn.
Einnig er búið er að sverma
fyrir sögu Paulo Coelho, Ellefu
mínútum en nýlega var hætt
við gerð myndar eftir frægustu
sögu hans, Alkemistanum,
sem stórleikarinn Laurence
Fishburne ætlaði að stýra.
Ástardoðranturinn The
History of Love eftir Nicole
Krauss hefur líka verið
kenndur við kvikmyndamóg-
úla þó ekki sé það staðfest
en sagan Extremely Loud and
Incredibly Close eftir Jonathan
Safran Foer, eiginmann
Krauss, hefur líka verið seld
í hendur framleiðenda og er
handritshöfundurinn Eric Roth
bendlaður við það verkefni
en hann hefur meðal annars
skrifað handrit að stómyndun-
um Forrest Gump, The Insider
og Munich.
Bókmenntunum tjaldað
menning@frettabladid.is
METSÖLULISTINN
KILJUR
1 FLUGDREKAHLAUPARINN
KHALED HOSSEINI
2 VETRARBORGIN
ARNALDUR INDRIÐASON
3 SKREFI Á EFTIR
HENNING MANKELL
4 LEYNDARDÓMUR BÝFLUGNANNA
SUE MONK KIDD
5 VERONIKA ÁKVEÐUR AÐ DEYJA
PAULO COELHO
6 SKUGGI VINDSINS
CARLOS RUIZ ZAFÓN
7 TÍMI NORNARINNAR
ÁRNI ÞÓRARINSSON
8 ÞRIÐJA TÁKNIÐ
YRSA SIGURÐARDÓTTIR
9 NAFN RÓSARINNAR
UMBERTO ECO
10 4. JÚLÍ
JAMES PATTERSON
Listinn er gerður út frá sölu dagana
09.08.06 - 15.08.06 í Pennanum Eymunds-
son og Bókabúð Máls og menningar.
Gítarleikar-
inn Símon H.
Ívarsson leik-
ur á næstsíð-
ustu Stofutón-
leikum
sumarsins á
Gljúfrasteini í
dag kl. 16.
Símon leikur
blóðheita og
suðræna tóna, ættaða frá Andalús-
íu á Spáni. Verkin á efnisskránni
eru eftir nokkur af helstu tón-
skáldum Spánverja, þá Gaspar
Sanz, E. Granados, Manual de
Falla og Isack Albeniz.
Símon hefur leikið inn á nokkr-
ar hljómplötur, þar á meðal plöt-
una „Glíman við Glám“ þar sem
hann lék tónlist eftir Gunnar
Reyni Sveinsson en platan var til-
nefnd til Íslensku tónlistarverð-
launanna sem plata ársins 2004.
Gítarmúsík á
Gljúfrasteini
SÍMON H. ÍVARSSON
Breska stríðsljóðskáldið
Robert Graves er þekktast
á Íslandi fyrir sögulegu
skáldsöguna Ég, Kládíus.
Hann eyddi drjúgum hluta
ævi sinnar í fjallaþorpinu
Deia á Mæjorka og nú geta
aðdáendur hans sem leggja
leið sína þangað skoðað
heimili hans sem hefur ver-
ið breytt í safn.
Tomas Graves er yngsti sonur
skáldsins og býr í nágrenni við
hús föður síns. „Ég fæddist í
Palma og ólst upp í Deia en var
sendur í nám til Englands. Ég lít
samt miklu frekar á mig sem
Mæjorkabúa en Englending.
Mæjorka er mitt heimaland og ég
bý til skiptis í Deia og í Palma. Ég
fer sjaldan til Englands enda þarf
ég þess ekki vegna þess að það
koma allir hingað,“ segir Tomas.
Börn skáldsins hafa unnið náið að
opnun Graves-safnsins með bæj-
aryfirvöldum í Deia en bæjar-
stjórninni var mjög annt um að
opna húsið almenningi enda eru
eyjaskeggjar ákaflega stoltir af
því nafntogaða fólki sem hefur
kosið að setjast að á Mæjorka og
nægir í því sambandi að nefna að
þeir líta á kvikmyndaleikarann
Michael Douglas sem sinn helsta
sendiherra en hann hefur um ára-
tugabil átt hús á afviknum stað á
milli fjallaþorpanna Valldemossa
og Deia.
Sótti gull í greipar Rómarkeisara
Graves skrifaði Ég, Kládíus í Deia
og bókin kom út árið 1934. „Faðir
minn var ekki stoltur af bókinni
enda leit hann alltaf fyrst og
fremst á sig sem ljóðskáld. Hann
skrifaði hana til þess að borga
fyrir byggingu þessa húss. Kládíus
var því bara skrifaður fyrir pen-
ingana og hann gaf vel af sér.
Bókin naut til dæmis mikilla vin-
sælda á Spáni. Ég held að Kládíus
hafi höfðað til Spánverja vegna
þess að söguþráðurinn féll að
vissu leyti að stjórnmálaástandinu
á Spáni og það má skoða Juan
Carlos Spánarkonung og valda-
bröltið í kringum hann sem
ákveðna hliðstæðu Kládíusar keis-
ara. Þá byggði pabbi líka persón-
urnar á eyjarskeggjum þannig að
þær hafa ýmis spænsk einkenni.“
Sjónvarpsþættirnir sem byggðu á
sögunni komu út árið 1976 og
nautu meðal annars mikilla vin-
sælda á Íslandi og þjóðin saup
hveljur yfir sukksömu líferni
Rómarkeisarana þegar Ríkissjón-
varpið sýndi þættina. „Fjölskyld-
an græddi nú ekki mikið á þáttun-
um þar sem pabbi hafði selt
sjónvarpsréttinn áður en þættirn-
ir fóru í framleiðslu.“
Í útlegð á Mæjorka
„Faðir minn flutti frá Englandi og
settist að í Deia árið 1929 meðal
annars til þess að flýja kjaftasög-
ur sem fóru á kreik eftir að það
komst upp að hann átti í ástarsam-
bandi við skáldkonuna Lauru
Riding,“ segir Tomas um
búferlafutning föður síns. „Þetta
var mjög erfitt mál sem tók mikið
á föður minn, eiginkonu hans og
ástkonuna sem reyndi að fyrirfara
sér með því að stökkva út um
glugga. Faðir minn skildi við eig-
inkonu sína og fór af landi brott
með Lauru sem vildi fá frið og
ró.“
Graves barðist í fyrri heimsstyrj-
öldinni þar sem hann særðist
alvarlega og náði sér aldrei að
fullu og þekktustu ljóð hans eru
byggð á biturri stríðsreynslunni.
„Hann gerði svo upp við stríðið,
spillingu innan hersins og enskt
samfélag sem hann hafði fengið
sig fullsaddan af í endurminning-
um sínum Goodbye to all that.
Bókin vakti hörð viðbrögð og kost-
aði hann marga vini en hann fór af
landi brott áður en hún kom út og
það má segja að með bókinni hafi
hann kvatt England.“
Tomas segir að lungnaskaði sem
faðir hans varð fyrir í stríðinu hafi
orðið til þess að hann þurfti að
setjast að í heitu loftslagi. „Hann
setti stefnuna á Norður-Spán en
kom við í Frakklandi á leiðinni og
þar benti Gertrude Stein honum á
að Mæjorka væri miklu heppilegri
staður fyrir hann ef hann gæti
þolað fásinnið og þar sem fásinni
var einmitt það sem hann var að
sækjast eftir settist hann að hér í
Deia.“
Graves þurfti að yfirgefa Mæjorka
árið 1936 þegar borgarastyrjöldin
braust út á Spáni og hann átti ekki
afturkvæmt fyrr en eftir seinni
heimsstyrjöldina. Hann hafði þá
skilið við Lauru og tekið saman
við Beryl Hodge, móður Tomasar.
Í fótspor föðurins
Robert Graves hélt sig að mestu á
Mæjorka eftir að hann sneri aftur
að stríðinu loknu enda taldi hann
sig ekki hafa mikið að sækja til
föðurlandsins. Hann var níutíu
ára þegar hann lést í Deia árið
1985 og liggur grafinn við hlið
Beryl í litlum kirkjugarði í hæð-
unum yfir þorpinu.
Tomas hefur fetað í fótspor föður
síns, hefur gefið út þrjár skáld-
sögur og lifir rólegu lífi á Mæjorka
þar sem hann skrifar, málar og
semur tónlist.
thorarinn@frettabladid.is
Húsið sem Kládíus byggði
HÚS SKÁLDSINS Bæjarbúar eru rígmontnir af Robert Graves sem eyddi drjúgum hluta ævi
sinnar í Deia og hafa nú gert hús hans að safni en afkomendur skáldsins lögðu áherslu á
að gengið yrði frá húsinu eins og rithöfundurinn skildi við það.
TOMAS GRAVES Fæddist á Mæjorka og ólst upp í húsinu sem faðir hans byggði fyrir pen-
ingana sem sögulega skáldsagan Ég, Kládíus aflaði honum.