Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 14
ÞÓRA KARÍTAS
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR14
Þóra Karítas er með
B.A. gráðu í guðfræði
og starfaði meðfram
náminu við sjónvarps-
þætti á SkjáEinum.
Nú er hún nýkomin
heim úr leiklistarnámi í
London en heldur þang-
að aftur á næstunni til
að reyna fyrir sér í leik-
listinni. Sigríður Hjálm-
arsdóttir átti samtal við
Þóru, þar sem hún segir
meðal annars frá ævin-
týrum sínum í London.
Ég komst að því fyrir tilviljun að ég er með breskt vega-bréf af því að allir þeir sem
eru fæddir í Bretlandi fyrir árið
1981 eru sjálfkrafa breskir ríkis-
borgarar og ég er einmitt ein
þeirra. Eftir þá uppgötvun sagði
ég upp vinnunni og sagðist vera
farin til London í leiklistarnám.
Það hefur verið draumur sem mig
hefur alltaf langað til að láta ræt-
ast,“ segir Þóra en hún byrjaði á
að fara á tungumálanámskeið í
Cambridge þar sem hún var hálf-
smeyk við enskuna til að byrja
með. „Síðan sótti ég um skóla og
það gekk sem betur fer bara vel.
Þetta var allt saman svo mikil
heppni að mér fannst bara eins og
þetta væri eitthvað sem ætti að
gerast.“
Þóra fékk inngöngu í Webber
Douglas Academy of Dramatic Art
en þar fer mjög gott orð af íslensk-
um nemendum. Meðal þeirra sem
lokið hafa námi þaðan eru þekktar
leikkonur eins og Þórunn Lárus-
dóttir, Þórunn Clausen og Álfrún
Örnólfsdóttir. „Nú er því miður búið
að loka skólanum en ég var í síðasta
árganginum sem var útskrifaður.
Það var rosalega skrítið að vera í
síðasta hópnum. Við vorum náttúru-
lega mjög fá og það var rosalega vel
hlúð að okkur. Síðan þegar útskrift-
in var þá voru allir saman í partíi,“
segir Þóra og hlær. „Það mátti sjá
skólastjórann og alla kennarana
dansa uppi á sviði um miðja nótt.
Síðan brutumst við inn í leikhúsið
aftur af því að við vissum að það
átti bara eftir að brjóta hann niður
hvort eð var. Þannig að þetta var
alveg frábært.“
Opin fyrir öllu
Þóra gerir stuttan stans hér á landi
því hún fer aftur út í lok mánaðar-
ins. Hún útskrifaðist fyrir þremur
vikum og ákvað að koma aðeins
heim til að draga andann, eins og
hún orðar það. „Annars er ég opin
fyrir öllu ef einhver hefur
skemmtilegt hlutverk handa mér,
enda snýst þetta bara um það,“
segir Þóra og bætir við: „Daginn
áður en ég fór heim þá höfðu tveir
umboðsmenn samband við mig og
vildu gera við mig samning. Ég
ætla að hitta þá um leið og ég kem
út aftur og gera síðan upp við mig
hvorn ég vil gera samning við.
Mig langar að vera í harkinu í
London í einhvern tíma, meðal
annars vegna þess að mig langar
að búa þar lengur.“
Þóra segist hafa verið ótrúlega
heppin með skólafélaga í leiklist-
arnáminu. „Við vorum sex stelpur
saman í bekk og tengdumst alveg
rosalega vel. Fjórar þeirra komu
meira að segja með mér hingað til
Íslands um verslunarmannahelg-
ina í fyrra. Við fórum í Bláa lónið,
á hestbak, bak við Seljalandsfoss
og að sjálfsögðu á djammið. Þetta
var alveg æðisleg ferð hjá okkur.
Það er mjög misjafnt hvað bekkir
mynda mikil tengsl en minn bekk-
ur varð ofboðslega samheldinn.
Krakkarnir sögðust meira að segja
ætla að sækja mig í þyrlu ef ég
festist hér heima,“ segir Þóra
brosandi og bætir því við að það sé
frábært að eiga svona samfélag
þarna úti sem sé eins og lítil fjöl-
skylda.
Lærði að anda
Að sögn Þóru er það ótrúleg þjálf-
un að fara í leiklistarnám. „Þegar
maður byrjar finnst manni maður
ekki kunna neitt af því það er byrj-
að á að kenna manni alla hluti upp
á nýtt. Okkur var kennt að labba
upp á nýtt, tala og meira að segja
að anda, sem við töldum okkur nú
kunna nokkuð vel. Það var reynd-
ar dálítil glíma til að byrja með að
ná enskunni almennilega þar sem
hún er náttúrulega ekki mitt fyrsta
tungumál.“
Eitt af því sem nemendurnir
þurftu að læra var sviðsbardagi
með æfingasverðum. „Ég átti að
taka próf í því ásamt vini mínum
sem hafði fótbrotnað og þess
vegna frestaðist alltaf prófið hjá
okkur. Við ákváðum síðan að hitt-
ast bara utan skólans til að æfa
okkur og fórum í almenningsgarð
skammt frá heimili hans. Atriðið
sem við áttum að æfa var úr mynd-
inni War of the Roses. Atriðið var
með hjónaerjum og bardaga milli
hjónanna. Við vorum náttúrlega
ægilega metnaðargjörn við æfing-
arnar og börðumst eins og ljón
með æfingasverðunum okkar í
garðinum. Síðan tókum við okkur
pásu, lögðumst í grasið og duttum
í djúpar samræður. Þegar við
litum upp úr samræðunum sáum
við fimm vopnaða lögreglumenn
með tvo lögguhunda, standandi
yfir okkur. Þeir höfðu fengið útkall
í garðinn vegna árásar á unga
konu. Þarna lágum við með sverð-
in okkar og máttum gjöra svo vel
að útskýra fyrir þeim að þetta
væri nú ekki alvöru bardagi held-
ur værum við að æfa okkur fyrir
próf í leiklist. Það fór svo þannig á
endanum að þeir trúðu okkur enda
sáu þeir að við vorum ekkert með
alvöru sverð. Við sáum að við
værum alveg örugglega tilbúin
fyrir prófið fyrst þetta var svona
sannfærandi hjá okkur,“ segir
Þóra og hlær að þessarri fárán-
legu uppákomu.
Vingaðist við betlara
Þóra Karítas lærði guðfræði í
Háskóla Íslands áður en hún hélt
út í leiklistina og má velta því
fyrir sér hvort þessi tvö áhuga-
svið eigi eitthvað sammerkt. „Það
má segja að það hafi verið af
nákvæmlega sama áhuga sem ég
fór í guðfræðina og leiklistina,“
útskýrir Þóra. „Það er vegna þess
að það sem heillar mig er glíman
við lífið. Mannlegur áhugi. Ég
lendi oft í því þegar ég sit á kaffi-
húsi eins og núna að ég fæ rosa-
legan áhuga á einhverri ákveðinni
manneskju sem ég sé og langar
bara alveg rosalega að kynnast
henni. Meira að segja langar mig
jafnvel til að prófa að vera hún.
Þar má segja að leiklistin komi inn
í þetta.“
Vegna þessa mikla áhuga á
fólki segir Þóra að það hafi veitt
henni gríðarlegan innblástur að
koma til London því þar er svo
ótrúlegt litróf af fólki og margt
sem ekki sést hér á landi. „Fyrsta
manneskjan sem heillaði mig sér-
staklega í Notting Hill var betlari
sem sat alltaf á sama stað í hverf-
inu. Smám saman fór ég aðeins að
kynnast honum því ég spjallaði
svo oft við hann þegar ég labbaði
framhjá honum. Þá kom í ljós að
hann átti sér alveg stórmerkilega
sögu. Hann hafði búið í stóru húsi
í Notting Hill, sem er eitt ríkasta
hverfið í London. Þegar konan
hans féll síðan frá þá tókst honum
ekki að höndla sorgina betur en
svo að hann er búinn að missa
aleiguna og býr núna á götunni í
poka, eða eitthvað. Hann hafði
verið þekktur ballettdansari og
dansað í öllum stærstu leikhúsun-
um í London. Ég leitaði meira að
segja stundum til hans þegar ég
var stressuð fyrir einhverjar sýn-
ingar í skólanum því hann var svo
rosalega sviðsvanur að hann gat
leiðbeint mér með það hvernig ég
ætti að ná að slaka á fyrir sýning-
arnar. Fólk kemur manni svo oft á
óvart þegar maður fer að spjalla
við það og á sér jafnvel hina ótrú-
legustu sögu.“
Fjölbreytt áhugasvið
Þóra segir drauminn í dag vera að
rækta með sér það sem hún hefur
verið að byggja upp síðustu tvö
árin. „Það væri frábært að komast
í þá aðstöðu að geta tekið að mér
fjölbreytt og spennandi verkefni.
Ég hef bæði áhuga á að vera í kvik-
myndum og á leiksviði en líka að
skrifa, sem ég held að bjargi mér
dálítið af því maður veit aldrei
hvað gerist í þessu fagi. Kannski
koma sex mánuðir þar sem ekkert
er að gera og síðan aðrir tímar þar
sem úr nógu er að moða. Það er
kannski ein ástæðan fyrir því að
það tók mig svo langan tíma að
ákveða að ég vildi gera þetta af
því að ég vildi vera viss um hvað
ég væri að fara út í. Maður veit
aldrei hvað gerist í lífinu og núna
held ég að það gildi mest að vera
opin fyrir öllu. Kannski kem ég
bara til með að búa á mörgum
stöðum í framtíðinni enda er heim-
urinn orðinn svo lítill að það er
ekkert svo mikið mál. ■
Glíman við lífið heillar
„Þegar við litum upp úr
samræðunum sáum við fimm
vopnaða lögreglumenn með
tvo lögguhunda, standandi yfir
okkur.“
Útskrifaður leikari frá Webber
Douglas Academy of Dramatic Art.
B.A. í guðfræði frá Háskóla
Íslands.
Stúdent úr stærðfræðideild
Menntaskólans í Reykjavík.
Hjartsláttur á ferð og flugi.
Hjartsláttur í strætó.
Hjartsláttur.
Háskólaþátturinn Pensúm.
Skrifta í kvikmyndinni Kaldaljós.
FJALLKONAN FRÍÐ Þóra var fengin til að
vera fjallkona á 17. júní hátíðahöldunum í
sumar og var hæstánægð með hlutverkið.
KOM HEIM TIL AÐ ANDA Það eru þrjár vikur síðan Þóra útskrifaðist úr leiklistinni í London
og ákvað að koma heim í nokkra daga til að ná andanum eftir stíft nám. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HJARTSLÁTTUR Stöllurnar Þóra Karítas og Maríkó Margrét sáu um þáttinn Hjartslátt tvo
vetur í röð á SkjáEinum. Fyrst var Hjartsláttur í strætó og síðan Hjartsláttur á ferð og flugi.