Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 72
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
FÓTBOLTI Samuel Eto`o, sóknar-
maður Barcelona og Kamerún,
hefur tekið upp gælunafnið
„Blondie“ (Ljóska) á Eið Smára
Guðjohnsen, félaga sinn í fram-
línu spænska stórliðsins. Eto´o
greindi frá þessu í samtali við
spænska vefmiðil þegar hann var
spurður út í nýjustu liðsmenn
félagsins, þá Eið Smára, Lilian
Thuram og Gianluca Zambrotta.
„Ég hlakka mikið til að spila við
hlið hans og tel að við eigum eftir
að mynda mjög hættulegt sóknar-
par,“ sagði Eto`o aukinheldur um
íslenska landsliðsfyrirliðann.
Eto`o hafði heldur ekkert nema
gott að segja um Thuram og
Zambrotta en hrósaði þó mest
þeim leikmönnum sem spiluðu
fyrir aftan hann á síðustu leiktíð.
„Ronaldinho er einfaldlega bestur
en Xavi er besti miðjumaður í
heimi. Sá næstbesti í heimi er
Iniesta, aðrir standa þeim langt að
baki. Messi er snillingur með
vöðva, sá besti sem ég hef séð á
þessum aldri. Með þessa leikmenn
í liðinu erum við ekki langt frá því
að vera óstöðvandi,“ sagði Eto`o,
greinilega handviss um að hann sé
í besta liði í heimi. - vig
Samuel Eto`o leikmaður Barcelona:
Kallar Eið Smára „Blondie“
Á ÆFINGU Samuel Eto’o og Eiður Smári
Guðjohnsen. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
ÚRSLIT
10 KM HLAUP KVENNA
JÓHANNA SKÚLADÓTTIR ÓLAFS 39,24
GERÐUR RÚN GUÐLAUGSDÓTTIR 41,25
HELEN ÓLAFSDÓTTIR 45,37
10 KM HLAUP KARLA
STEFÁN GUÐMUNDSSON 34,45
BURKNI HELGASON 35,09
VALUR ÞÓRSSON 36,28
HÁLFMARAÞON KVENNA
NICOLA DEGAUDENZ, ÍTALÍU 1:29,58
VERONIKA BJARNADÓTTIR 1:32,03
JULITTA BOSCHMAN 1:33,14
HÁLFMARAÞON KARLA
MICHAEL PIETER WORDEN, HOLL. 1:15,28
BIRGIR SÆVARSSON 1:19,10
JORGE M. MATEO, SPÁNI 1:19,36
MARAÞON KVENNA
NATHALIE FREYLING, FRAKKL. 3:34,31
JENNIFER ISAACS, KANADA 3:34,54
CAROLINE NUSSER, BNA 3:35,13
MARAÞON KARLA
JIRI WALLENFELS, TÉKKLANDI 2:33,27
MANS HOIOM, SVÍÞJÓÐ 2:38,42
GARY CHANDLER, BRETLANDI 2:42,19
HLAUP Metþátttaka var í Reykjavík-
urmaraþoninu sem fór fram í gær.
Alls voru 10.192 hlauparar skráðir
til leiks, og hefur þeim fjölgað um
meira en sex þúsund manns frá því
í fyrra. Boðið var upp á nýja vega-
lengd, 1,5 km hlaup, sem var fyrst
og fremst hugsað fyrir yngri kyn-
slóðina enda hét sá hluti „Latabæj-
arhlaup“ en alls voru 4.416 skráðir í
það.
Í ár hlupu samtals 963 heilt mar-
aþon og fyrstur kom í mark Tékkinn
Jiri Wallenfels á 2.33:27 klukku-
stundum. Fyrsti Íslendingurinn sem
kom í mark var Stefán Viðar Sig-
tryggsson sem lauk hlaupinu tut-
tugu mínútum á eftir Wallenfels.
Hollendingurinn Michael Pieter
Woerden kom fyrstur í mark í hálf-
maraþoni en hann hljóp á 1.15:28
klukkustundum. Í 10 km hlaupi varð
fyrstur Stefán Guðmundsson á
34:46 mínútum. - esá
JÓNSI VINSÆLL Jón Jósep Sæbjörnsson
ræðir við krakkana fyrir Latabæjarhlaupið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Reykjavíkurmaraþonið fór fram í gær:
Tékkinn Wallenfels
kom fyrstur í mark
JIRI WALLENFELS Kom fyrstur í mark í maraþoninu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Háaleitisbraut 68 • Sími 568 4240
• Fimleikabolir
• Tátiljur
• Skautakjólar
• Dansskór
• o.m.fl.
Flottar jazz- og ballettvörur
í miklu úrvali
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI