Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 69
Á toppnum í 22 vikur
Andri Snær Magnason
Draumalandið eftir Andra Snæ
Magnason hefur setið óslitið á
toppi metsölulista PE frá útkomu
í mars.
7. prentun er komin í verslanir og
hefur bókin þá verið prentuð í
14 þúsund eintökum.
edda.is
„Þessi bók á erindi við okkur öll á Íslandi, hvaða skoðun sem við
kunnum að hafa á því hvernig atvinnuvegum okkar skal háttað.
Draumalandið hans Andra Snæs vekur til umhugsunar með því
að segja okkur ýmislegt sem við vissum ekki og höfum því ekki
haft tök á að hugleiða og ræða opinskátt.“
– Vigdís Finnbogadóttir
„Allt það sem stjórnvöld vildu að þú fengir ekki vita,
færðu að vita í þessari bók. “
– Bubbi Morthens
„XXXX - Snilld! “
– Dr. Gunni (this.is/drgunni)
„Sjaldan hef ég lesið bók sem hefur snert mig jafn sterkt.
Hún er vel skrifuð, full af fróðleik, en jafnframt magnaðri kímni. “
– Þorkell Sigurlaugsson, Viðskiptablaðið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ungstirnið Christina Aguilera hefur ákveðið að héðan af vilji hún
vera kölluð „Baby Jane“. Söngkonan
hefur skipt snarlega um ímynd, sagt
skilið við leðurfötin og líkamslokka
sem áður voru hennar ær og kýr, og
tekið upp alvarlegra yfirbragð sem
minnir helst á sjötta áratug síðustu
aldar. Áður vildi Christina vera kölluð
„Xtina“ en söngkonan telur
gamla viðurnefnið ekki
henta fyrir nýju plötuna
sína. Enfremur leggur
Christina mikla áherslu
á að fólk noti nýja nafn-
ið hennar, enda sé hún
ný og breytt manneskja.
Christina Aguilera hefur einnig
talað vel um
gamla keppinautinn sinn,
Britney Spears, en eins
og margir muna and-
aði köldu á milli
stallsystranna
um nokkurn
tíma. Haft
hefur verið
eftir Cristinu
að henni þyki
Britney vera
á sérstökum
stað í lífi sínu núna. „Hún
er móðir og mér finnst
það alveg frábært,“ sagði
Christina.
Ekki fer fyrir efa-semdum um
eigin hæfni hjá
Paris Hilton sem
er sannfærð um
að tónlistar-
hæfileikar sínir
eigi eftir að vinna hug og
hjörtu heimsins. „Ég
get skilið fordóma fólks
en tónlistin talar fyrir
sig,“ sagði Paris Hilton
í samtali við dagblaðið
The Chicago Tribune.
Hún segist þekkja inn
á tónlistina og vita þess
vegna að nýja platan
hennar eigi eftir að slá í
gegn.