Fréttablaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 70
30 20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
9. HVER VINNUR.
FRUMSÝND 18. ÁGÚST
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA FLW Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UN
NIÐ!
VINNINGAR ERU:
BÍÓMIÐAR FYRIR TVO
• DVD MYNDIR
VARNINGUR TENGDUR
MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA
V
in
n
in
ga
r
ve
rð
a
af
h
en
di
r
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t
er
tu
k
om
in
n
í
S
M
S
kl
ú
bb
.
99
k
r/
sk
ey
ti
ð.
Víkingur eða KR? Í dag er það
Víkingur.
Jeff Who eða Bubbi? Bubbi er
kóngurinn.
Maggi Gylfa er... nettur.
Vesturbærinn er... west is the
best.
Fótboltasögur eru... mjög góðar.
Skólinn er... aukafrí frá vinnu.
Hverjir verða Englandsmeistarar?
United, mitt lið.
Uppáhalds skyndibiti? Búlluborgarinn.
Hvernig fer gegn Val? 3-0 fyrir okkur.
Hver er mesti húmoristinn í Víkingi?
Andri Gunnars.
Hver er besti leikmaður heims? Hef
alltaf verið hrifnastur af Zidane.
Hvenær kemst landsliðið á stórmót?
Það verður seint.
MEÐ JÖKLI
ELÍSABETARSYNI
> Ísland féll niður í B-deild
Íslenska U16 landslið pilta í körfubolta
féll úr A-deild Evrópumótsins gær þegar
það tapaði fyrir Portúgölum með 84
stigum gegn 70 á mótinu sem fram fer á
Spáni. Örn Sigurðarson var stigahæstur
íslenska liðsins í leiknum með tuttugu
stig og níu fráköst. Pétur Jakobsson
skoraði 16 stig og Snorri Sigurðsson 13.
Samkvæmt heimasíðu KKÍ voru það
vítaskotin sem voru banabiti strákanna
í leiknum í gær
en þeir töp-
uðu öllum
leikjum
sínum á
mótinu.
Síðasti leikur Jökuls
Jökull Ingi Elísabetarson, miðjumaður
Víkings, er á leið út til Bandaríkjanna
og mun leikurinn gegn Val í kvöld því
verða hans síðasti leikur fyrir félagið í
bili. Hann hefur leikið alla þrettán leiki
liðsins í Landsbankadeildinni í sumar og
skorað eitt mark.
60
SEKÚNDUR
FÓTBOLTI „Þetta fór alls ekki vel og
alls ekki eins og við ætluðum okkur.
Liðið var búið að undirbúa sig gríð-
arlega vel og svo lendum við í því
að fá á okkur mark strax í byrjun.
Við náðum að koma til baka eftir
það og þá hélt ég að við næðum að
koma okkur betur inn í leikinn. Mér
fannst við sterkari í fyrri hálfleik
en svo jafna þær með einstaklings-
framtaki og voru mun sterkari í
seinni hálfleik,“ sagði Jörundur Áki
Sveinsson, þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins eftir að það tapaði 2-4
fyrir Tékklandi í gær.
Leikurinn fór fram á Laugar-
dalsvellinum og var hluti af undan-
keppni fyrir heimsmeistaramótið
2007. Leikið er í riðlum en eftir
þetta tap er ljóst að íslenska liðið á
ekki möguleika á því að komast í
lokakeppni HM á næsta ári. „Varn-
arleikur liðsins var í molum og við
vörðumst engan veginn eins og við
lögðum upp með. Við þurfum að
gera mun betur en þetta ef við
ætlum ekki að fá skell gegn Svíþjóð
um næstu helgi. Við þurfum að verj-
ast vel gegn þeim sænsku því þær
hafa mun sterkara lið en þetta sem
við vorum að mæta í dag,“ sagði
Jörundur eftir leikinn í gær.
Tékkneska liðið komst yfir strax
á fyrstu mínútu eftir hornspyrnu en
markið var mjög slysalegt. Íslenska
liðið var ekki lengi að jafna sig á
þessu og Ásthildur Helgadóttir
jafnaði með hnitmiðuðum skalla
eftir góða aukaspyrnu Guðrúnar
Gunnarsdóttur. Margrét Lára Við-
arsdóttir átti stangarskot áður en
hún náði að koma Íslandi 2-1 yfir
með marki af stuttu færi á 35. mín-
útu. En stuttu eftir markið jafnaði
besti leikmaður Tékklands, Pavlina
Scasna, með skoti fyrir utan teig.
„Viljinn og baráttan var þeirra
megin og það gerði gæfumuninn,“
sagði Jörundur en Tékkar skoruðu
eina markið í viðureign liðanna
ytra. Tékkland var betra liðið í síð-
ari hálfleiknum í gær og tók for-
ystuna á 59. mínútu og eftir gott
samspil barst boltinn á Alexöndru
Mouchova sem renndi knettinum í
netið. Rúmum tuttugu mínútum
fyrir leikslok braut Málfríður Erna
Sigurðardóttir klaufalega af sér
innan teigs og réttilega var dæmd
vítaspyrna en Þóra B. Helgadóttir
varði glæsilega í markinu.
Stuttu síðar innsigluðu gestirnir
sigur sinn þegar boltinn lak inn
eftir hornspyrnu en það var sjálfs-
mark Katrínar Jónsdóttur. Fleiri
urðu mörkin ekki þrátt fyrir að
Ísland hafi klárlega átt að fá víta-
spyrnu á lokakaflanum en ekkert
var dæmt. Tékkland vann 4-2 og
ljóst að ýmislegt þarf að bæta fyrir
síðasta leik Íslands í riðlinum. sem
er gegn Svíþjóð eftir tæpa viku.
„Við eigum erfitt verkefni fyrir
höndum og ég vona svo sannarlega
að við náum að nýta vikuna og laga
það sem miður fór í þessum leik,“
sagði Jörundur Áki.
elvargeir@frettabladid.is
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR Skoraði jöfnunarmark Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Varnarleikurinn í molum
Í gær fauk draumur íslenska kvennalandsliðsins um að komast í lokakeppni
heimsmeistaramótsins út í veður og vind þegar það tapaði gegn Tékklandi.
FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir,
fyrirliði íslenska liðsins, var
hundsvekkt eftir leikinn í gær.
„Það er erfitt að fá á sig fjögur
mörk á heimavelli, þá er nánast
vonlaust að vinna leikinn. Fyrsta
markið sem við fengum á okkur
var furðulegt en við náðum að
snúa þessu okkur í hag en svo
breyttist allt. Mörkin sem við
fengum á okkur voru í ódýrari
kantinum,“ sagði Ásthildur.
„Við spiluðum ágætlega í fyrri
hálfleik og sóttum ágætlega upp
vængina. Af einhverjum ástæðum
sást það hins vegar ekki í seinni
hálfleik. Það þarf aldeilis að laga
varnarleikinn fyrir Svíaleikinn. Tékkneska liðið var mun betra en
við í þessum leik en með fullri
virðingu fyrir þeim er Svíþjóð
með mun sterkara lið. Það er því
margt sem þarf að laga.“
Eftir úrslitin er ljóst að sá
draumur íslenska liðsins að kom-
ast í lokakeppni HM er horfinn.
„Þetta er ansi svekkjandi, sérstak-
lega fyrir okkur eldri sem höfum
lengi átt þann draum að komast á
stórmót. Við höfum oft verið
nálægt því og það á einnig við um
þetta skipti,“ sagði Ásthildur en
hún hlakkar þó til að mæta Sví-
þjóð næstkomandi laugardag. „Ég
á góða félaga í sænska liðinu og
það verður óneitanlega gaman að
fá þær í heimsókn.“ - egm
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Var óánægð
með leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði Íslands, var svekkt eftir tapið gegn Tékkum:
Það er margt sem þarf að laga