Fréttablaðið - 20.08.2006, Qupperneq 8
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR
��������������������������
�������������������������
�����������������������������������������������
�������������
��� ����������������������������������
���������������������������������������
����������������������������������������
����������������
�������������������������������
�������������������������������������
�������������������������� ���������������
��������������������������������������������
�������������������������������
��������������������������������������
����������
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
IC
E
3
3
8
2
3
0
8
/2
0
0
6
STYRKIR VERÐA VEITTIR TIL BARNA Á ALDRINUM 6-16 ÁRA
Ferðasjóður Vildarbarna er sameiginlegt átak Icelandair og
viðskiptavina félagsins til að gera langveikum börnum og fjölskyldum
þeirra, og börnum sem búa við sérstakar aðstæður vegna veikinda,
kleift að ferðast. Ferðasjóður Vildarbarna hefur gert 80 börnum og
fjölskyldum þeirra kleift að fara í ógleymanlega og uppbyggjandi
fjölskylduferð. Landsbankinn annast fjárhald sjóðsins.
Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir.
+ Umsóknareyðublöð eru á www.vildarborn.is
Umsóknarfrestur er til 1. september 2006. Úthlutað verður úr sjóðnum fyrsta vetrardag, 21. október 2006.
UMSÓKNIR UM FERÐASTYRKI VILDARBARNA ICELANDAIR
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
REYKJAVÍK
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFNOSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
STJÓRNMÁL
„Mér finnst
umræðan hafa
verið einsleit,
okkar rök hafa
ekki komist
upp á borðið,“
segir Þorbjörg
Helga Vigfús-
dóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, um
umræðu vegna stofnunar nýs leik-
skólaráðs.
„Rök okkar eru fyrst og fremst
þau að þjónusta við yngstu börnin
í borginni hefur ekki verið nógu
góð. Það var ákveðið að kljúfa
menntaráð til þess að koma þess-
um mikilvægu verkefnum hraðar
og öruggar í framkvæmd.“ Hún
segist harma að Kennarasamband-
ið skuli ekki líta á þetta sem fag-
leg rök. „Við verðum að lokum
dæmd af verkum okkar en ekki
stjórnskipulagi.“ - sþs
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir:
Segir umræðu
vera einsleita
HAVANA, AP Raúl Castro, starfandi
forseti og varnarmálaráðherra
Kúbu, lét þau orð falla í viðtali við
kúbverska dagblaðið Granma að
hann vildi koma á „eðlilegu sam-
bandi“ við Bandaríkin. Raúl tók þó
fram að Bandaríkjunum yrði ekk-
ert ágengt í viðskiptum sínum við
Kúbu með áframhaldandi „hroka-
fullri og afskiptasamri“ utanríkis-
pólitík.
Varnarmálaráðherrann sagðist
einnig hafa sett lið tugþúsunda
hermanna í viðbragðsstöðu vegna
þess að Bandaríkjaþing veitti kúb-
verskum útlögum á Miami 80
milljóna dollara fjárveitingu „til
þess að stuðla að lýðræði“ á Kúbu,
eftir að upp komst um veikindi
Fidels Castro. - kóþ
Raúl Castro í viðtali á Kúbu:
Betri samskipti við Bandaríkin
RAÚL CASTRO Býður Bandaríkjunum til vin-
samlegra viðræðna „á jafnréttisgrundvelli“.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÖNNUN Hlutfall þeirra sem trúa á
þróunarkenninguna er hæst á
Íslandi samkvæmt skoðanakönnun
sem kannaði viðhorf fólks í 32 Evr-
ópulöndum ásamt Bandaríkjunum
og Japan. Fólkið var beðið um að
játa eða neita fullyrðingunni
„Menn, eins og við þekkjum þá,
þróuðust út frá eldri dýrategund“.
85 prósent Íslendinga sem svör-
uðu sögðu já en íbúar Bandaríkj-
anna trúa næstminnst þjóðanna á
þróunarkenninguna því þriðjung-
ur Bandaríkjamanna svaraði full-
yrðingunni neitandi. Aðeins Tyrk-
ir voru meiri efasemdamenn um
kenninguna. Norðurlöndin, Frakk-
land, Japan og Bretland komu
næst á eftir Íslandi en Kýpur og
lönd Austur-Evrópu komu í kjöl-
far Bandaríkjamanna. Könnunin
birtist í tímaritinu Science 11.
ágúst síðastliðinn. -rsg
Þróunarkenningin:
Trúum mest
ÞORBJÖRG HELGA
DANMÖRK Framtíð Nyhedsavisen,
fríblaðs Dagsbrúnar í Danmörku
er ekki björt ef marka má fullyrð-
ingar danskra sérfræðinga um
framtíð blaðsins í dönskum fjöl-
miðlum. En fréttir af stofnun sér-
staks sjóðs um fjármögnun blaðs-
ins og slæmri afkomu Dagsbrúnar
voru áberandi í dönskum fjölmiðl-
um í gær.
Viðmælendur dagblaðsins Pol-
itiken telja fullvíst að blaðið muni
aldrei koma út og annar segir fjár-
hagsstöðu Dagsbrúnar mjög
slæma. Eins kemur fram að traust
auglýsenda á blaðið hafi beðið
hnekki. Forsvarsmenn Nyhedsa-
visen gera hins vegar lítið úr mál-
inu og segja forsendur þær sömu
og áður og nægt fjármagn fáist til
að reka blaðið.
Ritstjóri blaðsins viðurkennir
þó að hann hefði kosið að segja frá
stofnun sjóðsins á annan hátt.
Hann telur að umfjöllun annarra
dagblaða sé blaðinu ekki hliðholl
eins og búast mátti við.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnar-
formaður Dagsbrúnar, greindi frá
því að Baugur myndi ábyrgjast
fjármögnun sjóðsins ef nægt fjár-
magn fengist ekki hjá öðrum fjár-
festum. -ks
Efast um framtíð Nyhedsavisen í dönskum fjölmiðlum:
Traust á Nyhedsavisen
sagt hafa beðið hnekki
KAUPMANNAHÖFN Starfsfólk Nyhedsavis-
en að setja saman skrifborð sín á skrifstof-
um blaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/KS