Fréttablaðið - 20.08.2006, Side 12
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangiðtimamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða hringja
í síma 550 5000.
MREKISATBURÐIR
1000 Ungverska ríkið er stofnað
af Stephan I.
1889 Verkamenn loka höfninni í
London.
1898 Valhöll á Þingvöllum er vígð
og er nafnið dregið af búð
Snorra Sturlusonar sem
stóð þar skammt frá.
1914 Þýski herinn nær Brussel á
sitt vald í fyrri heimsstyrj-
öldinni.
1960 Senegal lýsir yfir sjálfstæði.
1973 Forseti Íslands fær afhentan
tunglstein sem kom með
geimferjunni Apollo 17 árið
áður.
1975 Viking 1 geimskutlunni er
skotið af stað til Mars og
lendir þar tæpu ári síðar.
1982 Halldóra Filippusdóttir klífur
Eldey fyrst kvenna en alls
klifu átján manns eyjuna
þennan dag.
RAJIV GANDHI (1944-1991) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Hún var ekki bara móðir mín heldur móðir
allrar þjóðarinnar. Hún þjónaði indversku
þjóðinni allt til síðasta blóðdropa.“
Rajiv Gandhi tók við af móður sinni, Indiru Gandhi, sem
forsætisráðherra Indlands.
Byltingamaðurinn Lev Davidovich
Bronshtein fæddist árið 1879 í Úkraínu
sem þá tilheyrði Rússneska keisara-
dæminu. Hann kynntist marxisma
ungur að aldri og starfaði við neðan-
jarðarhreyfingar. Tæplega tvítugur að
aldri var hann handtekinn fyrir að vinna
fyrir byltingarmenn og var sendur í
fjögurra og hálfs árs fangelsi og útlegð
til Síberíu. Hann flúði fjórum árum síðar
með falsað vegabréf undir nafninu Trot-
sky og fór til London þar sem hann gekk til liðs við
hreyfingu sem vildi koma á fót lýðræðislegum sósí-
alisma. Trotsky var aftur sendur í fangavist árið 1906
og tókst á nýjan leik að flýja frá útlegð í Síberíu.
Hann ferðaðist þá víða um heim en sneri síðan
aftur til Rússlands árið 1917 og gekk til liðs við
bolsévika. Trotsky stjórnaði byltingarmönnum í
októberbyltingunni árið 1917 í Rússlandi þar sem
bolsévikar náðu völdum. Eftir byltinguna
varð borgarastyrjöld í landinu milli rauðliða
og hvítliða sem lauk með sigri rauðliða
undir forystu Leníns og Trotskys þremur
árum síðar.
Í maí árið 1922 fékk Lenín heilablóðfall
sem dró mjög úr starfsgetu hans og var
hann að mestu rúmfastur til dauðadags,
21. janúar 1924. Við veikindi Leníns komu
upp deilur um hver ætti að verða eftirmað-
ur hans en valið stóð á milli Trotskys og
Stalíns.
Það var síðan Stalín sem tók við völdum eftir
dauða Leníns og Trotsky missti smátt og smátt völd
sín og var að lokum sendur í útlegð árið 1928. Á
næstu árum bjó Trotsky meðal annars í Tyrklandi,
Frakklandi og Noregi en flutti svo til Mexíkó árið
1936 þar sem hann var myrtur af útsendurum
Stalíns fjórum árum síðar.
ÞETTA GERÐIST 20. ÁGÚST 1940
Leon Trotsky er tekinn af lífi
Elísabet Sveinsdóttir er nýr
formaður Ímark, Félags
íslensks markaðsfólks, en
félagið á tuttugu ára afmæli
í ár. Elísabet er forstöðu-
maður á markaðs- og sölu-
sviði hjá Glitni. „Gömul saga
segir frá forstjóra Coke í
Bandaríkjunum sem var
spurður hvers vegna fyrir-
tækið þyrfti að auglýsa, það
væri jú alltaf nóg keypt af
kókinu. En forstjórinn svar-
aði þá; hvers vegna að
slökkva á hreyflunum á
flugvélinni þegar hún er
búin að ná fullri lofthæð?
Fyrirtæki þurfa sífellt að
minna á sig,“ segir Elísabet.
„Ímark er ekki stéttarfé-
lag. Félagið stendur fyrir
ýmsum viðburðum og ráð-
stefnum til að hvetja og
hjálpa markaðsfólki til að
fylgjast með því nýjasta sem
er að gerast í markaðsmál-
um. Svo reynum við að fá fyr-
irtæki til að viðurkenna að
markaðsmálin eru svo stór og
nauðsynlegur hluti af starfi
fyrirtækja,“ segir Elísabet.
Haldið var upp á afmæli
félagsins með mikilli hátíð í
vor en það sem eftir er árs
verða fleiri glæsilegar
uppákomur á vegum félags-
ins.
„Í Ímarki er fólk sem
hefur áhuga á að starfa við
markaðsmál, bæði fólk í
markaðsstjórn fyrirtækja
eins og ég, en einnig fólk á
auglýsingastofum og þeir
sem hafa almennt áhuga á
markaðsmálum,“ segir Elísa-
bet, en stjórnin samanstend-
ur af mjög breiðum hópi
fólks.
Hún hefur starfað hjá
Glitni í sex ár og hefur-
Reykjavíkurmaraþonið sem
fram fór í gær ekki farið
fram hjá henni, en það er
kostað af Glitni. „Innan mark-
aðsdeildar Glitnis hafa nán-
ast allir komið að þessari
vinnu og lagt hönd á plóginn
til þess að gera þetta sem
glæsilegast því þetta er gríð-
arlega umfangsmikið verk-
efni. Að því er ég best veit
hefur þetta ekki verið gert
áður, það er að segja að fyrir-
tæki styrki ekki bara viðburð
heldur kynni hann jafn ítar-
lega og nú er gert,“ segir
Elísabet.
Elísabet lærði markaðs-
fræði í háskóla í Bandaríkj-
unum en hefur einnig lagt
stund á fjölmiðlafræði við
Háskóla Íslands og stundar
nú MBA-nám í Háskóla
Íslands. En hvað er það sem
er svona heillandi við mark-
aðsstörfin? „Þetta er svo lif-
andi og gefandi og býður upp
á svo mikið, þú færð að láta
sköpunarkrafinn njóta sín.
Svo er ákveðin spenna í starf-
inu líka, það er ákveðið „kikk“
í því að vera alltaf í kappi við
tímann,“ segir Elísabet. „Ég
var einu sinni fréttamaður en
þá hreinsaði maður alltaf
borðið. Í þessu starfi hangir
alltaf eitthvað yfir þér,“ segir
hún að lokum. rosag@frettabladid.
Sköpunargleði í markaðsstarfinu
ELÍSABET SVEINSDÓTTIR „Félagið er alltaf að eflast og það er gaman að taka þátt í þessu starfi,“ segir formaður Ímark.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
Guðrún Sigurðardóttir
menntaskólakennari,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
24. ágúst kl. 15.00.
Bryndís Björnsdóttir
Jónas Páll Björnsson Soumia Islami
Sofia Sóley Jónasdóttir
Elías Andri Jónasson
Sigrún Erla Sigurðardóttir Páll Ásmundsson
Svanhildur Ása Sigurðardóttir Björn Björnsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarki Magnússon
læknir, Laugarnesvegi 87,
sem lést á Landspítalanum v/ Hringbraut sunnudaginn
13. ágúst verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju,
mánudaginn 21. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Birna Friðgeirsdóttir
Magnús K. Bjarkason Guðlaug Pálmadóttir
Hólmfríður Bjarkadóttir Páll E. Ólason
Anna Elín Bjarkadóttir
Nanna Snorradóttir Herleifur Halldórsson
Rósbjörg Jónsdóttir
Valgerður G. Bjarkadóttir Orri Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
Logi Jónsson
bókbindari,
sem lést 11. ágúst, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 21. ágúst kl. 13.00.
Bragi Jónsson Ásta Hartmannsdóttir
Unnur Jónsdóttir
og systkinabörn.
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Njarðar Svanssonar
Fellsmúla 15, 108 Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og heimahjúkrun Karitas.
Helga Magnúsdóttir
Elín Margrét
Anil Thapa
Andri Snær
Elías Orri og Helgi Alex Thapa
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Afi okkar,
Kristófer Vilhjámsson
Sniðgötu 3, Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt
fimmtudagsins 10. ágúst, verður jarðsunginn frá
Möðruvallakirkju í Hörgárdal mánudaginn 21. ágúst
kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Hildur Friðleifsdóttir
Kristófer Arnar Einarsson