Fréttablaðið - 20.08.2006, Qupperneq 74
20. ágúst 2006 SUNNUDAGUR34
VARNARLIÐSSALA
GEYMSLUSVÆÐISINS
Sunnudaginn 20. ágúst kl. 15:00
verður hadið uppboð á ýmsum munum frá Varnarliðinu.
Öllum er heimil þátttaka
stólar - innrammaðar landslagsljósmyndir - sófar
stálskápar - gólfmottur - skrifborð - sjónvarpsskápar
kommóður - innrömmuð plagöt - speglar
ný rúm með innbyggðum skúffum
auk þess ýmislegt óvænt og spennandi
Greiðsla við hamarshögg
- tökum öll helstu kreditkort og beinharða peninga
Opið: Fimmtudaga: 12:00 - 21:00Föstudaga og laugardaga: 10:00 - 18:00Sunnudaga: 12:00 - 18:00
UPPBOÐ
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssalan Sigtúni 40
Meðal þess sem boðið verður upp er:
Margar gerðir af ónotuðum og lítið
notuðum stólum, fyrir stofnanir, stofuna,
skrifstofuna eða unglingaherbergið
Glæsileg rúm með innbyggðum skúffum,
tilvalin í unglinga- eða barnaherbergið
•
•
NÝKOMIÐ:
Nýjar vörur í hverri viku - alltaf eitthvað nýtt og spennandi
FÓTBOLTI Jafntefli 1-1 varð niður-
staðan þegar Sheffield United og
Liverpool mættust í gær í fyrsta
leik tímabilsins í ensku úrvals-
deildinni. Lið Sheffield komst upp
úr 1. deildinni á síðasta tímabili og
geta leikmenn þess verið sáttir við
frammistöðu sína í fyrsta leik
félagsins í efstu deild í þrettán ár.
Heimamenn voru meira með bolt-
ann í fyrri hálfleik en gestirnir
komust næst því að skora þegar
markvörðurinn Paddy Kenny
varði aukaspyrnu frá Fabio
Aurelio.
Eftir markalausan fyrri hálf-
leik náði Sheffield United forystu
í upphafi þess síðari þegar Rob
Hulse skoraði fyrsta markið á
tímabilinu. Markið skoraði hann
með skalla eftir aukaspyrnu, en
áðurnefndur Aurelio gleymdi sér í
vörninni og Hulse var einn á
auðum sjó. Vörn Sheffield virkaði
ansi traust og gekk þeim vel að
halda sóknarmönnum Liverpool í
skefjum en athygli vakti að Craig
Bellamy og Robbie Fowler voru í
fremstu víglínu á meðan Peter
Crouch var geymdur á bekknum.
Fowler jafnaði metin með
marki úr öruggri vítaspyrnu sem
dæmd var eftir að Steven Gerrard
var hindraður. Engin snerting átti
sér stað þar sem Gerrard hoppaði
upp úr tæklingunni og skaut síðan
slöku skoti að marki. „Að mínu
mati var þetta klárlega réttur
dómur,“ sagði Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri Liverpool, um
vítaspyrnudóminn. „Við lékum illa
í fyrri hálfleik en vorum betra
liðið í þeim síðari. Þetta er ekki
óskabyrjun á tímabilinu en þessi
keppni er maraþon.“
Varnarmennirnir Jamie Carrag-
her og John Arne Riise hjá Liver-
pool fóru báðir meiddir af velli í
fyrri hálfleiknum. Meiðsli þeirra
eru ekki alvarleg en óvíst er með
þátttöku þeirra í mikilvægum
Evrópuleik gegn Maccabi Haifa á
þriðjudag. Nokkuð ljóst er að
Carragher verður ekki með þá og
mjög ólíklegt er að Riise verði
með. - egm
Enska úrvalsdeildin hófst í hádeginu í gær með leik Sheffield United og Liverpool:
Nýliðar gerðu jafntefli við Liverpool
ROB HULSE Fagnar hér marki sínu í gær
ásamt Danny Webber en markið var það
fyrsta á tímabilinu. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson og
félagar í Reading unnu glæsilegan
3-2 sigur á Middlesbrough í ensku
úrvalsdeildinni í gær, en þeir
höfðu lent 2-0 undir snemma leiks.
Tvö mörk undir lok hálfleiksins,
það síðara eftir undirbúning Ívars
og eitt mark í þeim síðari, tryggðu
liðinu sín fyrstu stig í efstu deild á
Englandi.
Það var mikið um hátíðarhöld
áður en leikurinn hófst enda
Reading aldrei áður leikið í efstu
deild á Englandi, hvað þá úrvals-
deildinni. Byrjunarlið Reading
var þar að auki einungis skipað
leikmönnum sem höfðu aldrei
áður leikið í úrvalsdeildinni með
öðrum liðum en meðal þeirra var
Ívar Ingimarsson. Brynjar Björn
Gunnarsson var á varamannabekk
liðsins en kom inn á undir lok
leiksins.
Stuart Downing og Yakubu
komu Middlesbrough yfir á 9. og
13. mínútu en þeir Dave Kitson,
Steve Sidwell og Leroy Lita björg-
uðu deginum fyrir stuðningsmenn
Reading.
„Knattspyrnustjórar beggja liða
geta gagnrýnt ákveðin atriði í
leiknum en hvað okkur varðar var
það frábært að ná að snúa leiknum
okkur í hag,“ sagði Steve Coppell,
stjóri Reading eftir leikinn.
Tímabilið hjá Blackburn byrj-
aði hins vegar skelfilega en tveir
leikmenn liðsins voru reknir af
velli í 3-0 tapi fyrir Portsmouth
þar sem nýji maðurinn, Kanu,
skoraði tvívegis. Á Emirates
Stadium bjargaði Gilberto Silva
andliti sinna manna í Arsenal með
jöfnunarmarki seint í leiknum
gegn Aston Villa. Var þetta fyrsti
deildarleikur Arsenal á nýjum og
glæsilegum leikvangi.
- esá
Nýliðar Reading hófu úrvalsdeildarferilinn vel:
Ívar lagði upp mark
í glæsilegum sigri
STEVE SIDWELL Skoraði laglegt mark eftir undirbúning Ívars Ingimarssonar.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Kevin Davies og Ivan
Campo sáu um markaskorun
þegar Bolton vann Tottenham
2-0 á heimavelli sínum í lokaleik
gærdagsins á Englandi. Bolton
tók forystuna eftir tæpar tíu
mínútur þegar Davies skoraði
með skalla eftir hornspyrnu frá
Gary Speed. Svo virtist sem
sóknarbrot hefði átt sér stað í
horninu en dómari leiksins
dæmdi markið löglegt.
Campo tvöfaldaði forystuna
með skoti af löngu færi sem
flaug framhjá enska landsliðs-
markverðinum Paul Robinson.
Lið Tottenham var langt frá
sínu besta og getur þakkað
Robinson fyrir að tapið var ekki
stærra. „Bolton hefur líkamlega
sterka leikmenn sem lögðu sig
alla fram í þessum leik. Hvað
okkur varðar þá get ég varla séð
neitt jákvætt við þennan leik,“
sagði Martin Jol, knattspyrnu-
stjóri Tottenham. - egm
Tottenham byrjar tímabilið á afturfótunum:
Öruggur sigur Bolton
KÖRFUBOLTI Bandaríkin spiluðu í
gær sinn fyrsta leik á heims-
meistaramótinu í körfubolta sem
er nýhafið í Japan. Bandaríska
liðið vann þá Puertó Ríkó 111-100
en það var í bullandi vandræðum í
fyrri hálfleik og lenti þá undir í
leiknum. Þegar upp var staðið var
sigurinn þó sanngjarn en Carmelo
Anthony var stigahæstur með 21
stig og þá skoruðu þeir LeBron
James og Kirk Hinrich fimmtán
stig hvor. Chris Paul skoraði ellefu
stig, gaf níu stoðsendingar og stal
fimm boltum.
Meðal annarra úrslita í gær má
nefna að Ítalía vann Kína, 84-69.
- egm
Heimsmeistaramótið í Japan:
Bandaríkin
unnu í gær