Tíminn - 30.07.1978, Side 2

Tíminn - 30.07.1978, Side 2
Sunnudagur 30. júli 1978 Dufgus: fljjj 1 Hægrí og vinstrí HM p T w \ ÉH • - ,;•« 1 v X ?>v oVjinV eru marklaus llSPffl hugtök Siðast liðinn sunnudag hafnaði ég algerlega hugtökunum hægri og vinstri í stjórnmálum sem markleysu. Ef vit á að vera í stjórn- málum og þau eiga að hafa einhver mark- mið fólki til farsældar, verða öll hugtök að vera skýr og merkingin að vera Ijós. Hitt er svo annað mál að hægt er að nota ódýr og óljós slagorð til blekkinga og hefur það jafnan verið nauðsynlegt fyrir þá sem vinna að markmiðum sem illa þola dags- birtu. En Framsóknarf lokkurinn getur eng- an hag haft af því að tala óskýrt. Þvert á móti. Hann á allt undir því að tala skýrt. Hér á eftir verður farið yfir frumhugtök í stefnu Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar- flokksins og Alþýðubandalagsins í örfáum orðum. Alþýðuflokknum er sleppt hér af ástæðum sem getið er um í fyrri grein. Frumhugmyndir Frumhugmyndir í stefnu flokkanna eru allar miklu eldri en flokkarnir sjálfir. Þær eiga rót i þeim miklu breytingum á tekju- og eignaskiptingu sem urðu í kjölfar iðnbylt- ingarinnar. Þær byggjast á erlendum kennisetningum, nema hugmyndir Fram- sóknarf lokksins. Þær byggjast ekki á neinu erlendu kennisetningakerf i. Hugmyndir Framsóknarflokksins eiga sér vissulega bakgrunn t reynslu vestrænna þjóða, en Framsóknarf lokkurinn aðlagaði þær þegar i upphafi islenskum aðstæðum og hafa þær aldrei verið felldar í kerfi kennisetninga. Sjálfstæðisflokkurinn er eignaréttar- flokkur. Grundvallaratriði í stefnu hans er frjálst framtak, þ.e. að dugnaður og hæfi- leikar fái að njóta sín óheft eftir þeim tæki- færum sem bjóðast. „ Stefna Framsóknarflokksins byggist einnig á eignarétti og miðar að því að gera öllum kleift að öðlast fjárhagslegt sjálf- stæði. Menn sameinast í frjálsum félags- skaptil þessað leysa þau verkefni, sem ein- staklingum eru ofviða, og sem að öðrum kosti yrðu ekki leyst nema á grundvelli óhefts einkagróða eða ríkisrekstrar. Tæki- færi skulu öllum mönnum lögð i hendur með þeim jöfnuði sem kosfur er á, en dugnaður og hæfileikar ráði úrslitum um hvernig menn nýta tækifærin. I þeim frumhugmyndum sem Alþýðu- bandalagið byggir á er einkaeign hafnað. Rikið skuli vera eigandi allra gæða og þegn- arnir fá i sinn hlut frá þjóðfélaginu til neyslu eftir þörfum en leggja á móti fram vinnuafl og hugvit eftir getu hvers og eins. Aðstæður og hljómgrunnur Grundvallarsjónarmið Framsóknar- f lokksins standa ennþá óhögguð.Hins vegar hafa þjóðfélagslegar aðstæður breytst á margan hátt og flokkurinn hefur þurft að taka af stöðu til nýrra viðhorfa en f rumhug- myndir f lokksins eru enn þann dag í dag svo i takt við tímann að alltaf er hægt að taka mið af þeim. Kommúnistaf lokkurinn/Sósíalistaf lokk- urinn/Alþýðubandalagið hef ur aftur á móti stöðugt færst lengra og lengra frá frum- hugmyndum sínum, þar sem reynslan hef ur sýnt að fólk vill almennt ekki aðhyll- ast þær, enda hef ur reynslan af þeim verið slæm alls staðar þar sem þær hafa verið reyndar. Hins vegar hafa f jölmargir í for- ystuliði flokksins ekki fallið frá þessum hugmyndum þó að rétt þyki að hafa ekki hátt um það í bili. Ég hygg að þeir telji það vera ,,sögulega nauðsyn" að þegja og bíða betri tima. Slagorðið „söguleg nauðsyn" verður betur rætt síðar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig færst æði langt frá þeim frumhugmyndum sem stefna flokksins er byggð á. Engu að síður eiga þær hugmyndir mikinn hljómgrunn í flokknum og birtast stundum í slagorðum eins og „báknið burt". Innan flokksins er það ein veigamesta gagnrýni á f lokkinn að hann hafi hneigst óhæfilega til framsókn- armennsku. Hins vegar þora menn illa að leggja til atlögu við framsóknarmennsk- una, því að það er hún sem á hljómgrunn með þjóðinni. Ef „báknið burt" yrði skilgreint af nákvæmni og gert að höfuð- stefnumáli flokksins, yrði Framsóknar- f lokkurinn ekki lengi minnsti f lokkur lands- ins. Hins vegar þjónar „báknið burt" sem marklaust slagorð án skilgreiningar vel þeim draumi sem margir sjálfstæðis- menn hafa um íhald. Hér er ekki rúm til þess að ræða grund- vallarstef nur og f ramkvæmd þeirra til hlít- ar. Þess vegna verður látið nægja að taka dæmi. Dæmið er um þá þróun sem orðið hefði i húsnæðismálum þjóðarinnar eftir því hvaða stefna hefði fengið að ráða og er þá átt við grundvallarstefnu. Samkvæmt stefnu Sjálfstæðisflokksins byggju menn almennt í leiguhúsnæði í eigu sérajóna. Húsnæði þetta gæti verið misgott, enda væri leigan í samræmi við það. Hins vegar er varla við því að búast að það væri almennt betra en hliðstæðir leigukumbaldar í öðrum löndum. Samkvæmt stefnu Alþýðubanda- lagsins byggju menn einnig í leiguhúsnæði. Þetta húsnæði væri eins og reynslan sýnir misvont en leigan ekki í samræmi við það. Þar sem þessi stefna hefur verið tekin upp að einhverju marki er reynslan að algeng- ast er að slíkar íbúðir séu eins til tveggja herbergja með sameiginlegu eldhúsi fyrir nokkrar fjölskyldur. í báðum þessum til- fellum skortir það nauðsynlegasta til þess að gefa lífinu gildi, gleðina. I þessu tilfelli gleðina við að hlúa að sínu, gleðina við að búaaðsínu og því öryggi sem fylgir f jár- hagslegu sjálfstæði. Allir hafi tækifæri Samkvæmt stefnu Framsóknarflokksins ber hins vegar að gefa öllum tækifæri til þess að eiga sitt eigið húsnæði. Hér á landi hef ur þróunin sem betur fer verið á þennan ,veg. AAeð þessu er ekki sagt að Framsókn- arf lokkurinn eigi allan heiður af því að það hef ur orðið.Allir f lokkar hafa stutt að þessu í framkvæmd og sumir dyggilega. Hins vegar hafa þeir allir sveigt frá grundvall- arstef nu sinni í þessum ef num, í átt til sjón- armiða Framsóknarflokksins. En þó að Alþýðubandalagið haf i sveigt til f ramsóknarstef nu í þessu og mörgu öðru og sósíaldemókratískrar stefnu á mörgum sviðum,er það ennþá meginhugmynd á bak við starfsemi flokksins að ríkið eigi að sjá fyrir þörfum mannsins og hirða afrakstur- inn af starf i hans og að hann skuli ekki vera frjáls að neinu. Viðhorf flokksins til mannsins er að hann sé sauðkind og að það sé smalinn sem viti hvað honum er fyrir bestu. Þetta kemur glöggt fram á ýmsum sviðum. Ég ætla aðeins að nefna eitt dæmi. Allir frjálshuga menn líta á orlofsrétt sem mikilvægan rétt frjálsra manna, en að það sé hverjum einum í sjálfsvald setthvernig hann notar þennan rétt. Alþýðubandalags- menn líta öðru vísu á þennan rétt. Þeir vil ja gera réttindin að skyldu. Árum saman hafa þeir barist fyrir því að koma því á að orlof væri skylda sem enginn gæti komist undan, hvort sem honum líkaði betur eða verr. Ég fæ ekki séð hvernig er hægt með skýrri hugsun að flokka þá f lokka, sem hér að framan hafa verið nefndir, undir eitt- hvert sérstakt vörumerki eins og hægri eða vinstri. Þeir hafa allir sín séreinkenni. Og það er nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir þessum séreinkennum, þvi að það er öllum fyrir bestu að velja sér þann flokk sem er í mestu samræmi við lífsskoðanir þeirra. Framsóknarf lokkurinn þarf að skýra sín sjónarmið í glöggu máli, slagorð hæfa ekki stefnumiðum hans. Enda hefur hann ekki beitt þeim að ráði. Hins vegar þjóna slagorð Alþýðubandalaginu vel. Þau eru vel til þess fallin að dylja hin raun- verulegu markmið. Ég verð víst að halda áfram næsta sunnudag og ræða nokkur slagorð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.