Tíminn - 30.07.1978, Síða 19
Sunnudagur 30. júll 1978
19
Vildi eiga meiri tíma
skyldunni”
— segir Jón Helgason alþingismaöur
„Ég á nú ekki margar frl-
stundir og ég verö aö viður-
kenna þaö, að ég hef mjög tak-
markaöan tima fyrir áhugamál
önnur en þau, sem fylgja starf-
inu,” sagbi Jón Helgason al-
þingismaöur frá Seglbúðum,
þegar viö heimsöttum hann, þar
sem hann býr I Reykjavik aö
Ránargötu 9 a. ,,Ég starfa aö
félagsmálum eins og ég get fyr-
ir utan þingstörfin og þegar
heim aö Seglbúðum er komiö,
hugar maöur aö búskapnum”.
Þar sem Jón er formaður
Búnaðarfélags Kirkjubæjar-
hrepps, spuröum viö hann,
hvort þeir héldu ekki stöku sinn-
um böll. „Ja, þorrablót höldum
viö einu sinni á ári og þaö er
mjög skemmtilegt. Ég hef einn-
ig sungið i kirkjukór og geri þaö
gjarnan, meöan ég dvel heima
við. Mér finnst alveg nauðsyn-
legt að halda tengslum viö
félagslifið heima eins og hægt
er. Þegar nóg er aö gera i
Reykjavik sættir maður sig viö
borgarlifið, en um leið og verk-
efnum lýkur reynir maöur aö
komast aftur i sveitina.”
— En ef þú ættir talsvert
meiri fristundir til áhugamála,
hvað myndir þú þá gera?
„Verkefnin eru alltaf óþrjót-
andi. Ég les nú dálitið ævisögur
og sagnfræði og vildi gera meira
af þvi. Einnig, — og þaö er efst á
blaði hjá mér, myndi ég vilja
hafa meiri tima með fjölskyld-
unni almennt. Þaö er stærsti
annmarkinn við þingmanns-
starfið, hvað fjarvistir frá henni
eru miklar”.
„Eitt barna minna var hér hjá mér i vetur. Hin tvö eru heima, mér
finnst æskilegra, aö þau alist upp i sveitinni”. Eiginkona Jóns, sem
stjórnar búi og börnum, er Guörún Þorkelsdóttir.
Og þar meö slapp Jón Helga-
son frá okkur á fund viðræðu-
nefndar um myndun vinstri
stjórnar. Við buöum honum far,
en hann vildi heldur ganga
þennan spöl frá Ránargötunni
og yfir i Þórshamar. Klukkan
var rúmlega hálf tvö á fimmtu-
degi.
með fjðl-
„Þaöer mágur minn, sem á allan heiöurinn af garöinum. Nei. Ætli
þaö veröi nokkuö eölilegra þó aö ég beygöi mig niöur aö blómun-
um”.
Benedikt Gröndal alþingismaður:
„Þú mátt koma,...
eigum við að segja
upp úr eitt?”
Þegar við hringdum I Bene-
dikt Gröndal alþingismann
svaraði hann aö bragði: „Ég er
nú grasekkjumaður þessa viku,
þvi að konan min er úti i Banda-
rikjunum, en þú mátt vel
koma.... eigum við að segja
svona upp úr eitt? Þurfum við
nokkuð að vera nema hálftima
að þessu?” öllu fögru var lofað
um það og fyrr en varði voru
blm. og ljósmyndari mætt á
tröppunum hjá Benedikt að
Miklubraut 32. Einnig tók á móti
okkur sonur Benedikts, Jón, en
hann er elstur þriggja sona og
býr I Grindavik, þar sem hann
er kennari.
„Mest af minum fritima fer i
bóklestur, og les ég þá mest
sögu og landafræði, ævisögur og
allt sem stjórnmálunum við
kemur. Þar fyrir utan ferðast ég
um og skoða heiminn. Ég er fyr-
ir fjölbreytileg viðfangsefni I
fristundum og starfi eins og sést
best á þvi, að ég valdi mér fyrst
Bendikt hefur komiösér upp góöu safni af gömlum islandskortum, sem hann hefur keypt i fornsölum
erlendis. ,,En nú eru þessi kort oröin tiskuvara og óheyrilega dýr og kem ég ekki til meö að safna
fleirum”. Þarna eru kortallt frá þvi fyrir 1600.
blaðamennsku að ævistarfi,
enda þótt tilviljunin hafi breytt
þvi siðar.”
„Ég safna þeim bókum, sem
snúa að Alþingi og öllu um is-
lenska pólitik. Klassiska tónlist
frá aldamótunum kann ég vel að
meta, Debussy og Ravel t.d.,
Megas? Ég kannast við Megas
svona meira af afspurn. Allar
þessar nýju hljómsveitir og þess-
ir nýju söngvarar eru heilt nám
út af fyrir sig, sem ég hef ekki
hellt mér út i.”
„Ég fylgdist aftur á móti vel
með i tónlistarheiminum hérna
á árum áður og var þá með sér-
stakan skemmtiþátt i útvarp-
inu, þar sem ég braut plötur,
sem mér þóttu slæmar. Ég
borgaöi þær úr eigin vasa.” (og
nú hlær Benedikt fyrst).
Þar með var fritiminn út-
runninn og Benedikt skundaði á
fund til þess að fá úr þvi skoriö,
hvort Alþýöubandalagiö hefði landi eins og hann oröaði það.
einhver úrræöi til björgunar Is- Þetta var á miövikudaginn.
Feögarnir Jón og Benedikt. „Jón hefur veriö ráösmaöur minn og
ráöunautur þessa viku og ferst þaö allt vel úr hendi”.