Tíminn - 30.07.1978, Síða 31

Tíminn - 30.07.1978, Síða 31
Sunnudagur 30. júli 1978 31 ALHEIM- URINN OG TÍMINN Um hálfrar aldar skeið hefur sú kenning verið mestu ráðandi meðal stjörnufræðinga, að al- heimurinn væri að þenjast út. Otþenslukenningin hefur fallið vel aö kenningum Einsteins og menn hafa talið, að hún skýrði margvislég fyrirbæri I stjörnu- þokum og vetrarbrautum. Bandariski stjörnufræðingur- inn Steven Weinberg hefur lýst þvi yfir, sem gerðist að mati þeirra, sem aðhyllast kenning- una um útþensluna. I bók, sem hann nefnir „Fyrstu þrjár minútur alheimsins” lýsir hann upphafi útþenslunnar. Fyrir fimmtán milljörðum ára var allt efni alheimsins saman- komið i einum massa. Þá varð gifurleg sprenging, ,,hái hvellurinn” eins og sumir kalla það, og ljósiðfórum alla veröld. Hitinn var ótrúlegur, nokkur hundruð milljarða stiga. Hitinn lækkaði þó snögglega. Tiu sekúndum eftir fyrsta hvellinn hófust keðjusprengingar, óreglulegar fyrst i stað, en svo stöðugri. Eftir þrjár minútur fylltist allt af helium og tólf minútum eftir fyrstu sprenging- una voru öll grunnefni orðin til. Gasið þéttist þegar það kólnaði, þyngdarlögmálið hélt kjörnun- um saman og sólkerfin urðu til. Alheimurinn var skapaöur. En ekki voru sólkerfin eða vetrar- brautinar fyrr sköpuð en þau fjarlægðust hvert annað. .Alheimurinn þandist út. Þetta er i fáum orðun kjarn- inn i kenningunni um útþenslu alheimsins. Veröldin er enn að springa, eða réttara sagt áhrifa frumsprengingarinnar gætir ennþá. Sánnanir fyrir útþenslu alheimsins eru einkum tengdar mælingum á litrófi fjarlægra sólkerfa. Radióstjörnukikjar taka myndir af fjarlægum sól- kerfum. Ljósið sem berst getur hafa verið milljónir ára á leið- inni til jarðar. Það er þvi verið að skoða það, sem var fyrir milljónum ára. Þessi sólkerfi gefa vitneskju um ástand al- heimsins fyrir milljónum ára. Hvi' þá ekki að hugsa sér, að unnt væri að sjá upphaf al- heimsins, ef við hefðum nægi- lega sterka radióstjörnukikja? Fyrir rúmlega hálfri öld fann bandariskur stjörnufræðingur, Hubble að nafni, að breytingar verða á litrófi stjarna eftir þvi hve langt þær eru i burtu. Ekki eru þó allir stjörnufræð- ingarsammála um útþenslu al- heimsins. Meðal þeirra, sem andmælt hafa þessari kenningu eru Fred Hoyle, mjög þekktur breskur stjörnufræðingur, og Hannes Alfvén, nóbelsverð- launahafi i eðlisfræði, sænskur aðkyni. Alfvéntelur hina mestu fjarstæðu, að heimurinri þenjist stöðugt út. Hann hefur látið svo um mælt, að engum höfundi vis- indaskáldsagna hefði dottið i hug, að bera slika kenningu á borð fyrir lesendur sina. Alfvén telur, að heilbrigö skynsemi mæli eindregiö á móti þessari kenningu. Fleiri rök beinast að visu i sömu átt. Bandarlski stjörnufræðingurinn Halton Arp hefur myndað ýmsa hluta geimsins frá stjörnuat- hugunarstöðinni miklu á Palomar-fjalli. Hann hefur ný- lega birt niðurstöður, sem feng- ist hafa við myndatökur af tveimur nálægum vetrarbraut- um. Kemur þar greinilega fram, að mikill munur er á lit- rófi þeirra, og ætti sú vetrar- brautin, sem nær er að vera fjær, ef kenningin um útþenslu hefði við rök að styöjast. Ef svo fer, að kenningin um frumsprengjuna og útþenslu al- heimsins verður að vikja fyrir öðrum hugmyndum um alheim- inn, þá hefur timinn aldrei byrj- að, og er endalaus, i báða enda, afturi fortiðinaog inn i framtíð- ina. Hannes Alfvén segir hins vegar, að engin kenning sé til um alheiminn: hann er eins og hann er, timinn er endalaus, efnið hefur alltaf verið til og verður alltaf til. Oatan uni alheiminn, rúm og tima hefur um óraaldur haldiö vöku fyrir mönnum.Varö alheimurinn til á örfáum andartökum þegar allt efni hans splundraðist, og gætir enn áhr.ifa þessarar fyrstu sprengingar, sem varð fyrir a.m.k. 15 milljöróum ára? F.ða hefur alheimurinn „alltaf” veriö eins og hann er nu? Geimferðir á undanförnum árum hafa svarað furöu fáu af þeim spurningum . sern helst hafa þvælst fyrir mönnum. Viö erum litlu froöari um stjörnuþokur eins og þær sem sjást viða um geimiitn. Bændur — Bændur Við framleiðum nælonhólka í ótal stærðum fyrir heyblásara. Póstsendum um allt land. £eglager<iht Eyjagötu 7 Símar: 1-33-20 og 1-40-93 Bæjarútgerð Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða tvo framkvæmda- stjóra. Annan til að annast rekstur fiskiðjuvers og togara, hinn til að annast fjármál og skrifstofustjórn. Umsóknir skulu sendar fyrir 15. ágúst til útgerðarráðs, pósthólf 120, Hafnarfirði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.