Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 8
8 9. september 2006 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL „Ég ætla að sækjast eftir fyrsta sætinu,“
segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og
varaformaður flokksins. Þorgerður skipaði fjórða
sæti listans við kosningarnar 2003 en setur nú
stefnuna á fyrsta sætið. Árni M. Mathiesen skipaði
það sæti í síðustu kosningum en hann hefur afráðið
að færa sig í Suðurkjördæmi.
Gunnar I. Birgisson var í öðru sæti í síðustu
kosningum, Sigríður Anna Þórðardóttir í þriðja og
Bjarni Benediktsson í fimmta sætinu. Gunnar hvarf
af þingi þegar hann varð bæjarstjóri í Kópavogi og
tók Sigurrós Þorgrímsdóttir sæti hans. Sigurrós
sagðist í samtali við Fréttablaðið búast við að stefna
á áframhaldandi þingmennsku. „Ég stefni að því að
fara fram,“ sagði hún en hefur ekki ákveðið eftir
hvaða sæti hún muni falast.
Sigríður Anna Þórðardóttir sagðist enn vera að
hugsa málið. „Það hefur ekkert annað komið til
greina en að ég haldi áfram,“ sagði hún og tók fram
að enn væri nægur tími til stefnu til að ákveða sig.
Bjarni Benediktsson lýsti í Fréttablaðinu í gær
yfir áhuga á að sækjast eftir aukinni ábyrgð í
stjórnmálum þó hann hafi ekki tekið endanlega
ákvörðun um framboð. - bþs
1 Forsætisráðherra hvaða
lands tilkynnti í fyrradag að
hann myndi hætta innan árs?
2 Hvað heitir eina íslenska
tölvuleikjafyrirtækið?
3 Hver sækist eftir fyrsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
SIGRÍÐUR
ANNA
Hreyfing komin á framboðsmál Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi:
Þorgerður stefnir á efsta sætið
EFNAHAGSMÁL Ísland er í níunda
sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi
þjóða samkvæmt nýrri skýrslu
sem mælir að hvaða marki stefnu-
mið og stofnanir ríkja styðja efna-
hagslegt frelsi.
Ísland, sem var í 13. sæti list-
ans í fyrra, fær nú einkunnina 7,9
af 10 mögulegum og hækkar úr 7,7
frá síðasta ári. Að sögn Birgis
Tjörva Péturssonar, framkvæmda-
stjóra RSE, eru grunnatriði efna-
hagslegs frelsis eignarréttur og
frjáls viðskipti með hann. „Hér
hefur verið gengið langt í að auka
frjálsræði í
samfélaginu
sem er að skila
sér. En það þarf
að skoða skýrsl-
una út frá því
hvað við getum
bætt. Til dæmis
með afnámi
viðskiptahindr-
ana, tolla og
vörugjalda
í landbúnaði. Sama á við
um afnám hindrana á fjár-
festingum útlendinga í
íslensku samfélagi, í sjáv-
arútvegi og hvar þar sem
slíkar hindranir eru fyrir
hendi.“
Hong Kong heldur efsta
sæti listans með 8,7 í ein-
kunn, Singapúr er í öðru
sæti með 8,5 og Nýja-Sjá-
land, Sviss og Bandaríkin
deila þriðja til fimmta sæti
með 8,2.
Skýrslan er birt á vegum
Samstarfsnets um efnahags-
legt frelsi, sem í eru óháðar
rannsóknar- og fræðslustofn-
anir í meira en sjötíu ríkjum.
Þar á meðal er Rannsóknar-
miðstöð um samfélags- og
efnahagsmál, RSE, sem
gefur skýrsluna út á
Íslandi. Upplýsingar um
130 þjóðir fyrir árið
2004 voru bornar saman
en það eru nýjustu til-
tæku upplýsingar af
þeirri gerð sem notast er
við.
Einkunnir ríkja eru
reiknaðar út frá fimm
lykilþáttum vísitöl-
unnar um efnahags-
legt frelsi sem eru
umsvif hins
opin-
bera,
lagalegir innviðir og vernd eign-
arréttar, aðgangur að traustum
gjaldmiðli, alþjóðaviðskipti og
reglusetning. Einkunn Íslands
hækkar út frá umsvifum hins
opinbera og reglusetningu en
lækkar lítillega í hinum þremur
flokkunum.
Í skýrslunni kemur fram að
Íslendingar eru meðal þeirra
þjóða þar sem mest hefur áunnist
í innleiðingu efnahagslegs frelsis
síðan 1985. Flestar þær þjóðir sem
lægsta einkunn hafa eru frá
Afríku, Suður- og Mið-Ameríku og
fyrrum kommúnistaríkjum.
Í niðurstöðum skýrslunnar
er sagt að efnahagslegt
frelsi sé mun áhrifaríkara
en ríkisstyrkt þróunarað-
stoð við að hjálpa fátækum
þjóðum að flýja fátækt-
ina. Segir einn höf-
unda skýrslunnar að
krafan um þróunar-
aðstoð sé venjulega
gerð í fjarveru allra
raunverulegra sönnun-
argagna um að hún sé til
hagsbóta fyrir þær þjóðir
sem taka á móti henni og
án þess að spurt sé hvort
aðrar betri leiðir séu
færar til að draga úr
fátækt, sem alþjóða-
samfélagið gæti stutt.
sdg@frettabladid.is
Ísland situr í
níunda sæti
Ísland hækkar sig á lista yfir efnahagslegt frelsi
þjóða samkvæmt nýrri skýrslu. Eignaréttur og frjáls
viðskipti grunnatriði, segir framkvæmdastjóri RSE.
BIRGIR TJÖRVI
PÉTURSSON
Efnahagslegt frelsi þjóða
efstu tíu sæti á lista
1. sæti Hong Kong 8,7
2. sæti Singapúr 8,5
3.-5. sæti Nýja-Sjáland 8,2
3.-5. sæti Sviss 8,2
3.-5. sæti Bandaríkin 8,2
6.-7. sæti Bretland 8,1
6.-7. sæti Írland 8,1
8. sæti Kanada 8,0
9.-10. sæti ÍSLAND 7,9
9.-10. sæti Lúxemborg 7,9
Einkunn gefin á skalanum 0-10.
FRELSISSTYTTAN Á
LIBERTY ISLAND. Banda-
ríkin eru í 3.-5. sæti á
lista yfir ríki sem búa
við mesta efnahagslegt
frelsi. Ísland færist ofar
á listann samhliða því
að hagsæld eykst.
VEISTU SVARIÐ?
HÚSNÆÐI Húsnæði Háskólans í
Reykjavík stækkaði um 6.000
fermetra í gær þegar skólinn tók í
notkun Kringluna 1. Þar hafði
Morgunblaðið aðsetur áður en það
flutti upp í Hádegismóa.
Húsnæðið fékk háskólinn
afhent í sumar og segir Guðfinna
Bjarnadóttir rektor að búið sé að
gera fyrstu og aðra hæð hússins
tilbúnar.
Rektor fagnar þessum breyt-
ingum og nefnir sem dæmi um
hinn mikla vöxt sem hefur verið í
skólanum frá því hann var stofn-
aður árið 1998 að þá hafi þrjú
hundruð nemendur verið við nám.
Í haust hafi 1800 manns sótt um að
komast að við skólann eða tvisvar
sinnum meiri fjöldi en skólinn
hefur tök á að taka á móti.
Eftir þrjú ár er þó áætlað að
Háskólinn flytji í Vatnsmýrina.
- kdk
Háskólinn í Reykjavík flytur í gamla Morgunblaðshúsið:
Fjöldinn hefur nær
tífaldast frá stofnun
ÞORGERÐUR
KATRÍN
SIGURRÓS
AFGANISTAN Yfirmenn innan
Atlantshafsbandalagsins hafa
hvatt aðildarríki til að útvega
liðsauka í baráttunni gegn
skæruliðum talíbana í suðurhluta
Afganistans að því er kemur fram
á vefsíðu BBC.
Framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, Jaap de Hoop
Scheffer, gagnrýnir sum aðildar-
ríki fyrir aðgerðaleysi.
Æðsti yfirmaður herafla
bandalagsins, Gen James Jones,
segir að styrkur andstöðunnar
komi þeim nokkuð á óvart. En
hann hefur trú á því að þeim
muni takast að ná stjórn á
ástandinu bráðlega. - sdg
Hörð barátta við skæruliða:
Liðsauka vant-
ar í Afganistan
ALNÆMI Flestir nýsmitaðra
alnæmissjúklinga á Norðurlönd-
unum eru ungir karlmenn,
hommar eða
tvíkynhneigðir.
Ingi Rafn
Hauksson,
formaður
alnæmissam-
takanna, segir
áberandi
kæruleysi
hérlendis hjá
ungu fólki.
Hann hefur
áhyggjur af því að Ísland rati
sömu leið ef ekkert verður að
gert. Þetta kom fram í sjónvarps-
fréttum NFS í gær.
Ingi segir að í kynningarstarfi
í skólum landsins fari ekki á milli
mála að þekkingu ungs fólks á
sjúkdómnum og afleiðingum hans
sé verulega ábótavant. - sþs
Alnæmissamtökin:
Ungt fólk of
kærulaust
INGI RAFN
HAUKSSON
NÝTT HÚSNÆÐI Guðfinna Bjarnadóttir
rektor tók á móti nemendum og starfs-
fólki í Kringlunni 1 í gær.