Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������
���������������
Ég fór á völlinn á miðvikudaginn og horfði á Ísland tapa fyrir
herraþjóðinni eina ferðina enn, í
þetta skiptið með tveimur mörkum
gegn engu. Sjálfur hafði ég spáð
því að leikurinn færi 14-2 fyrir
Ísland, en það hefði orðið skáldlega
fögur niðurstaða í ljósi sögunnar.
Mér fannst fyrir löngu vera kom-
inn tími til að Íslendingar veittu
Dönum ærlega ráðningu. Einok-
unarverslunin með sínu maðkaða
mjöli var Íslendingum til ama um
áratuga skeið og bara það brask
allt saman ásamt djúpstæðri ólund
danskra kaupsýslumanna gagnvart
íslenskum athafnamönnum undan-
farið hefði átt að leiða til stór-
sigurs, og þar með fullkominnar
hefndar, Íslendinga á Dönum.
EN svo fór ekki. Reyndar vil ég
meina að ég hafi spáð 50% rétt,
þar sem ég spáði jú því að Danir
myndu skora tvö mörk, sem þeir
gerðu. Hins vegar brást spádóms-
gáfan hvað varðaði markafjölda
Íslendinga. Þeir skoruðu ekki 14
mörk heldur ekkert. En auðvitað
má segja að fyrst þeir skoruðu
ekki 14 mörk var alveg eins gott
að þeir skoruðu ekki neitt. Slíkt er
í anda speki Snæfríðar Íslandssól-
ar, sem alla jafna kaus verstu nið-
urstöðuna frekar en þá næstbestu.
Ekkert hefði verið varið í það að
vinna Dani 13-2 eða 12-2. Fjórtán
eða ekkert, segi ég.
EITT vakti athygli mína á leikn-
um, burtséð frá markaleysi Íslend-
inga, og hefur þetta tiltekna atriði
reyndar vakið athygli mína oft
áður þegar ég hef farið á lands-
leiki. Ég get ekki varist því þegar
ég sit á landsleikjum, þögull en
spenntur í stúkunni, að Íslendingar,
og þar á meðal ég, séu arfaslakir
stuðningsmenn. Á leiknum á mið-
vikudaginn leið mér persónulega
eins og fólk myndi almennt telja
mig hálfvita ef ég stæði nú upp og
öskraði hvatningarorð. Ég hefði
allt eins búist við bergmáli.
VINUR minn öskraði stundum.
Háttvirtur menntamálaráðherra
sá ég líka að hrópaði í heiðursstúk-
unni, enda íþróttakona á árum
áður. Þar stökk forseti KSÍ stund-
um líka á lappir og bölvaði en að
öðru leyti var allt með kyrrum
kjörum. Ég veitti því líka eftirtekt
að allar tilraunir til þess að búa til
svokallaða bylgju í stóru stúkunni
strönduðu undantekningarlaust í
heiðursstúkunni.
ÞAÐ er engu líkara en Íslending-
ar skammist sín fyrir hvatningar-
orðin sem þeim er uppálagt að
kalla á landsleikjum. Ég skil það
vel. „Áfram Ísland!“ og „Ísland,
Ísland!“ eru eiginlega bara hálf
kjánalegar upphrópanir, sem
þjóðarsálin fílar greinilega ekki.
Úr þessu þarf að bæta hið snar-
asta ef við ætlum okkur einhvern
tímann að vinna Dani 14-2.
Á vellinum
50 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
490,-
Sænskar kjötbollur
með kartöflum, týtuberjasultu
og rjómasósu (10 stk.)
Njóttu þess
að slaka á
14.900,-
LYCKSELE svefnstóll með MIXDALA marglituðu áklæðill li l i
PARODI vasi
H70 cm 2.990,-
FREJA LAMM púði
40x60 cm 1.990,-
TINDRA ilmjurtakassi
ýmsir litir 295,-
TINDRA ilmkerti
H11 cm 495,-
KÄGLA kertastjaki
H26 cm 895,-
H37 cm 995,-
BETTAN púðaver
72x72 cm
RIBBA rammi
13x18 cm
FIXHULT 3ja sæta leðursófi
198x88x85 cm 49.900,-
DALFORS sjónvarpsbekkur
113x42 cm
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
OBSERVATÖR
sjónvarpsveggfesting
f/flatskjái 2.490,-
KLUBBO innskotsborð
3 stk. 7.990,-
495,-
SKYAR lampar 3 stk.
H172,5 cm / H52 cm 2.990,-
695,-
IVÅS sófaborð
120x70x45 cm 13.950,-
4.990,-
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
GÓÐUR VINUR
Á GÓÐRI STUND
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI