Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 74
9. september 2006 LAUGARDAGUR
Tvær og hálf vika eru nú liðnar frá því Natascha Kampusch strauk frá ræn-
ingja sínum, Wolfgang Priklopil,
eftir átta og hálft ár í nánast algerri
einangrun. Viðtölin sem birtust nú
í vikunni, bæði í austurríska ríkis-
sjónvarpinu og tveimur austur-
rískum blöðum, hafa vakið gríðar-
mikla athygli um heim allan.
Sálfræðingar sem rætt hefur
verið við í fjölmiðlum eru sammála
um að það muni taka hana langan
tíma að jafna sig. Þó hefur það vakið
athygli hversu skýr hún hefur verið
í tali og hvað hún virðist taka á
raunum sínum af miklum þroska.
Sumir hafa þó lýst efasemdum
um hve skynsamlegt sé að hún hafi
veitt opinber viðtöl svona snemma.
Eftir að Natascha slapp út hefur
hún dvalist á sjúkrahúsi í Vínar-
borg þar sem hún segir að sér líði
vel, umkringd læknum og sálfræð-
ingum. Það eina sem hrjái hana sé
kvef, sem hún var ekki lengi að
smitast af eftir að hún slapp úr
einangruninni.
Vandræðalegt að sjá sig í
sjónvarpi
Eftir að viðtölin birtust hefur hún
þó áfram tjáð sig lítillega við fjöl-
miðla og segist fyrst og fremst
vera óskaplega þakklát og hrærð
yfir öllum þeim velvilja og áhuga
sem hún hefur mætt. En um leið
finnst henni umstangið hálf vand-
ræðalegt. „Þegar ég sá sjálfa mig í
sjónvarpinu fannst mér það svo-
lítið óþægilegt. Eiginlega varð ég
alveg rauð í framan,“ sagði hún í
Kronen Zeitung, einum af fjölmiðl-
unum þremur sem hún ákvað að
veita viðtöl.
Henni berst gífurlega mikið
magn af bréfum og biður hún um
skilning á því að hún geti ekki svar-
að þeim öllum, og ekki heldur þegið
allar þær gjafir sem henni berast.
Hún muni síðar setja þær á uppboð
fyrir góðan málstað.
Hún segist einnig vilja leiðrétta
þann misskilning að Priklopil hafi
kennt henni að tjá sig jafn skýrt og
greinilega og raun ber vitni.
„Það lærði ég af sjálfri mér.
Hann kenndi mér það ekki.“ Hún
tekur það fram að hún hafi alltaf
lesið mikið, líka áður en henni var
rænt.
Í Kronen Zeitung segir líka að í
fangavistinni hafi hún lesið allt sem
hún kom höndum yfir, meira að
segja það sem stóð utan á umbúða-
pakkningum og tannkremstúpum.
Reyndi áður að flýja
Í þriðja hluta viðtalsins við Kronen
Zeitung, sem útdrættir voru birtir
úr á vefsíðu blaðsins í gær, segist
hún áður hafa reynt að flýja. „Einu
sinni hljóp ég meira að segja út um
garðhliðið. Það var eins og hjá fólki
sem getur ekki yfirgefið húsið þótt
allt sé opið. Mig fór að svima, ég
gat ekkert séð lengur og ég fór
aftur til baka og lét eins lítið bera á
því og ég gat. Til þess að hann tæki
ekki eftir neinu.“
Einu sinni reyndi hún líka að
stökkva út úr bifreiðinni á ferð.
Hann greip í hana og ók áfram í
þvílíku ofboði að hún kastaðist til í
bílnum.
Lífið í einangruninni var
fábreytt en þó reyndi hún að nota
það eftir bestu getu til þess að
styrkja sig og þroskast.
„Eiginlega fór ég alltaf snemma
á fætur. Ljósið kviknaði sjálfkrafa
klukkan sjö. Það var ákveðin regla
á hlutunum. En það var aldrei vor,
sumar, haust eða vetur. Eins og hjá
öðrum börnum sem ganga í skóla
og fara í frí og hlaupa í fangið á
mömmu sinni. Á kvöldin skipti það
ekki svo miklu máli með ljósið,
hvort það var fyrr eða seinna sem
allt varð svart.“
Hún segist fljótt hafa fundið
þörf fyrir það að gera sig heima-
komna í einangruninni. „Þá verður
hræðslan einfaldlega að víkja, ann-
ars er ekki hægt að lifa hana af.“
Ef eitthvað kæmi fyrir Priklopil
Eitt það hræðilegasta var biðin
þegar hann fór út úr húsi. Þá fyllt-
ist hún ótta við að eitthvað kæmi
fyrir hann: „Slys, hjartaáfall. Þá
kemst ég aldrei aftur út. Hve lengi
endist þá loftræstingin? Lengur en
ég lifi?“
Hún segist ekki hafa skipulagt
flótta sinn fyrirfram, en frá tólf
ára aldri hafi hún stöðugt hugsað
um það, hvenær hún yrði tilbúin til
þess að flýja. Þegar stundin kom
tók hún ákvörðun mjög skyndilega.
„Ég vissi á þeirri stund, að ef ég
gerði það ekki nú, þá kæmi tæki-
færið kannski aldrei aftur.“
Síðustu mánuðina hafði hún
sagt honum að hún myndi flýja, ef
hún fengi til þess tækifæri. Hún
sagðist þó hafa haft miklar áhyggj-
ur af því að „eyðileggja heims-
mynd“ vina hans og nágranna.
„Hann var svo almennilegur og
hjálpfús. Alltaf vingjarnlegur. Allt-
af svo nákvæmur. Og ég vildi held-
ur ekki gera móður hans það, að
hún myndi kynnast þessari hlið á
syni sínum.“
Í viðtali við vikuritið News seg-
ist Natascha hafa spurt sig aftur og
aftur hvers vegna þetta hefði endi-
lega þurft að koma fyrir hana, en
ekki einhvern annan.
„Ég hugsaði alltaf: Ég er örugg-
lega ekki kominn í heiminn til þess
að láta loka mig inni og eyðileggja
líf mitt gjörsamlega. Ég fylltist
örvæntingu vegna þessa ranglæt-
is. Mér leið alltaf eins og einhverju
hænugreyi í útungunarbúri. Þú
hefur ábyggilega séð klefann minn
í sjónvarpi og fjölmiðlum. Þá veistu
hvað hann var lítill. Það fyllti mig
örvilnan.“
Jarðaður með leynd
Priklopil framdi sjálfsmorð með
því að fleygja sér fyrir járnbraut-
arlest fáeinum klukkustundum
eftir að Natascha slapp. Hann
var jarðaður með leynd í gær að
viðstöddum fámennum hópi ætt-
ingja og kunningja. Gröfin er
ekki merkt réttu nafni til þess að
koma í veg fyrir að henni verði
raskað.
Hún segir sjálfsmorð Priklopils
ekkert annað en sóun. „Enginn ætti
að drepa sig. Hann hefði getað
gefið mér miklu meiri upplýsingar
og sérstaklega þó lögreglunni.“
Sjálf hefur Natascha ekkert
viljað segja um það hvort Priklopil
hafi áreitt hana kynferðislega. Hún
biður um skilning á því að hún
treysti sér ekki til að ræða við-
kvæm mál strax.
Austurríska lögreglan bíður
þess enn að fá nánari upplýsing-
ar frá henni um framferði mann-
ræningjans, vistina í einangrun-
inni og fleira sem tengist málinu.
Einkum virðist lögreglan þó
áhugasöm um að komast að því
hvort Priklopil hafi staðið einn að
mannráninu, eða hvort einhver
hafi hugsanlega verið í vitorði
með honum. Þar sem Priklopil er
látinn verður málið látið niður
falla ef ekki þykir ástæða til að
gruna neinn annan um aðild að
því.
gudsteinn@frettabladid.is
Varð sem lömuð þegar
hún reyndi að flýja
ÍVERUSTAÐUR NATÖSCHU Í þessu litla herbergi hafðist hún við í meira en átta ár,
lengst af án þessa að hitta neinn annan en ræningja sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
NATASCHA KAMPUSCH Mörgum kom á óvart hversu skýr og ákveðin hún var í sjónvarps-
viðtali sem hún veitti minna en hálfum mánuði eftir að hún slapp úr einangruninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP