Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Reynsluakstur Jeep Grand
Cherokee Limited frá Sparibíl.
Talsvert mikið er lagt upp úr því
að sameina kosti innanbæjarbíls
og utanbæjarjeppa með hinum
nýja Jeep Grand Cherokee Limit-
ed. Þegar sest er upp í bílinn og
hurðinni lokað er fátt sem gefur
til kynna að maður aki jeppa, fyrir
utan það hversu hátt maður situr.
Leðuráklæðin, steríógræjurnar og
lúgan gera bílinn ríkmannlegan að
innan, og á maður jafnvel erfitt að
sjá fyrir sér annað en konur í
dragt og menn í jakkafötum aka
um á slíkum bíl. það er þó mikil
blekking því bíllinn er fyrst og
fremst jeppi sem kemur manni
nánast hvert sem er. Og þegar fólk
hefur skipt út sparigallanum yfir í
fjalldressið er meðal annars hægt
að taka upp gólfið á skottinu og
snúa teppalögðu hliðinni niður og
grófri plasthlið upp, svo að menn
geti óhræddir hent þangað inn
blautum skóm og eða drullugum
útivistarbúnaði án þess að hafa
áhyggjur af því að rústa teppið.
Quadra drive II, skynvæna
sídrifið, er tölvustýrt og sér til
þess að bílinn eigi ekki í nokkrum
vandræðum með að keyra á ólíku
undirlagi, auk þess sem hann er
búinn spólvörn og stöðugleika-
kerfi. Í bílnum er 218 hestafla 3,0
L Mercedes Benz dísilvél, og þó
ekki sé komist hjá því að í henni
heyrist, fer lítið fyrir henni og
lætur hún ekki mikið á sér kræla
nema gefið sé vel í. Auðvelt er að
skipta yfir í lága drifið og vélin
erfiðaði ekki mikið þótt ekið væri
upp bratta og grýtta brekku eða í
djúpum blautum sandi. Getur
maður því ímyndað sér að hann
ætti auðvelt með að klifra upp
stærri og meiri brekkur, eða vera
með hjólhýsi eða kerru í togi. Und-
irvagn bílsins er vel varinn með
góðum hlífum, ekki einu sinni
minnsti smásteinn ætti að komast
þar inn. Sem er nokkuð gott því
það bætir fyrir hversu lágur bíll-
inn er, miðað við aðra jeppa.
Að innan er bíllinn allur mjög
smekklegur og þægindi mikil.
Rými í aftursæti er gott og er auð-
velt er að koma börnum þar fyrir
í bílstól og sjá þau vel út. Eitt af
því sem blaðamaður var sérstak-
lega hrifinn af, var að hægt er að
stilla hæð pedalanna, svo að lág-
vaxnir þurfi ekki að sitja næstum
klesstir við stýrið til að ná niður.
Auk þess er hægt að forstilla sæti
og pedala og geyma í minni bíls-
ins, og jafnvel tengja það við
minni bíllykilsins. Þannig að
þegar bílinn er opnaður með lykl-
inum, fer sætið í þær stillingar
sem lykillinn segir til um. Ekki
var þó auðvelt að átta sig á því
hvernig átti að stilla þetta, og þarf
að styðjast við leiðbeiningar frá
framleiðanda.
Bíllinn er útbúinn skriðstilli,
sem hentar sérstaklega vel þegar
ekið er út fyrir bæinn. Afar auð-
velt er að nota það í akstri og léttir
það mjög á bensínfætinum þegar
ekið er eftir löngum vegi án þess
að stoppa. Stýrisvörun var nokkuð
góð og helst bíllinn mjög vel á veg-
inum, jafnvel þegar ekið er niður
Kambana á góðum hraða. Enda
fjöðrunin lipur og mjúk.
Fyrir jeppa af þessari stærð, er
Jeep Grand Cherokee Limited á
sanngjörnu verði. Hann er örugg-
ur og þægilegur jaxl sem nýtist
við ólíkar aðstæður og hentar
bæði einstaklingum og fjölskyldu-
fólki vel. kristineva@frettabladid.is
Öruggur og þægilegur jaxl
Bíllinn er sérstaklega fallegur og alls ekki of stór. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gott rými er í skottinu og mikið af krók-
um svo hægt sé að festa hluti. Auk þess
er hægt að snúa botninum við ef flytja á
drulluga eða blauta hluti.
Fimm þrepa sjálfstýringin er afar þægi-
leg og svörun hennar góð.
Hægt er að kaupa 6 diska geislaspilara
með bílnum , sem fellur vel að allri
innréttingu.
Stýrið er létt og þægilegt og auðvelt að
stilla sætin í rétta hæð.
Minkaðu bensín og/eða dísel
kostnaðinn um 7-14 % með
MPG-CAPS töfl um.
Hafa verið notaðar í USA í um 40 ár og kosta 1/3
af verðum hér á landi. Stykkið kostar aðeins 130 kr
ísl. Stærri töfl ur eru notaðar á trukka, rútur, vörubíla,
vinnuvélar og stærri tæki. Töfl urnar smyrja vélarnar
á sérstakan hátt þannig að þær endast mun lengur.
Einnig er til sérstakur vökvi sem sparar 10% af
eldsneyti.
Upplýsingar í síma: 897-2853
e-mail: great4car@hotmail.com
Veffang: miracle4u.myffi .biz
Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði,
sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn,
hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef-
hjól á kerrur. Bílamottur.
Opið virka daga 8-18
Góð mynstur á dekkjum eru bráðnauðsynleg í rigningunni.
REYNSLUAKSTUR
JEEP GRAND CHEROKEE
LIMITED
Vél: 3,0 L CRDI Túrbó dísil/510 Nm
Eyðsla, bl.akstur: 10,2 L/100 km
0-100 km/klst: 9 sek.
Þyngd: 2.210-2.310
Farangursrými: 978 - 1.909 lítrar
Plús
Þægilegur í akstri
Öruggur
Mjög gott sídrif
Pedalar og sæti stillanleg í hæð
Mínus
Afturendanum hættir að renna til
á hörðu og grýttu undirlagi
Erfitt að setja sætisstilllingar í
minni án leiðbeininga
Verð á prufubíl: 5.490.000 kr.-
5.790.000 kr.