Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 84
9. september 2006 LAUGARDAGUR48
DONNA KARAN Hönn-
uðurinn sjálfur var svaka-
lega flottur í frábærum
svörtum tjullkjóll sem vakti
mikla athygli tísku-
spekúlanta.
Hljómsveitin Los Heartbreakers
spilar á Q bar, sem áður hét Ari í
Ögri, í kvöld. Þetta verða síðustu
tónleikar þessarar hressilegu lat-
ínósveitar í langan tíma þar sem
einn meðlimurinn, Jón Sigurður
Eyjólfsson, heldur til útlanda á
næstunni. Aðrir meðlimir sveitar-
innar eru Róbert Reynisson,
Trausti Hafliðason og Cheick
Bangoura, sem síðast gerði garð-
inn frægan í heimildarmyndinni
Africa United.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21.00.
Latínó-stuð
á Q bar
LOS HEARTBREAKERS Síðustu tónleikar
sveitarinnar í langan tíma verða í kvöld.
MYND/DANÍEL
Ofurfyrirsætan Elle MacPherson
segist þjást af sektarkennd yfir því
að hafa ekki verið til staðar fyrir
söngkonuna og
vinkonu sína
Kylie Minogue
þegar hún
greindist með
brjóstakrabba-
mein.
Elle, sem er
áströlsk eins
og Kylie, seg-
ist sjá einna
mest eftir
þessu af öllu í lífinu.
Elle ákvað að halda sig fjarri
Kylie og leyfa henni að takast á við
sjúkdóminn í einrúmi með fjöl-
skyldu sinni og nánustu vinum.
„Stundum erum við of feimin til að
takast á við svona erfiðar aðstæður
en ég hef lært mína lexíu varðandi
Kylie,“ sagði hún.“
Elle lærði
sína lexíu
KYLIE MINOGUE
Bandaríski spjallþáttastjórnandinn
og grínistinn Ellen DeGeneres verð-
ur kynnir á næstu
óskarsverðlauna-
hátíð. Tekur hún
við starfinu af
grínistanum Jon
Stewart. Ellen,
sem er 48 ára,
hefur tvívegis
verið kynnir á
Emmy-verðlaun-
unum. Í apríl síð-
astliðnum vann hún einmitt þau
verðlaun fyrir besta spjallþáttinn að
degi til. Ellen verður önnur konan til
að kynna óskarinn því áður hafði
Whoopi Goldberg gegnt starfinu.
Kynnir
óskarinn
ELLEN DEGENERES
www.rafkaup.is // Opið lau.: 11:00 - 16:00
Árlega eru haldnir svokallaðir
„Fashion Rocks“ tónleikar í
New York borg þar sem rauði
dregillinn er stjörnum
prýddur. Þar kemur
saman allt frægasta
liðið í tísku- og
tónlistarheiminum
enda haldast þeir vel í
hendur. Þetta er
fastur liður í byrjun hverrar tískuviku en
þau herlegheit hefjast í dag. Aðaltískuhönn-
uðir heimsins á borð við Tommy Hilfiger og
Donnu Karan voru mættir í sínu fínasta
pússi og skemmtileg tónlistaratriði
voru í boði ásamt tískusýningum
þar sem hönnuðir sýndu hvað í
þeim býr.
Tískulegir rokktónleikar
SÖNGKONAN
Christina Aguilera
var auðvitað mætt
í glæsilegum
svörtum síðkjól
sem fór henni
einstaklega vel.
FÖLBLEIK Leikkonan
unga Mischa Barton
lætur sig sjaldan vanta
á rauða dregilinn og
hún var flott að vanda
í heitustu litunum fyrir
veturinn, fölbleikum kjól
og ljósgráum lakkskóm.
SÖNGFUGL-
INN Nelly
Furtado
var flott
með nýja
klippingu í
dökk-
bláum
silki-
kjól.
HÖNNUÐURINN SJÁLFUR Tommy
Hilfiger var að sjálfsögðu mættur
í gulljakka með fallega stúlku
upp á arminn.
HVER ANNARRI FLOTTARI Stúlkurnar í hljómsveitinni Pussycat Dolls stálu senunni á
rauða dreglinum enda litríkar og sætar.
VINSÆLL Söngvar-
inn Kanye West var
að sjálfsögðu mættur
enda með eindæmum
vinsæll í Bandaríkjunum.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY IM
A
G
ES