Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 9. september 2006 5
Kemur á markað eftir fjögur ár
hið minnsta, kannski með 300
hestafla vél.
Samkvæmt fréttum frá Þýska-
landi stendur BMW hugur til að
setja á markað blæjusportbíl,
minni og ódýrari en Z4. Ætlunin er
að taka við markaðsráðandi stöðu
lítilla blæjubíla af Mazda MX-5.
Smáatriðin eru óljós en innan-
búðarmenn segja að fyrst sé von-
ast bílnum, sem mun vera kallað-
ur Z2, eftir fjögur ár, eftir útkomu
nýs Z4 sem er áætluð 2009.
Líkt og tilfellið er með Z4 mun
Z2 líklega notast að hluta til við
íhluti sem þegar eru til fyrir 1- og
3 línurnar til að auðvelda hönnun-
ina og halda kostnaði niðri. Því
verður Z2 líklega framleiddur á
sama stað og Z4, í Spartanburg í
Suður-Kaliforníu.
Vélaúrval mun að öllum líkind-
um einskorðast til að byrja með
við 1800- og 2000-mótora en í
þróun er ný 2 lítra túrbóvél sem á
að skila 300 hestöflum og ef hún
gefur góða raun er líklegt að hún
rati í sportbílana.
Z2 gegn
MX-5
BMW Z4 var stefnt á móti Porsche Boxster
þegar ný útgáfa var sett á markað. Nú er
komið að því að ráðast á Mazda.
Metanökutæki eru til sýnis á
opnu húsi í dag ásamt Volvo
nýrra og liðinna tíma.
Á tíu ára afmæli Borgarholts-
skóla, hinn 2. september síðastlið-
inn, skrifuðu fulltrúar Metan hf.
og Borgarholtsskóla undir sam-
komulag þess efnis að skólinn
kæmi upp kennslu í vélfræðum
metanvéla. Er stefnt að því að
kennsla geti hafist á vorönn 2007.
Samkomulagið felur meðal ann-
ars í sér að kennarar við bíliðnað-
arbraut skólans munu afla sér
þekkingar erlendis á slíkum vélum
og mun Metan hf. standa straum af
ferðakostnaði. Einnig munu Borgar-
holtsskóli og Metan hf. koma upp
búnaði til notkunar við kennsluna
auk þess sem viðhlítandi kennslu-
efni verður útbúið.
Hluti kennslunnar mun felast í
því að breyta venjulegum bensín-
bíl í metanbíl og mun Metan hf.
útvega ökutæki og búnað til slíks.
Stefnt er að því að skólinn breyti
að minnsta kosti einum bíl á hverju
misseri og mun fyrsta ökutækið
verða á vegum skólans og meðal
annars ætlað til kennslu.
Síðan er ætlunin að Metan hf.
útvegi ökutæki og búnað til breyt-
inga, skólanum að kostnaðar-
lausu.
Með þessu móti verða nemend-
ur bílaiðnaðarbrautar virkir þátt-
takendur í þróun íslensks sam-
félags í átt að nýju eldsneyti.
Verkefnið er styrkt af þróunar-
sjóði menntamálaráðuneytisins og
Orkusjóði.
Í tilefni af opnu húsi í Borgar-
holtsskóla í dag, milli klukkan 14
og 15, verða nokkur metanöku-
tæki til sýnis á staðnum. Þar verða
líka til sýnis nýr Volvo XC90 jeppi
og nýjasta gerð af bilanagreini,
sem dæmi um nýjustu tækni og
tölvubúnað til viðgerða. Til sam-
anburðar hefur verið fenginn að
láni Volvo 244 árgerð 1988, sem
ekinn er 280.000 km, sem verður
sýndur við hliðina á þeim nýja.
Vélfræði metanvéla kennd
í Borgarholtsskóla
Á opnu húsi í dag verða metanökutæki til sýnis í Borgarholtsskóla en þar hefst á
næstu önn kennsla í vélfræðum metanvéla. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Frumsýndur síðar í mánuðin-
um, nær óbreyttur frá hug-
myndaútgáfu.
Á bílasýningunni í París, sem hefst
28. september, mun gestum gefast
kostur á að berja augum fram-
leiðsluútgáfu nýrrar Hondu Civic
R-Type, sem var sýnd sem hug-
myndabíll fyrr á þessu ári.
Vélin verður sú sama og í fyrri
útgáfunni,
197 hestöfl,
en yfirbygg-
ingin verður
splunkuný
Civic. Enn
hafa ekki
verið birtar
myndir af
endanlegri
útgáfu en
myndirnar
sem hér sjást eru af hugmynda-
útgáfunni og munu vera mjög
nærri lagi.
Nýr Civic
R-Type
Yfirbyggingin er sport-
leg fyrir en R-Type
útgáfan er algjör þota.
R-Type er með 197 hestafla vél og
ýmsum auðkennum til að greina hann
frá venjulegum Civic, eins og vindskeið-
um og svo auðvitað rauða „R“-inu.