Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 23
SÖFNUNARSÍMINN
907 2020
Tomma finnst skemmtilegast þegar hann má velja í leikskólanum.
Þá velur hann að kubba eða leika með pleimó. Tommi ætlar að
verða flugmaður þegar hann verður stór. Tommi gengur til góðs í
dag með pabba sínum og systur.
Tómas Schalk Sóleyjarson, 4 ára
101 Ráðhús Reykjavíkur
103 Austurver
104 Laugardalslaugin
105 Kjarvalsstaðir
107 Vesturbæjarlaugin
109 Félagsmiðstöðin Hólmasel
110 Árbæjarlaug
111 Breiðholtslaug
112 World Class Spönginni
112 Grafarvogslaug
113 Ingunnarskóli
170 Sundlaug Seltjarnarness
200 Sjálfboðamiðstöð Kópavogs-
deildar, Hamraborg 11
200 Snælandsskóli
200 Digranesskóli
200 Sundlaug Kópavogs
200 Sundlaugin Versalir
200 Smárinn – íþróttahús Breiðabliks
210 Garðabæjardeild RKÍ, Garðatorgi
220 Sjálfboðamiðstöð Hafnarfjarðar-
deildar, Strandgötu 24
Uppl‡singar um söfnunarstö›var á landsbygg›inni í síma 570 4000 og á www.redcross.is
Sjálfbo›ali›ar: Muni› eftir persónuskilríkjum!
Söfnunarstö›var á höfuðborgarsvæðinu opna kl. 10.00
Lucias missti móður sína fyrir skömmu úr alnæmi og býr hjá
afa sínum og ömmu. Hann kemur í leikskólann þegar hann
getur, en stundum er hann of veikur til að mæta. Lucias finnst
allt sem hann lærir í skólanum skemmtilegt.
Lucias Mafukeni, 4 ára
Freyja Sól gefur mömmu sinni stundum bleikan koss á morgnana. Henni
finnst best að vera heima að púsla eða leika við Sigrúnu Freyju, vinkonu
sína, og hún ætlar að verða hafmeyja þegar hún verður stór. Freyja Sól og
mamma hennar ætla að ganga til góðs í dag.
Freyja Sól Kjartansdóttir, 3 ára
Patricia missti báða foreldra sína úr alnæmi árið
2001 og hefur búið hjá móðursystur sinni síðan.
Hún er frekar feimin, en finnst gaman að vera í
leikskólanum með öllum hinum börnunum.
Patricia ætlar að verða kennari þegar hún verður
stór.
Patricia Katalwa, 6 ára
Bjarni býr með mömmu sinni og pabba og litlu systur í Grafarvoginum.
Honum finnst Batman betri en Superman og ætlar að verða slökkviliðs-
maður eða leikari þegar hann verður stór. Bjarni gengur til góðs með
fjölskyldu sinni í dag.
Bjarni Björnsson, 6 ára
Maria missti móður sína úr alnæmi árið 2001 og hefur búið hjá
ömmu sinni síðan. Henni finnst skemmtilegast að læra, dansa og
syngja og fer fyrir leikskólasystkinum sínum í leik og starfi. Maria
ætlar að verða læknir þegar hún er orðin stór svo hún geti hjálpað
öðrum sem eiga um sárt að binda.
Maria Charles, 6 ára
Úlfari Smára þykir skemmtilegast að klifra í trjám og vera í ævintýra-
leikjum eins og risaeðluleik. Hann ætlar að verða slökkviliðsmaður
þegar hann verður stór. Úlfar Smári ætlar að ganga til góðs í dag með
mömmu sinni og bróður.
Úlfar Smári Jónsson, 5 ára
Chikumbutso missti pabba sinn úr alnæmi en býr með mömmu
sinni og systkinum. Hann langar að verða lögreglumaður þegar
hann verður stór.
Chikumbutso Stafford, 5 ára
Landssöfnun Rauða kross Íslands 9. september 2006
Í dag stendur Rauði kross Íslands fyrir landssöfnun undir kjörorðunum „Göngum til góðs“. Fjöldi sjálfboðaliða
munu ganga í öll hús á landinu og safna framlögum. Söfnunin er tileinkuð börnum í sunnanverðri Afríku, sem
eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Söfnunarféð verður nýtt óskert til að bæta líf þeirra.
Rauði krossinn biður um aðstoð þína í dag. Þátttaka þín getur verið með þrennum hætti:
Gakktu til góðs
Húsin á landinu eru mörg – því þarf marga sjálfboðaliða,
til að ganga í hús í einn eða tvo klukkutíma.
Verum viðbúin heimsókn
Öll framlög eru vel þegin.
Hringdu í 907 2020
Ef þú verður ekki heima í dag, eða hefur ekki handbært fé þegar sjálfboðaliði heimsækir þig,
getur þú hringt í Söfnunarsímann 907 2020. Þá færist 1.200 kr. framlag á næsta símareikning.
2
3
1
Hólmfríður vann lengst af sem framkvæmdastjóri stéttarfélaga en settist
nýverið á skólabekk og nemur nú sagnfræði við Háskóla Íslands. Hólmfríður
hefur alla tíð haft brennandi áhuga á öllu sem viðkemur mannréttindum og
umhverfisvernd og verið virk í margvíslegu félagsstarfi því tengdu. Hún ætlar
að ganga til góðs í dag ásamt nokkrum afkomenda sinna.
Hólmfríður Árnadóttir, 67 ára
GÖNGUM TIL GÓÐS Í DAG
Helga er sjálfboðaliði í Kópavogsdeild Rauða kross Íslands, svokallaður
heimsóknarvinur. Í vetur heimsótti Helga eldri konu vikulega og langveik
börn í Rjóðrinu í Kópavogi í sumar. Helga er að læra hjúkrunarfræði og fyrir
tveimur árum var hún sjálfboðaliði á barnaspítala í Höfðaborg í Suður-Afríku.
Hún stefnir að því að vinna við hjálparstörf í framtíðinni. Helga ætlar að
ganga til góðs með vinkonu sinni í dag.
Helga Guðmundsdóttir, 23 ára
Rose gekk í Rauða krossinn fyrir 4 árum og er umsjónarkona með
heimahlynningu í þorpinu Nkalo þar sem hún heldur utan um hóp
sjálfboðaliða. Faðir Rose lést úr alnæmi fyrir nokkrum árum og hún
býr með systur sinni. Rose þurfti að hætta í skóla en er ákveðin í að
byrja aftur núna þegar hún hefur efni á að borga skólagjöld.
Hallgrími finnst skemmtilegast að leika sér í frímínútunum í
skólanum, en líka í heimilisfræði og tölvum. Hann ætlar að verða
hnífagerðarmaður í Sviss eða Afríku þegar hann verður stór.
Hallgrímur gengur til góðs með fjölskyldu sinni í dag.
Rose M’manga, 23 ára
Hallgrímur Kjartansson, 7 ára
Jean býr í þorpinu Nkalo og er formaður sjálfshjálparhóps Rauða
krossins fyrir alnæmissmitaða. Hún missti eiginmann sinn úr
alnæmi árið 2003 og stuttu síðar greindist hún sjálf jákvæð. Jean
hefur unnið að því að eyða fordómum í garð alnæmissmitaðra og að
sem flestir fari í alnæmispróf til að fá aðgang að lyfjum ef þeir
þurfa.
Jean Macheso, 45 ára
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
6
1
7
7
Samskip kosta birtingu auglýsingarinnar