Fréttablaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 44
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Lilja Nótt hljómar þreytuleg. Það
stafar líklegast af framkvæmdum
utan við íbúðina hennar að Lindar-
götu, sem hún flutti inn í fyrir einu
og hálfu ári eftir víðtæka leit að
hentugu húsnæði á höfuðborgar-
svæðinu. Nánar tiltekið 101.
Gagnstætt því sem flestu fólki
þætti var hún fyrst óánægð með
að íbúðin skyldi vera nýuppgerð
þegar hún tók við henni. Hún er
nefnilega vön því að búa í göml-
um húsum og fannst sálina vanta
alveg í íbúðina fyrst hún lét ekki
á sjá. Lilja lagði sig því fram við
að endurvekja sál hennar, meðal
annars með því að fylla hana af
gömlum hlutum, en af þeim á hún
nóg.
„Mér finnst gaman að safna
gömlu dóti og hef til allrar ham-
ingju fengið mikið gefins, enda
hafa íslenskir nemar ekki mikið
fé á milli handanna,“ útskýrir
Lilja Nótt, sem er á öðru ári í leik-
list við Listaháskóla Íslands Hún
hefur leikið töluvert bæði á sviði
og í kvikmyndum, síðast í franskri
mynd sem frumsýnd verður á
næsta ári.
„Frænka mín stóð til dæmis í
flutningi um daginn úr húsi sem
hún hefur búið í alla ævi og bauð
mér að kíkja í heimsókn til að
athuga hvort mig langaði í eitt-
hvað,“ heldur Lilja áfram. „Hún á
svo mikið af skemmtilegum hlutum
að helst hefði ég þurft að dvelja hjá
henni í nokkra mánuði til að kom-
ast yfir að skoða þetta allt saman.“
Lilja segist loks vera orðin nokk-
uð ánægð með þá mynd sem íbúðin
hefur tekið á sig eftir að hún flutti
inn og ætlar sér að vera um kyrrt
þótt það hafi í fyrstu hvarflað að
henni að flytja. Hún er líka komin
með yfir sig nóg af flutningi enda
skipt sautján sinnum um íverustað
á síðastliðnum sjö árum.
Spurð hvort hún eigi sér ein-
hvern uppáhaldsstað í íbúðinni
segist Lilju líða sérlega vel á svöl-
unum, sem eru mikið nýttar á
sumrin. „Þá er ég með allt opið út
en við það stækkar íbúðin um tíu
fermetra,“ segir hún. „Ég hef átt
mikið af góðum stundum þarna
með vinum mínum og oft setið að
skrafi langt fram eftir nóttu.“
Lilja bætir við að einnig sé gott
að tæma hugann úti á svölunum,
sérstaklega eftir strembinn dag
í skólanum þar sem hún er alltaf
að kanna nýjar hliðar á sjálfri sér.
„Stærsta áskorunin í ár verður að
ögra sjálfri mér í náminu með því
að njóta þess að klúðra málunum
og læra af reynslunni. Maður verð-
ur að sprengja utan af sér tiltekin
höft,“ segir hún full af eldmóði og
þreytan sem greina mátti í upphafi
samtalsins er auðheyrilega liðin úr
röddinni. - rve
Sóttist eftir húsi með sál
Lilja Nótt Þórarinsdóttir safnar fágætum munum og finnst fólk hafa allt of ríka til-
hneigingu til að henda hlutum sem hafa safnaragildi.
Kisulampi sem Lilja fékk í afmælisgjöf frá
vini sínum, en hún telur hann hafa verið
keyptan í versluninni Kisunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þennan skemmtilega síma, sem lítur út eins og leikfangaflugvél, fékk Lilja í gjöf frá vini
sínum eftir að hún týndi símanum sínum, en hún segir vini og vandamenn duglega við að
færa sér skemmtilega hluti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Handmáluð mynd frá Kúbu af Che Guevara
sem Lilja fékk frá foreldrum sínum. Hún
hrífst af þessum uppreisnarmanni og er þess
fullviss að þau hafi verið gift í síðasta lífi.
Lilju finnst ekki aðeins gaman að safna
gömlum hlutum heldur líka eyrnalokkum.
Hún átti sér engan sérstakan geymslustað
fyrir þá og fannst því tilvalið að hengja þá í
gluggatjöldin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íbúð Lilju er uppfull af alls kyns skemmtilegum hlutum, bæði nýjum og gömlum.
Lilja býr í íbúð á annarri hæð á Lindargötu
en hún vill helst búa í 101 Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lilju líður vel á svölunum heima hjá sér,
sérstaklega á sumrin þegar hún getur haft
svalargluggana opna upp á gátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lilja er landsmönnum að góðu kunn fyrir
leik og fór til að mynda með stórt hlutverk
í kvikmyndinni Strákarnir okkar í leikstjórn
Róberts Douglas. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN