Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 74
 9. september 2006 LAUGARDAGUR Tvær og hálf vika eru nú liðnar frá því Natascha Kampusch strauk frá ræn- ingja sínum, Wolfgang Priklopil, eftir átta og hálft ár í nánast algerri einangrun. Viðtölin sem birtust nú í vikunni, bæði í austurríska ríkis- sjónvarpinu og tveimur austur- rískum blöðum, hafa vakið gríðar- mikla athygli um heim allan. Sálfræðingar sem rætt hefur verið við í fjölmiðlum eru sammála um að það muni taka hana langan tíma að jafna sig. Þó hefur það vakið athygli hversu skýr hún hefur verið í tali og hvað hún virðist taka á raunum sínum af miklum þroska. Sumir hafa þó lýst efasemdum um hve skynsamlegt sé að hún hafi veitt opinber viðtöl svona snemma. Eftir að Natascha slapp út hefur hún dvalist á sjúkrahúsi í Vínar- borg þar sem hún segir að sér líði vel, umkringd læknum og sálfræð- ingum. Það eina sem hrjái hana sé kvef, sem hún var ekki lengi að smitast af eftir að hún slapp úr einangruninni. Vandræðalegt að sjá sig í sjónvarpi Eftir að viðtölin birtust hefur hún þó áfram tjáð sig lítillega við fjöl- miðla og segist fyrst og fremst vera óskaplega þakklát og hrærð yfir öllum þeim velvilja og áhuga sem hún hefur mætt. En um leið finnst henni umstangið hálf vand- ræðalegt. „Þegar ég sá sjálfa mig í sjónvarpinu fannst mér það svo- lítið óþægilegt. Eiginlega varð ég alveg rauð í framan,“ sagði hún í Kronen Zeitung, einum af fjölmiðl- unum þremur sem hún ákvað að veita viðtöl. Henni berst gífurlega mikið magn af bréfum og biður hún um skilning á því að hún geti ekki svar- að þeim öllum, og ekki heldur þegið allar þær gjafir sem henni berast. Hún muni síðar setja þær á uppboð fyrir góðan málstað. Hún segist einnig vilja leiðrétta þann misskilning að Priklopil hafi kennt henni að tjá sig jafn skýrt og greinilega og raun ber vitni. „Það lærði ég af sjálfri mér. Hann kenndi mér það ekki.“ Hún tekur það fram að hún hafi alltaf lesið mikið, líka áður en henni var rænt. Í Kronen Zeitung segir líka að í fangavistinni hafi hún lesið allt sem hún kom höndum yfir, meira að segja það sem stóð utan á umbúða- pakkningum og tannkremstúpum. Reyndi áður að flýja Í þriðja hluta viðtalsins við Kronen Zeitung, sem útdrættir voru birtir úr á vefsíðu blaðsins í gær, segist hún áður hafa reynt að flýja. „Einu sinni hljóp ég meira að segja út um garðhliðið. Það var eins og hjá fólki sem getur ekki yfirgefið húsið þótt allt sé opið. Mig fór að svima, ég gat ekkert séð lengur og ég fór aftur til baka og lét eins lítið bera á því og ég gat. Til þess að hann tæki ekki eftir neinu.“ Einu sinni reyndi hún líka að stökkva út úr bifreiðinni á ferð. Hann greip í hana og ók áfram í þvílíku ofboði að hún kastaðist til í bílnum. Lífið í einangruninni var fábreytt en þó reyndi hún að nota það eftir bestu getu til þess að styrkja sig og þroskast. „Eiginlega fór ég alltaf snemma á fætur. Ljósið kviknaði sjálfkrafa klukkan sjö. Það var ákveðin regla á hlutunum. En það var aldrei vor, sumar, haust eða vetur. Eins og hjá öðrum börnum sem ganga í skóla og fara í frí og hlaupa í fangið á mömmu sinni. Á kvöldin skipti það ekki svo miklu máli með ljósið, hvort það var fyrr eða seinna sem allt varð svart.“ Hún segist fljótt hafa fundið þörf fyrir það að gera sig heima- komna í einangruninni. „Þá verður hræðslan einfaldlega að víkja, ann- ars er ekki hægt að lifa hana af.“ Ef eitthvað kæmi fyrir Priklopil Eitt það hræðilegasta var biðin þegar hann fór út úr húsi. Þá fyllt- ist hún ótta við að eitthvað kæmi fyrir hann: „Slys, hjartaáfall. Þá kemst ég aldrei aftur út. Hve lengi endist þá loftræstingin? Lengur en ég lifi?“ Hún segist ekki hafa skipulagt flótta sinn fyrirfram, en frá tólf ára aldri hafi hún stöðugt hugsað um það, hvenær hún yrði tilbúin til þess að flýja. Þegar stundin kom tók hún ákvörðun mjög skyndilega. „Ég vissi á þeirri stund, að ef ég gerði það ekki nú, þá kæmi tæki- færið kannski aldrei aftur.“ Síðustu mánuðina hafði hún sagt honum að hún myndi flýja, ef hún fengi til þess tækifæri. Hún sagðist þó hafa haft miklar áhyggj- ur af því að „eyðileggja heims- mynd“ vina hans og nágranna. „Hann var svo almennilegur og hjálpfús. Alltaf vingjarnlegur. Allt- af svo nákvæmur. Og ég vildi held- ur ekki gera móður hans það, að hún myndi kynnast þessari hlið á syni sínum.“ Í viðtali við vikuritið News seg- ist Natascha hafa spurt sig aftur og aftur hvers vegna þetta hefði endi- lega þurft að koma fyrir hana, en ekki einhvern annan. „Ég hugsaði alltaf: Ég er örugg- lega ekki kominn í heiminn til þess að láta loka mig inni og eyðileggja líf mitt gjörsamlega. Ég fylltist örvæntingu vegna þessa ranglæt- is. Mér leið alltaf eins og einhverju hænugreyi í útungunarbúri. Þú hefur ábyggilega séð klefann minn í sjónvarpi og fjölmiðlum. Þá veistu hvað hann var lítill. Það fyllti mig örvilnan.“ Jarðaður með leynd Priklopil framdi sjálfsmorð með því að fleygja sér fyrir járnbraut- arlest fáeinum klukkustundum eftir að Natascha slapp. Hann var jarðaður með leynd í gær að viðstöddum fámennum hópi ætt- ingja og kunningja. Gröfin er ekki merkt réttu nafni til þess að koma í veg fyrir að henni verði raskað. Hún segir sjálfsmorð Priklopils ekkert annað en sóun. „Enginn ætti að drepa sig. Hann hefði getað gefið mér miklu meiri upplýsingar og sérstaklega þó lögreglunni.“ Sjálf hefur Natascha ekkert viljað segja um það hvort Priklopil hafi áreitt hana kynferðislega. Hún biður um skilning á því að hún treysti sér ekki til að ræða við- kvæm mál strax. Austurríska lögreglan bíður þess enn að fá nánari upplýsing- ar frá henni um framferði mann- ræningjans, vistina í einangrun- inni og fleira sem tengist málinu. Einkum virðist lögreglan þó áhugasöm um að komast að því hvort Priklopil hafi staðið einn að mannráninu, eða hvort einhver hafi hugsanlega verið í vitorði með honum. Þar sem Priklopil er látinn verður málið látið niður falla ef ekki þykir ástæða til að gruna neinn annan um aðild að því. gudsteinn@frettabladid.is Varð sem lömuð þegar hún reyndi að flýja ÍVERUSTAÐUR NATÖSCHU Í þessu litla herbergi hafðist hún við í meira en átta ár, lengst af án þessa að hitta neinn annan en ræningja sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY NATASCHA KAMPUSCH Mörgum kom á óvart hversu skýr og ákveðin hún var í sjónvarps- viðtali sem hún veitti minna en hálfum mánuði eftir að hún slapp úr einangruninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.