Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 19

Fréttablaðið - 09.09.2006, Side 19
Exista er á meðal öflugustu fyrirtækja landsins og nema heildareignir þess yfir 300 milljörðum króna. Félagið starfar á sviði fjármála- þjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, m.a. undir merkjum VÍS og Lýsingar. Exista er jafnframt kjölfestufjárfestir í nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta fjárhags- legan styrk sinn til frekari uppbyggingar hér á landi og erlendis. Þann 15. september er fyrirhugað að skrá hluti félagsins í Kauphöll Íslands. Ráðgjöf KB banka veitir upplýsingar vegna hlutafjárútboðsins í síma 444 7000 og tölvupósti existautbod@kbbanki.is. Exista hf., kt. 610601-2350 Útgefandi Úthlutun Skráning áskriftar Greiðsla Niðurstaða útboðs og skráning í Kauphöll Seljandi í hlutafjárútboði Umsjónaraðili útboðs og skráningar Útgáfa og afhending hluta Kaupþing banki hf., kt. 560882-0419 Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf., kt. 560882-0419 Áskriftum í almenna útboðinu skal skila rafrænt á sérstöku formi á vef KB banka, www.kbbanki.is. Áður en kemur til áskriftar þarf fjárfestir að gera grein fyrir sér með eftirfarandi aðgangsauðkennum á áskriftar- forminu; A með notandanafni og lykilorði fyrir KB Netbanka, eða B með kennitölu og lykilorði í starfsmannaútboði, eða C með kennitölu og lykilorði sem fjárfestir pantar við upphaf áskriftar og fær sent um hæl með tölvupósti. Útboðs- og skráningarlýsing er gefin út á ensku undir heitinu Prospectus. Lýsingin er gefin út rafrænt á heimasíðu útgefanda, www.exista.com. Lýsinguna má einnig nálgast á heimasíðu umsjónaraðila og seljanda, www.kbbanki.is eða www.kaupthing.net. Lýsingin er jafnframt birt í fréttakerfi Kauphallar, news.icex.is. Innbundin eintök liggja frammi hjá Exista að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Kaupþingi banka, Borgartúni 19 í Reykjavík. Útboðs- og skráningarlýsing Almennt útboð á hlutum í Exista hefst mánudaginn 11. september næstkomandi og stendur til miðvikudagsins 13. september kl. 17:00. 65.000.000 hlutir eru boðnir almenningi á genginu 21,5 krónur fyrir hvern hlut, samtals að andvirði 1.397,5 milljóna króna. Lágmarksáskrift er 5.500 hlutir að andvirði 118.250 króna og Hámarksáskrift er 2.000.000 hlutir að andvirði 43 milljóna króna. Almennt hlutafjárútboð 11.–13. september á www.kbbanki.is Reykjavík, 9. september 2006 Komi til þess að áskriftir verði umfram þá 65.000.000 hluti sem boðnir eru í almenna útboðinu, þá verður seldum hlutum úthlutað til áskrifenda með eftirfarandi hætti: A Hlutfallslegur niðurskurður mun nema allt að 50% af hverri áskriftarfjárhæð, og B ef samanlagðar áskriftir eru enn umfram 65.000.000 hluti eftir 50% hlutfallslegan niðurskurð, þá verður til viðbótar flötum niðurskurði beitt á áskriftirnar þannig að hámark úthlutaðrar áskriftar verður lækkað uns samanlagðar áskriftir nema 65.000.000 hlutum. Frá og með 14. september 2006 má nálgast tilkynningu um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum á vefsíðu KB banka með því að nota sömu aðgangsauðkenni og við skráningu áskriftar. Frá 14. september getur jafnframt hver og einn áskrifandi nálgast greiðsluseðil vegna úthlutaðra hluta í sínum netbanka. Greiðslufyrirmæli verða í formi greiðsluseðils sem greiða má í íslenskum banka, sparisjóði eða netbanka. Greiðsluseðlar verða ekki sendir áskrifendum með pósti. Gjalddagi er 14. september en greiðslu skal inna af hendi eigi síðar en 20. september 2006 í samræmi við ofangreind greiðslufyrirmæli. Greiðslukvittun verður send til áskrifanda eftir að greiðsla hefur borist með réttum hætti. Hlutir sem seldir er í útboðinu eru gefnir út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands. Gert er ráð fyrir að hlutir verði afhentir hverjum kaupanda einum viðskiptadegi eftir að greiðsla berst. Stjórn Kauphallar Íslands hefur samþykkt að skrá alla útgefna hluti Exista í Kauphöll Íslands. Kauphöllin hefur veitt tímabundna undanþágu frá skilyrði um lágmarksfjölda hluthafa en í kjölfar útboðs er gert ráð fyrir að því skilyrði verði fullnægt. Óskað hefur verið eftir því að EXISTA verði auðkenni félagsins og hluta þess hjá Kauphöllinni. Viðskiptalota bréfanna verður 5.000 hlutir. Viðskiptavakt verður með hluti félagsins frá skráningardegi. Niðurstaða útboðsins verður tilkynnt Kauphöll Íslands og fjölmiðlum 13. september 2006 eftir klukkan 17:00 og birt í fréttakerfi Kauphallarinnar 14. september 2006. Skráning í Kauphöll Íslands er fyrirhuguð 15. september 2006, en endanleg dagsetning verður tilkynnt með dags fyrirvara í fréttakerfi Kauphallarinnar. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. Staðfestingin er birt í lok áskriftar og hana má prenta út. Eftir að áskrift hefur verið gerð og fram til 31. október 2006 er einnig hægt að nálgast rafræna staðfestingu á vefsíðunni með því að nota sömu aðgangsauðkenni og við skráningu áskriftar. Einnig má nálgast staðfestinguna í KB Netbanka. Áskrift í útboðinu er bindandi fyrir áskrifanda. Seljanda er heimilt að krefjast tryggingar frá fjárfestum sem skrá áskrift yfir 5 milljónum króna. Áskrift í almenna útboðinu er opin einstaklingum með íslenska kennitölu og lögaðilum sem hafa íslenska kennitölu, að því gefnu að þeim sé ekki meinuð þátttaka samkvæmt lögum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.