Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÆTU LEYST AF HÓLMI
ÞRIGGJA PUNKTA BELTI
EN VERÐA EKKI TILBÚIN Í
FRAMLEIÐSLU Á NÆSTU
ÁRUM.
Þegar Ford 250 Super
Chief hugmyndabíllinn
var kynntur á dögunum
voru það öryggisbeltin
sem vöktu hvað mesta
athygli.
Þar gaf að líta uppblás-
anleg belti, sem og
fjögurra punkta hönnun
sem líkist einna helst
belti og axlaböndum. Hvorutveggja er liður í viðleitni Ford til að
finna arftaka þriggja punkta beltanna sem hafa verið staðallinn í
bílaiðnaðinum síðan 1974.
Enn eru mörg ár í að þessi tækni rati í framleiðslu en Ford er líka
að gera tilraunir með öryggisbelti með innbyggðum árekstrar-
púða.
Þrátt fyrir allan þann öryggisbúnað sem hefur litið dagsins ljós á
undanförnum árum eru það ennþá bílbeltin sem bjarga flestum
lífum, fleirum en allur annar búnaður til samans. Í Bandaríkjun-
um einum koma þau í veg fyrir 15.200 dauðsföll á ári og í hvert
sinn sem notkunartölur þeirra hækka, fækkar banaslysum.
Ný tegund bílbelta
Ein tegund nýju bílbeltanna sem
Ford er að skoða, svokallað belta og
axlabandabelti.
Að aka um á BMW blæjubíl og láta
goluna leika um kinn - það er Þröstur
Þór Höskuldsson rafeindavirki alveg
hæstánægður með.
„Ég hef átt dýrari bíla en þessi er sá besti.
Það er svo gaman að keyra hann. Fjöðrunin
fín og hann togar vel þó hann sé á lágum
snúningi,“ segir Þröstur Þór þegar hann
sýnir blaðamanni BMW-inn sinn sem er
sportbíll af árgerð 2004. Hann telur algeran
misskilning að blæjubílar henti ekki veðr-
áttunni á Íslandi og segir fráganginn svo
góðan að blæjan sé eins og hús. Svo kveðst
hann taka hana niður að meðaltali annan
hvern dag yfir sumarið. „Þegar mótorhjóla-
veður er þá er líka gott að vera á opnum bíl
og ná sér í lit,“ segir hann glaðlega.
BMW-inn hans Þrastar er eðalvagn, leður-
klæddur að innan og á 18 tommu felgum.
Hann keypti hann nýjan úr kassanum og er
búinn að eiga hann í tæp þrjú ár. Í fyrra-
sumar kveðst hann hafa farið í fimm vikna
ferð um Evrópu á gæðingnum og telur vand-
fundinn betri ferðabíl. „Farangursrýmið er
stórt, öryggisbúnaðurinn fullkominn og
aksturseiginleikarnir í algerum sérflokki –
það er að segja á malbiki, á malarvegum er
hins vegar best að halda sig á 20-30 kíló-
metra hraða,“ segir hann brosandi. Þótt
krafturinn sé góður í 231 hestafla vélinni
segir Þröstur bílinn ekki eyða nema 11-12
lítrum á hundraði á sæmilega grimmri
keyrslu og hafa farið niður í sjö. Hann
dreymir samt um að setja í hann blásara og
koma kraftinum með því í 350 hestöfl. „Ég
er ákveðinn í að eiga bílinn áfram,“ segir
hann og bætir við: „B&L umboðið er líka svo
gott.“ gun@frettabladid.is
BMW –Z4 ROADSTER 2004
6 strokka vél með 24 ventla
231 hestafl
6 gíra beinskipting
3.07 afturdrif án LSD
Kældir bremsudiskar ABS DSC
0-100 km 5,9 sek.
Og golan kyssir kinn
Þröstur tók Bimmann til kostanna á hraðbrautunum Evrópu í fyrrasumar og segir aksturseiginleikana í algerum sérflokki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stórafmælissýning Brimborgar
á Akureyri byrjar klukkan 11 í
dag. Um þessar mundir eru tíu
ár síðan Brimborg hóf starfsemi
á Akureyri. Allir þeir sem vilja
fagna þessum tímamótum
með Brimborg eru hjartanlega
velkomnir á milli klukkan 11 og
16 í dag og á milli klukkan 12 og
16 á morgun, sunnudag. Boðið
verður upp á kaffi og kleinur.
Ferðamálaráðstefnan verður
haldin 16. nóvember á Hótel
Loftleiðum. Meginþema ráð-
stefnunnar að þessu sinni eru
gæðamál í ferðaþjónustunni.
Gæði eru ein af meginstoðunum
í Ferðamálaáætluninni 2006-
2015 og forsenda frekari vaxtar
er að íslensk ferðaþjónusta sé
samkeppnishæf í gæðum.
Café Flóru verður lokað fyrir
veturinn. Síðasti opnunardagur
kaffihússins verður á morgun
sunnudag.
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR ]
SLAUFA
Sólarupprás Hádeigi Sólarlag
Reykjavík 6.32 13.25 20.16
Akureyri 6.13 13.10 20.04
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
9. september, 252. dagur
ársins 2006.
JEEP GRAND CHEROKEE
Öruggur og þægilegur jaxl sem
getur tekist á við ólíkar aðstæður
BÍLAR 2
ELLEFU ÞÚSUND KÍLÓ-
METRA Á HESTBAKI
Willi Kilwig og Doris Koch
koma árlega til Íslands til að
fara í hestaferð um íslenska
náttúru
FERÐIR 6