Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 36

Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 36
[ ] Willi Kilwing og Doris Koch koma árlega til Íslands til að fara í hestaferð um íslenska náttúru. Eftir síðustu ferð þeirra um landið núna í ágúst höfðu þau lagt að baki ellefu þúsund kílómetra á hestbaki. Eftir margra daga ferð um hálendi Íslands náði blaðamaður Frétta- blaðsins tali af Willi og Doris, sem höfðu örstutta viðdvöl á gistiheim- ilinu Flóka áður en þau voru drifin ásamt ferðafélögum sínum í Bláa lónið. „Ég fór í fyrsta sinn í ferð með Íshestum árið 1988 og hef komið hingað á hverju ári síðan þá, stund- um einu sinni og stundum tvisvar. Við erum öll haldin Íslandítis- veikinni,“ segir Doris og hlær hjartanlega. Willi og Doris kynnt- ust fyrst í hestaferð árið 1989 og eru hluti af stærri vinahópi sem hefur myndast í ófáum hestaferð- um um landið. Willi kom í fyrsta sinn til Íslands árið 1984, þá með eiginkonu sinni. Ástæðan var áhugi þeirra á hreinni náttúru Íslands em Willi segir að lítið af slíku sé að finna í Þýska- landi. Í ferð sinni urðu þau fyrir ýmsum hremmingum, festust í ám og lentu í ævintýrum. Það varð þó ekki nóg til að hræða hann burt og kom Willi aftur þremur árum síðar með dóttur sinni og fór í sinn fyrsta reiðtúr á íslenskum hesti. Þau urðu yfir sig hrifin og síðan þá hefur Willi komið einu sinni til tvisvar á ári til íslands til að fara í hestaferð. Eitt árið kom hann meira að segja þrisvar sinnum. Dóttir hans hefur unnið á íslenskum bóndabæ og kann íslensku og því er öll fjöl- skyldan djúpt sokkin í Íslands- veiki. Willi og Doris eiga bæði íslenska hesta í Þýskalandi. Doris á fjóra sem hún hefur ræktað sjálf. Hún lærði reiðmennsku á Íslandshestabúgarði í Þýskalandi og átti alltaf þann draum að eiga íslenskan hest og komast til Íslands. Þann draum lét hún ræt- ast árið 1973 þegar hún kom til Íslands í fyrsta sinn. Áhugi Willis á íslenska hestin- um vaknaði eftir að hann kynntist honum á Íslandi en áður hafði hann riðið út á stórum hestum í Þýskalandi. Hann á nú meðal ann- ars nokkra hesta hér heima og nokkra í útlandinu. Þegar Doris og Willi fóru í ferð með Íshestum nú í sumar tóku þau saman hve langt þau hefðu riðið með félaginu á öllum þeim árum sem þau hafa farið í ferðir með því. Kom þeim saman um að ellefu þúsund kílómetrar væri ekki fjarri lagi. Þrátt fyrir það segjast þau aldrei verða leið á þessu. „Það líður jú alltaf eitt ár á milli og maður hlakkar alltaf til, bæði til hestaferðarinnar og einnig að hitta gamla kunningja. Maður þekkir orðið bændurna, farar- stjórana og jafnvel hestana,“ segir Doris en í kringum ferðirnar hefur myndast allstór vinahópur sem heldur saman og hittist bæði hér á landi og erlendis. „Það eru nokkrir hlutir í lífinu sem maður verður aldrei leiður á, til dæmis að borða og ríða út,“ segir hinn 66 ára Willi, sem vill nefna Húsey á Norðausturlandi sem eftirminnilegasta staðinn sem hann hefur komið á á Íslandi. Doris segist elska allt Austurland- ið. „Maður ríður upp og niður, hver dagur er ólíkur þeim sem á undan gekk. Þar eru heitar laugar, jökullinn og allt sem einkennir Ísland,“ segir Doris dreymin og er staðráðin í að koma aftur að ári. Það ætti að vera auðvelt enda ákváðu Íshestar að gefa þeim Willi hvoru sína hestaferðina að eigin vali vegna þess áfanga að hafa riðið ellefu þúsund kílómetra með fyrirtækinu. solveig@frettabladid.is Ellefu þúsund kílómetra á hestbaki um Ísland Willi og Doris við komuna til Reykjavíkur. Þau ætla að koma aftur að ári og bæta þá enn fleiri kílómetrum við þá ellefu þúsund sem þau hafa þegar lagt að baki. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Farþegum sem fóru um Flug- stöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp tíu prósent í ágúst frá sama mánuði í fyrra. Þeim sem ferðast um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgar alltaf frá ári til árs. Farþegum fjölgaði um tæp 10 prósent í ágúst frá sama tíma í fyrra, eða úr tæpum 245 þús- und árið 2005 í rúmlega 269 þúsund nú. Þó fækk- aði þeim sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður- Atlantshafið um 14 prósent en á móti kemur að far- þegum til á frá Íslandi fjölgaði um tæp 15 pró- sent milli ára. Flugfarþeg- um fjölgar Alltaf fjölgar þeim sem fara um Leifs- stöð. Íslensk hönnun er ekki bara fyrir ferðamenn. Kíkið við á Skólavörðustígnum og fjárfestið í fallegum hlutum. Skálum Ferðafélags Íslands verður flestum lokað á næstu dögum og eftir það þarf að nálgast lykla á skrifstofu. Þetta er síðasta helgin í sumar sem skálar í Hrafntinnuskeri við Álftavatn, Hvanngil og Emstrur verða opnir. Einnig eru skálarnir við Hagavatn og Hvítárnes opnir fram í miðjan september en þar eru engir skálaverðir. Sama er að segja um skálana í Þverbrekkna- múla og Þjófadölum. Búið er að loka í Nýjadal og Norðurfirði. Hins vegar verða skálarnir í Land- mannalaugum og Þórsmörk opnir fram í október og verðir á staðn- um. Síðasta skálahelgin Skálinn í Þórsmörk verður opinn fram í október og verðir á staðnum. Sama gildir um Landmannalaugar. 27. janúar – 1 vika / 3. febrúar – 1 vika / 27. janúar – 2 vika Verð: 123.970 kr. á mann í tvíbýli í 1 viku Verð: 182.400 kr. á mann í tvíbýli í 2 vikur Saalbach - Hinterglemm er oft nefnt skíðaparadís Alpanna og hefur verið valið eitt af 10 vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis. Gist verður á 4 stjörnu hóteli í þorpinu Hinterglemm. Hótelið er vel staðsett í jaðri bæjarins, rétt við skíðalyfturnar. Fararstjórar dvelja allan tímann á hótelinu og skipuleggja daglegar ferðir um skíðasvæðið. Innifalið er hálft fæði og rútuferðir til og frá flugvelli. Fararstjórar: Sævar Skaptason & Guðmundur K. Einarsson s: 570 2790 www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir til Saalbach - Hinterglemm Skíðaferð – vel lesið Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband við Ruth Bergsdóttur | 550 5876 | ruth@frett.is Yfir 158.000 lesendur daglega* Sérblað um mat og vín * Meðallestur 12-80 ára, Gallup maí 2006 Fylgir Fréttablaðinu 14. september
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.