Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 37

Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 37
LAUGARDAGUR 9. september 2006 7 Veiðisumarið með Stefáni Jóni Hafstein Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is. Þá er september runninn upp, laxveiðiárnar lokast en við tekur sjóbirtingstíminn. Sigurður Pálsson, hönnuður sjóbirtingsflugu númer eitt, Flæðarmús- arinnar, er fjölfróður um birtinginn og notar ekki flóknar aðferðir. Hann segir að flugan eigi að fara hægt fyrir fiskinn, lætur hana venjulega reka á straumhraða eða dregur mjög hægt inn. En þreytist ekki á að prédika yfir mönnum að hafa sterkan taum. Það er nefnilega oft von á tröllum og 15-20 punda taumur engin ofrausn á straumflugurnar. Munið: sjóbirtingur er silungur! Sjóbirtingurinn er silungur, og hann nærist í ánum, andstætt laxinum. Sjógenginn urriði étur smálirfur og púpur ef klak er í gangi, og kemur upp í þurr- flugur ef skilyrði eru hagstæð. Pálmi Gunnarsson bendir mönnum á að nota kúluhausa, púpur og þvíumlíkt á birtinginn, ekki bara straumflugur. Og þegar aðstæður leyfa veiðir hann á smálirfur þegar klak er í gangi. Hægt er að fá sjóbirtinginn upp í yfirborðstökur á stórar þurrflugur og bombera þegar hlýtt er. Og auðvitað gárubragð. Niður með fluguna og hægt Almenna reglan er samt að flugan þarf að fá að fara niður, og margir kjósa hægtsökkvandi enda eða þyngdar flugur til þess. Þetta er ekki vegna þess að fiskurinn vill ekki koma upp. En á haustin er oft kalt, og þá leggst fiskurinn frekar, og eins er sjó- birtingur ljósnæmur fiskur. Þess vegna borgar sig að vakna snemma ef maður á dag í birtingi, og taka fyrstu köstin þegar skíma dags kemur á himin. Veiðivon er síst um miðjan dag. Síðan þurfa menn að vera gallharðir í ljósaskiptunum og veiða alveg fram í harða myrkur! Ég tel að líkurnar á því að veiða síðustu 10 mínúturnar fram í myrkur séu a.m.k. tuttugufaldar miðað við hádegið. Hvaða flugur? Straumflugur: Black Ghost, Flæðarmús, Mickey Finn, Gray Ghost, Dentist og Rektor. Appelsínugul- ur Nobber er skæður og sá svarti, Kötturinn, oft baneitraður, og svo má heldur ekki gleyma einni eftirlætisflugu okkar á flugur.is, Wolly Worm, þótt sjálfur veiði ég aldrei á hana! Yfirleitt látnar sökkva vel og dregnar hægt. Stærðir: 2-10. Púpur: Héra- eyra, Pheasant tail, Peacock, Montana og fleiri svartar, kastað andstreymis. Stærðir: 8-12. ,,Matar- miklar“ þurrflugur koma vel til greina. Túpur? Ja, því miður. Snældan hefur gert það gott í Tungu- fljóti. Höfuðlitir eru svart, rautt og appelsínugult. Silfruð sílislíki hafa reynst stórvel. Og svo má ekki gleyma einni af nýjustu flugum Sigga Páls: Dýrbít- inum. Sigurður segir að flugan sé í flokki mann- skaðaflugna, en það eru þær flugur sem geta hrein- lega gengið frá veiðimönnum vegna þess hve stóra fiska þær gefa. Góða sjóbirtingsskemmtun! Stefán Jón. Sjóbirtingstíminn Tvær ungar sjóbirtingsveiðistúlkur.. London Dungeon, eða Dýflissa Lundúna eins og það útleggst á íslensku, er fyrsta miðalda- hryllingssafn veraldar helgað sögu glæpa og refsinga. Í þessum dimmu og drungalegu grafhvelfingum, sem hýstu vöru- geymslur á Viktoríutímabilinu, er boðið upp á heljarinnar skoðunar- ferð. Farið er yfir algengar pyndingaraðferðir frá miðöldum, svo sem aflimanir og hengingar. Einnig er skýrt frá því hvernig glæpamenn voru soðnir lifandi upp úr logandi heitri olíu, þannig að ferðin hentar engan veginn við- kvæmum. Þá er hægt að feta í fótspor Kobba kviðristu, eða Jack the Ripper, hlaupa eftir Svipugöngun- um eða æpa um borð í Dómsdags- reiðinni. Þar að auki eru alls kyns pyndingartæki og -tól höfð til sýnis og skýrð út fyrir safngest- um. London Dungeon er við Tooley- stræti númer 28 í London. Hægt er að fræðast betur um safnið á síðunni www.thedungeons.com. roald@frettabladid.is Í för með Kobba kviðristu Safngestir geta komið sér fyrir í ýmsum pyndingartækjum en ættu ekki að láta sér bregða þótt draugar læðist upp að þeim. MYND/LONDONDUNGEON Ýmsar kynjaverur, sumar hverjar heldur ófrýnilegar að sjá, taka á móti gestum London Dungeon. MYND/LONDONDUNGEON ����������� ����������������������������������� ��������������������������������� ���� ������������ ���������� ����� ������ ����������������������� ���������������������� ���������������������������������� ������������������������������� ���������������� �������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ����������������������������������������������������������� ���� ������������ ���������� �������������� ��� ���������������������� ����� ����������������������������� ���������������������������������� �������� ������������������������� ������������� ���������������� ��������������������������������������������� ������������������� ������������������� �������� ������������������ NÝTT BLAÐ KOMIÐ ÚT! 8 HUGMYNDIR AÐ VINNUAÐSTÖÐU ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS DAVÍÐ ODDSSON Í HEIMSÓKN HJÁ GERÐI KRISTNÝJU BERGÞÓRA OG JÓEL MARGT SMÁTT
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.