Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 50

Fréttablaðið - 09.09.2006, Page 50
10 „Sandblástursfilma er vínylfilma sem er límd innan á gler og lítur út fyrir að vera eins og sandblástur á glerinu,“ segir Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Memo. „Notkunarmöguleikarnir eru talsvert miklir. Filman er mikið notuð í heimahúsum, til dæmis á baðherbergisglugga og í anddyri. Það er hægt að skrifa nöfn íbúanna í filmuna eða setja skraut. Hún er líka notuð í bílskúra og þess háttar, þar sem fólk vill ekki að sjáist inn en vill samt fá birtuna. Svona filma hleypir um 90% af birtu í gegn- um sig en brýtur niður sólarljósið og sólargeislarnir verða ekki alveg eins sterkir.“ Einar segir fólk geta komið með sérstakar óskir um hvernig það vill til dæmis skreyta filmuna og jafnvel sé hægt að litprenta á þær myndir. „Til dæmis mynd af barn- inu í baðherbergisgluggann. Það eina sem fólk þarf að hafa áður en það kemur til okkar er hugmynd um hvað það vill. Ef það er ekki með neinar myndir eða mynstur til- búin er hægt að velja úr stóru safni okkar og svo getum við líka teiknað eitthvað upp,“ segir Einar. Filmur sem þessar eru líka vinsælar hjá fyrirtækjum. „Fyrir- tæki og stofnanir nota þær til að skerma af glerveggi og það er hægt að skera í þær munstur eða merki fyrirtækisins, eða prenta það í lit á filmuna.“ Hjá einstaklingum njóta þær líka sívaxandi vinsælda. „Þetta vinn- ur alltaf á. Ég hélt að þetta mundi stoppa en sandblástursfilmur eru að verða stærri og stærri þáttur af vinnslunni okkar. Nú eru þær orðnar þekktar og viðurkenndar og byggingaverktakar eru farnir að panta þær í glugga, með húsnúmer- um, í hús áður en fólk flytur inn.“ Einar segir verðið koma flest- um þægilega á óvart og að filman eigi að endast jafnlengi rúðunni. „Hún skemmist ekkert nema fólk sé að vinna á þessu með verkfærum. Þetta er bara þrifið eins og venju- legt gler og hentar alls staðar, meira að segja inni í gufuböðum.“ - elí Hentar meira að segja í gufuböðum Hægt að skera mynstur og stafi í sandblástursfilmuna eða prenta á hana litmyndir. Einar segir sandblástursfilmurnar alltaf verða vinsælli og vinsælli. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Dæmi um hvernig hægt er að nota filmuna til að merkja hús með númeri og nöfnum íbúanna. Glerskilrúm verða líflegri og bjartari með flottri hönnun og sandblástursfilmu. Stærri en þig grunar! Krókhálsi 16 Sími 588 2600 www.velaver.is neðan á sófum var mjög vinsælt hérlendis á sjötta áratugnum og er þau gjarnan að finna inni á fínum heimilum eldri borgara í dag. Mörg þeirra hafa ratað inn í Góða hirðinn og aðra góða staði og munu eflaust fara þaðan inn á heimili unga fólksins. Ekki er annað hægt en að kætast þar sem þessir sófar eru mjög flottir og eru til mikillar prýði. Kögur... ■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ að mála einn vegg svartan ef þér þykir íbúðin þín vera tómleg. Settu svo stóran spegil á vegginn, kveiktu á kertum og stemningin verður mjög notaleg. Prófaðu...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.