Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 09.09.2006, Qupperneq 80
 9. september 2006 LAUGARDAGUR44 menning@frettabladid.is ! Kl. 11.00Samsýningin Mega vott stendur yfir í Hafnarborg í Hafnarfirði. Mynd- listarmennirnir Ragnhildur Stef- ánsdóttir, Anna Eyjólfsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Rúrí og Jessica Stockholder eiga verk á sýningunni. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga, milli kl. 11 og 17. > Ekki missa af... ljósmyndasýningu Spessa í 101 Gallery, við Hverfisgötu. Spessi sýnir ljósmyndir af kínverskum verkamönnum sem starfa við byggingarframkvæmdir við Kárahnjúka. gjörningi Magnúsar Árnasonar á sýningunni Pakkhús postul- anna í Hafnarhúsinu kl. 16 í dag. dýrtíð í íslenskum kvikmynda- húsum. Icelandic Film Festival sem nú stendur yfir í Regnbog- anum og Háskólabíói. Einleikhúsið setur upp spunaleikritið Þjóðarsál- ina nú á haustdögum en ekki dugir minna en stærðarinnar reiðhöll til að rúma þá sál. Hópur fimm atvinnuleikara undir stjórn leikstjórans Sig- rúnar Sólar Ólafsdóttur hefur skapað sýninguna út frá spurningunni um þessa meintu þjóðarsál og er þar unnið með viðhorf Íslendinga og tekið á ýmsum sammannlegum löstum og dyggðum. Þetta kann að vera í fyrsta sinn sem fyrrum þarf- asti þjónn landsmanna tekur með virkum hætti þátt í íslenskri leiksýningu en í sýningunni verður háþróaðri leikhúsvinnu steypt saman við sirkus- kúnstir, dans og áhættuatriði hesta auk þess sem hestakonur úr hópnum „Hrossabandið“ munu troða upp og syngja. Fjöldi aukaleikara og dans- ara kemur að sýningunni, meðal annars krafta- jötnar og fegurðardísir. Samkvæmt tilkynningu frá leikhópnum munu gestaleikarar og söngvarar líka setja svip sinn á sýninguna, jafnvel „heims- þekktir aðilar“, en eins og gefur að skilja verður gefið mikið rými fyrir hið óvænta í sýningunni. Á dögunum skrifuðu forsvarsmenn Einleikhúss- ins undir samstarfssamning við Landsbankann sem mun styrkja þessa karnivalísku ádeilu en áætluð frumsýning hennar er 8. október. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www. einleikhusid.is. Karnivalísk ádeila í reiðhöll REIÐHÖLL RÚMAR ÞJÓÐARSÁL Einleikhúsið setur upp karnivalískt spunaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fyrsta frumsýning Þjóð- leikhússins í vetur er verkið Sumardagur eftir norska leikskáldið Jon Fosse, ljúf- sárt hversdagsdrama um kunnuglegt fólk. Leikstjóri sýningarinnar, Egill Anton Heiðar Pálsson, útskýrir að Fosse beini sjónum sínum jafnan að lítilmagnanum, litla mann- eskjubarninu. „Hjá honum eru engin mikilmenni heldur fjalla verk hans um hversdagsátök sem við lendum öll í, áföll sem leysa eitthvað úr læðingi sem við ráðum ekki við.“ Hann útskýrir að tungumálið skipti veigamiklu hlutverki í verk- um Fosse. „Hann var tónlistar- maður, djassisti og reyndar rokk- ari líka. Fosse er mjög músíkalskur og skrifar í ákveðnum takti. En í orðunum sjálfum og því sem fólk- ið segir birtist í raun ekki neitt heldur verður skilningurinn til í núningnum milli þess sem persón- urnar eru að kljást við og þess sem það segir.“ Egill segir að textar Fosse birtist sumum eins og naum- hyggjuleg ljóð en það séu þeir alls ekki heldur líkir Egill skrifum hans við naumhyggjuraunsæi. „Fosse var fyrst þekktur sem ljóð- skáld en í glímu þeirra sem aldir eru upp við ljóðlist við stórar hug- myndir, tilfinningar eða upplifan- ir af heiminum, verða orðin færri. Ljóðskáldum tekst oft að leysa úr læðingi ákveðna upplifun hjá okkur sem ekki er til staðar við fyrsta lestur á ljóði. Þess vegna finnst mér Fosse skipta máli fyrir okkar tíma því við erum stöðugt að sérhæfa tungumálið og reyna að koma orðum yfir allt - sem er alls ekki hægt.“ Fosse skrifar á nýnorsku, sem er ekki eiginlegt talmál. „Það er tilbúið tungumál sem hefur þar af leiðandi enga agnúa af mállýsk- um, né er það bundið stéttum eða staðháttum,“ útskýrir Egill og bætir því við að þannig takist Fosse betur að miðla hinu sam- mannlega. Egill kynntist Fosse þegar hann vann að uppsetningu með honum í Berlín. Hann er nú ein skærasta stjarna norrænna leikbókmennta en þetta er í fyrsta skipti sem leik- rit hans fer á fjalir atvinnuleik- húss hér á landi. Verk hans hafa verið leikin í Útvarpsleikhúsinu og fyrr í vetur sýndi leikhópurinn Jelena verkið Purpura í Loftkast- alanum. Í lok október er von á Fosse hingað til lands í tengslum við málþing sem haldið verður honum til heiðurs á vegum Þjóð- leikhússins auk þess sem tvö önnur verka hans verða leiklesin. „Í verkunum hans gerast atburðir sem allir kannast við,“ útskýrir Egill en í Sumardegi hverfist atburðarásin um ástvina- missi. „Þetta eru hlutir sem við fyrsta lestur virðast litlir en það tekur tíma að kafa undir yfirborð- ið og þar verða verk hans mjög leikbær. Hann hefur ótrúlegt vald á því að ná með orðum utan um kvöl okkar tíma í sama, í sama hvaða formi það er.“ Með aðalhlutverkin í sýning- unni fara Kristbjörg Kjeld og Margrét Vilhjálmsdóttir, sem leika aðalpersónu verksins á ólíkum ald- ursskeiðum. Aðrir leikarar í sýn- ingunni eru Hjálmar Hjálmarsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Kjartan Guðjónsson. Um leikmuni og búninga sér Martins Eriksson en lýsinguna annst Rainer Eisen- brau, gervi hannar Kristín Thors en hárgreiðslan er í höndum Guð- rúnar Erlu Sigurbjarnardóttir. Ungt tónskáld, Hildur Ingveldar- dóttir Guðnadóttir, semur og velur tónlist verksins en þýðandi þess er Hjalti Rögnvaldsson. Aðstoðar- leikstjóri er Gísli Pétur Hinriks- son. „Þetta er einkar skemmtilegur hópur fyrir mig sem ungan leik- stjóra, ég er að vinna með fólki af öllum kynslóðum en þetta verk er mikil gáta fyrir okkur öll,“ segir Egill. Gátan verður kannski aldrei leyst í eitt skipti fyrir öll. „Fosse nefnir það samt sjálfur á einhverj- um stað að uppgjöfin geti verið lykillinn að tilverunni. Að með því hreinlega að gefast upp getum við fyrst haldið áfram. Það er eitt það fallegasta sem ég hef heyrt lengi.“ kristrun@frettabladid.is Ljúfsár hverdagsleikinn ATBURÐIR OG AÐSTÆÐUR SEM ALLIR KANNAST VIÐ Kristbjörg Kjeld í hlutverki sínu í Sumardegi eftir Jon Fosse. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika ásamt norsku söngkon- unni Solveigu Kringelborn í Háskólabíói kl. 17 í dag. Tónleik- arnir eru til stuðnings verkefni barna- og unglingageðdeildar Landspítalans „Lífið kallar“ en verkefnið er unnið í samstarfi við FL Group. Markmið þess er að styrkja fjölskyldur barna og ungl- inga sem eiga við andlega erfið- leika að etja, að sögn Smára Sigurðs- sonar, oddvita FL Group. „Þetta er nýtilkomið samstarfsverkefni en hluti af stefnu okkar er að styðja verkefni á sviði menningar og mannúðar. Við viljum styðja þetta verkefni sem starfsfólk BUGL hefur mótað. Inntak þess lífsgleð- in en við viljum koma þeim jákvæðu sjónarmiðum að og hjálpa þeim sem lent hafa í áföllum að finna hinn gleðilega tón aftur.“ Leikið til góðs því lífið kallar STORMANDI LUKKA Gerður var góður rómur að fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveit- arinnar í Smáralind en í dag verður leikið til góðs í Háskólabíói. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ����������� �� �������������������� �� �� ����� ������������������������������� �������������� �� ��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������������������������������������������������������� ������������ ���������������������������������������� ����������������������������������� �������������������������������
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.