Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
Starfsmenn í umönnun
óskast, sem fyrst, á deild 36, Kleppi sem er endurhæfi ngardeild
fyrir fullorðna á geðsviði. Um er að ræða vaktavinnu með mögu-
leika á hlutastörfum. Deildin sinnir endurhæfi ngu sjúklinga með
langvinna geðsjúkdóma. Starfsfólk fær tækifæri til að taka þátt í
þróun- og uppbyggingu á innra starfi deildar. Mikið framboð er á
fræðslu og möguleiki til að öðlast dýrmæta reynslu í samskiptum
og varðandi mannlega hegðun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Góð almenn menntun og hæfni í mannlegum samskiptum.
Sjúkraliða-, félagsliða- eða háskólanám sem nýtist í starfi kemur
til hækkunar launa. Áhersla er lögð á skipulögð vinnubrögð og að
farið sé eftir verklagsreglum.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Umsóknir skulu berast fyrir 16. okt. nk. til skrifstofu sviðsstjóra
hjúkrunar á geðsviði, geðdeildarbyggingu við Hringbraut, netfang
hrafnhkn@landspitali.is.
Uppl. veita Kristín Þorbjörnsdóttir, verkefnastjóri starfmannamála
á geðsviði, sími 543 4717, netfang kristorb@landspitali.is og Elías
Jón Sveinsson, deildarstjóri sími 543 4911,
netfang eliasjsv@landspitali.is.
Sjúkraliðar
óskast til starfa á endurhæfi ngardeild R3 Grensási. Skipulagsform
hjúkrunar er einstaklingshæfð og unnið er í þverfaglegum teymum
þar sem gert er ráð fyrir virkri þátttöku sjúkraliða. Mikil áhersla
er lögð á fjölskylduhjúkrun. Boðið er upp á aðlögun og gott
vinnuumhverfi með framsæknu samstarfsfólki. Vinnuhlutfall og
vaktatilhögun er eftir samkomulagi. Unnið er 3ju hverja helgi.
Umsóknir skulu berast fyrir 16. okt. nk. til Ingibjargar Sig. Kolbeins,
hjúkrunardeildarstjóra R-3 Grensási og veitir hún jafnframt upplýs-
ingar í síma 543 9118, 543 9327, netfang ingibjok@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála-
ráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut,
skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.
is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.