Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 70
30 1. október 2006 SUNNUDAGUR
60
SEKÚNDUR
sport@frettabladid.is
Laugardalsv., áhorf.: 4.699
KR Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–12 (4–5)
Varin skot Kristján 3 – Ómar 3
Horn 6–5
Aukaspyrnur fengnar 6–12
Rangstöður 2–4
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 8
*Guðjón Árni 9
Kenneth Gustafss. 9
Guðmundur Mete 8
Hallgrímur Jónass. 7
Símun Samuelsen 7
(90. Ólafur Jón -)
Baldur Sigurðss. 8
Jónas Sævarsson 8
Magnús Þorsteinss. 7
(65. Milicevic 7)
Þórarinn Kristjánss. 8
(90. Stefán Örn -)
Guðm. Steinarsson 9
*Maður leiksins
KR 4–4–2
Kristján Finnbogas. 7
Sigþór Júlíusson 5
(77. Guðm. Péturss. -)
Tryggvi Bjarnas. 3
Gunnlaugur J. 8
Vigfús Jósepsson 5
Mario Cizmek 4
(71. Gunnar Kr. -)
Bjarnólfur Láruss. 3
Kristinn Magnúss. 3
Sigmundur Krist. 5
Grétar Hjartarson 6
Björgólfur Takefusa 4
(60. Skúli Jón 6)
0-1 Guðjón Árni Antoníusson (21.)
0-2 Baldur Sigurðsson (30.)
0-2
Jóhannes Valgeirsson (8)
Handbolti er ... Íþrótt.
Alfreð er ... Þjálfarinn minn.
Grótta eða Gummersbach? Grótta.
Þýskaland eða Ísland? Ísland, ekki spurning.
Þýska úrvalsdeildin er ... Besta deild í heimi.
Íslenska úrvalsdeildin er ... Mig langar rosa-
lega að segja næstbesta deild í heimi en ég
hef svo lítið getað fylgst með henni undan-
farið.
Jón Arnar Magnússon er ... Snillingur. Einn
besti íþróttamaður sem Ísland hefur átt.
Að vera atvinnumaður í handbolta er ... Mín
draumavinna.
Eru markverðir furðulegri en aðrir leikmenn?
Já, markverðir og örvhentir eru furðulegri en
aðrir leikmenn.
Bold and the Beautiful eða Neighbours? Þar
hittir þú illa á mig. Þetta er ekki sýnt úti þar
sem ég bý.
KFC eða BigMac? Af tvennu illu þá segi ég
frekar KFC.
MEÐ GUÐJÓNI VALI
SIGURÐSSYNI
> Vonlítið hjá Norrköping
Garðar Gunnlaugsson, Stefán Þórðar-
son og félagar í Norrköping töpuðu í
gær þýðingarmiklum leik í sænsku 1.
deildinni. Liðið á í mikilli keppni við
Örebro um þriðja sætið í deildinni
sem veitir umspilsrétt um úrvals-
deildarsæti og mættust liðin á
heimavelli Norrköping. Gestirnir
unnu örugglega, 3-1. Garðar var
óvænt settur úr byrjunarliðinu
en hann kom inn á í hálfleik.
Stefán Þórðarson lék hins vegar
allan leikinn að venju. Norrköping er nú
sex stigum á eftir Örebro þegar eingung-
is þrjár umferðir eru eftir.
FÓTBOLTI Keflavík varð í gær bik-
armeistari karla í knattspyrnu
eftir 2-0 sigur á KR með mörkum
Guðjóns Árna Antoníussonar og
Baldurs Sigurðssonar. Sigurinn
var fyllilega sanngjarn.
Stemningin fyrir leik var frá-
bær og voru þá sérstaklega KR-
ingar duglegir við að syngja og
tralla sem aldrei fyrr. Keflvíking-
ar voru öflugir á trommunum og
allt setti þetta frábæran svip á
leikinn.
Keflvíkingar stilltu upp fremur
sókndjörfu liði með þá Magnús og
Símun á köntunum og tvo fram-
herja, Þórarinn og Guðmund. Liðs-
uppstilling KR var mjög hefð-
bundin og því fátt í þeirra leik sem
kom á óvart. Á 9. mínútu var
Magnús Þorsteinsson að sleppa í
gegn en var stöðvaður af Gunn-
laugi Jónssyni á síðustu stundu.
Keflvíkingar heimtuðu vítaspyrnu
en hér var fyrst og fremst um að
ræða úrvalsvarnarvinnu.
Það var snemma ljóst að Kefl-
víkingar mættu geysilega grimmir
til leiks. Þeir vörðust framarlega,
börðust um alla bolta og voru
öskufljótir í sókn. KR-ingar virt-
ust eilítið slegnir af laginu en biðu
þó þolinmóðir eftir sínu tækifæri.
Það kom á 15. mínútu er Mario
Cyzmek fékk sendingu út á vinstri
kantinn, gaf fyrir á Björgólf sem
hreinlega hitti ekki boltann úr
úrvalsfæri og sóknin rann út í
sandinn.
KR-ingar máttu naga sig í hand-
arbakið yfir að hafa ekki nýtt
þetta færi því á 21. mínútu komust
Keflvíkingar yfir. Þeir fengu sitt
fyrsta horn í leiknum, boltinn
barst á Þórarin Kristjánsson sem
skaut að marki. Þar var Guðjón
Árni Antoníusson staddur og skall-
aði hann boltann í markið af stuttu
færi. Forystan var þó sanngjörn.
Níu mínútum síðar bættu Kefl-
víkingar í. Þeir fengu sína aðra
hornspyrnu sem Guðmundur
Steinarsson tók. Boltinn barst
aftur til hans, hann gaf á Guðjón
Árna sem kom boltanum á Baldur
Sigurðsson. Hann þrumaði boltan-
um í netið af stuttu færi. Frábær
sóknarvinna hjá Keflvíkingum.
Eftir aðeins hálftímaleik var
komin þögn hjá stuðningsmönnum
KR. Það skyldi engan undra enda
höfðu Keflvíkingar hreinlega valt-
að yfir Vesturbæjarstórveldið.
Keflvíkingar í stúkunni nutu sín
hins vegar til hins ítrasta og létu
vel í sér heyra.
Hálfleikurinn leið án frekari
stórtíðinda. En ljóst var að Teitur
Þórðarson þyrfti að skipuleggja
lið sitt upp á nýtt og blása eldmóði
í sína menn.
En síðari hálfleikur hófst eins
og sá fyrri. Keflvíkingar höfðu
undirtökin í leiknum og fengu
færin. KR-ingar voru þó ekki
búnir að gefast upp og reyndu
hvað þeir gátu gegn afar sterkri
vörn Keflavíkur.
Á 56. mínútu fékk KR auka-
spyrnu á fínum stað en grimmir
Keflvíkingar komust í veg fyrir
skotið og stormuðu í sókn. Þar
var Þórarinn sloppinn inn fyrir en
fór illa að ráði sínu og lét Kristján
verja frá sér. Þarna hefði hann
getað gert út um leikinn.
Fjórum mínútum síðar skiptu
KR-ingar inn Skúla Jóni fyrir
Björgólf. Hann var ekki búinn að
vera inn á í nema mínútu þegar
hann átti gott skot að marki Kefla-
víkur. Skömmu síðar átti Grétar
ágætis skot að marki en án árang-
urs. Þá átti Sigmundur skot í slá af
löngu færi og Guðmundur Péturs-
son fékk prýðisgott færi til að
setja sitt mark á leikinn en ekkert
gekk.
Undir lok leiksins virtist Guð-
jón Árni ætla að bæta öðru marki
við en skot hans úr góðu færi
reyndist of laust.
KR-ingar reyndu vissulega allt
sem þeir gátu en þeir virtust ein-
faldlega einu númeri of litlir fyrir
Keflavík. Þeir áttu ekki roð í gíf-
urlega sterka vörn Keflvíkinga og
þeirra ódrepandi baráttuvilja um
hvern einasta bolta.
Leikurinn rann sitt skeið og var
sigurinn fyllilega sanngjarn. Kefl-
víkingar, bæði leikmenn og stuðn-
ingsmenn, sýndu frábært keppn-
isskap og meiriháttar stemningu,
bæði innan vallar sem utan. Þeir
slógu KR hreinlega út af laginu
sem rönkuðu við sér einfaldlega
of seint.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
GÍFURLEGUR FÖGNUÐUR Keflvíkingar fögnuðum sigrinum vel og innilega inn í klefa. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Keflvíkingar jörðuðu Vesturbæinga
Fræg er auglýsing sem óprúttnir Eyjapeyjar létu gera fyrir bikarúrslitin 1983 gegn ÍA. Þar átti að jarða
Skagamenn á Laugardalsvellinum en varð þeim ekki kápan úr því klæðinu. Þetta mætti hins vegar til
sanns vegar færa um Keflvíkinga sem virtust fara létt með KR í bikarúrslitunum í ár.
BIKARINN Á LOFT Guðmundur Steinarsson lyftir bikarnum á loft eftir að hafa tekið
við honum úr höndum Geirs Haarde forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflvíkinga, var að vonum
ánægður með sigurinn og spila-
mennsku sinna manna í gær. „Til-
finningin er rosalega góð. Þetta er
algjör snilld,“ sagði Kristján í
miðri sigurvímunni í gær.
„Það gekk allt upp sem við lögð-
um upp með fyrir leikinn, algjör-
lega, bara eins og upp úr bókinni.
Ég er mjög stoltur af strákunum,“
sagði Kristján, en hann sagðist
ekki hafa látið undan þrýstingi
leikmanna fyrir leikinn um að láta
breyta hárgreiðslunni. „Þeir
reyndu eitthvað að fá mig til að
lita á mér hárið en það gekk ekk-
ert. Ég er að fara í afmæli til Kidda
aðstoðarþjálfara eftir viku þannig
að þetta var ekkert að ganga,“
sagði Kristján ánægður.
Mývetningurinn Baldur Sig-
urðsson sagði að það jafnaðist fátt
á við að skora í úrslitaleik. „Það
gerist ekki betra. Þetta er bara
draumurinn, að skora og vinna
þennan leik,“ sagði Baldur og hann
bætti því við að klippingin hafi
haft sitt að segja en Baldur var
með áberandi ljóta klippingu.
„Kristján þjálfari var búinn að
segja okkur fyrir leikinn að KR-
ingar myndu bíða aftarlega á vell-
inum og beita skyndisóknum og
við ákváðum að pressa bara á þá
frá byrjun og þeir komust varla
fram fyrir miðju. Við höfðum
þetta allan tímann í hendi okkar,“
sagði Baldur en það er löng leið
frá því að alast upp í Mývatnsveit
og að verða bikarmeistari með
Keflavík.
„Það er langur vegur en þetta
er eitthvað sem ég stefndi alltaf
að og ef maður trúir á það þá getur
maður það,“ sagði Baldur. - dsd
Keflvíkingar voru í skýjunum eftir leikinn í gær:
Var ekki til í að láta
lita á mér hárið
FÓTBOLTI Guðmundur Steinarsson,
fyrirliði Keflvíkinga, sagði að
þennan sigur það sem Keflvíking-
ar séu nú búnir að stefna að í
mánuð. „Það má kannski segja að
við séum búnir að vera sofandi í
september í deildinni en við
vorum vakandi í dag,“ sagði
Guðmundur og bætti því við að
Keflvíkingar hafi verið miklu
betri aðilinn í leiknum í gær.
Guðmundur hefur áður unnið
bikarinn með Keflvíkingum.
„Þetta verður bara sætara því
oftar sem maður vinnur. Ég tala
nú ekki um að vinna KR sem
okkur finnst alveg rosalega
gaman að vinna. Gaman þegar
sveitastrákarnir vinna Reykjavík-
urstrákana,“ sagði Guðmundur og
benti á að það væru nokkrir
strákar í liðinu góðir með
rakvélina og öllum væri velkomið
að panta tíma hjá þeim. - dsd
Guðmundur Steinarsson:
Sveitastrákarn-
ir unnu KR
FÓTBOLTI Teitur Þórðarson,
þjálfari KR-inga, er sáttur við
árangurinn í deildinni í sumar
en hann var allt annað en sáttur
við tapið í gær. „Mér fannst
vera mjög dauft yfir þessu hjá
okkur í fyrri hálfleiknum en í
síðari hálfleik þá fannst mér við
ná að keyra ágætlega á þá og ná
ágætum tökum á þeim en við
náðum samt sem áður ekki að
skapa nein veruleg færi,“ sagði
Teitur eftir leikinn.
„Það er gaman að vera í
úrslitaleiknum og mér fannst að
við hefðum átt að eiga góðan
möguleika í dag enda höfum við
spilað vel upp á síðkastið og
erum í góðu formi,“ sagði
Teitur. - dsd
Teitur Þórðarson:
Mjög dauft yfir
þessu hjá okkur