Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 62
1. október 2006 SUNNUDAGUR22
STÍFLUN JÖKLU UNDIRBÚIN Mikil og ströng undirbúningsvinna fór fram áður en
lokað var fyrir rennsli Jöklu við Kárahnjúkastíflu. Hér er verið að dæla vatni ofan í
risavaxið yfirfall við Kárahnjúkastíflu, en með því verður hægt að hleypa vatni í gegn
ef þess er talin þörf, og álagi á tæki og mannvirki þannig stýrt. Á myndinni sést
Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar, virða fyrir sér
opið ofan í botnrásina á meðan vatni var dælt þar ofan í svo að ýtrasta öryggis væri
gætt áður en vatnssöfnun í Hálslón hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNA VIÐ STEYPUKÁPU Stefnt er að því að ljúka vinnu við steypukápu Kárahnjúkastíflu í nóvember. Verkamennirnir, sem unnið
hafa ötullega að gerð kápunnar eru flestir Kínverjar. Vandasamt er að stýra steypuvinnunni í hallanum eins og hér sést. Mennirnir
eru bundnir með köðlum til þess að koma í veg fyrir slys. Stíflan er tæplega 800 metra breið og um 198 metrar á hæð. Þrátt fyrir
leiðindaveður, þoku, kulda og rigningu, gáfu Kínverjarnir sér tíma til þess að slá á létta strengi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓMAR RAGNARSSON Á SIGLINGU Ómar Ragnarsson, fréttamaður Ríkisútvarpssins,
sigldi eftir vatnsborði Hálslóns eftir að vatnssöfnun hófst. „Ég ætla að sigla á svæð-
um þar sem ekki hefur verið siglt áður, og ekki verður hægt að sigla á aftur,“ sagði
Ómar þegar hann undirbjó siglingu sína á báti sínum sem hann nefndi Örkina, líkt
og Nói forðum. Gljúfrin sem Ómar sést hér mynda ásamt aðstoðarfólki sínu eru farin
undir vatn nú, en vatnsborðið hækkaði ört fyrsta sólarhringinn eftir að vatnssöfnun
hófst í lónið.
ÁSTÆÐA VIRKJANAFRAMKVÆMDANNA
Álver Alcoa á Reyðarfirði er eiginleg
forsenda virkjanaframkvæmdanna við
Kárahnjúka. Álverið mun fullbúið búa
yfir 346 þúsund tonna framleiðslugetu
á ári en starfsmenn álversins verða um
400. Áætlað er að álverið fái raforku frá
rafmagnsneti landsmanna afhenta í maí
á næsta ári. Þegar Kárahnjúkavirkjun
verður tilbúin, í október á næsta ári,
framleiðir hún alla raforku sem álverið
þarf til þess að afkasta samkvæmt áætl-
unum. Bygging álversins hefur gengið
vel og er á áætlun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HORFT Á JÖKULSÁ Á JÖKULDAL Það voru mikil viðbrigði fyrir Jökuldælinga þegar Jökla
snarminnkaði eftir að vatnssöfnun í Hálslón hófst. „Í áratugi hefur maður fundið fyrir
afli Jöklu og hún hefur því verið hluti af sálarlífi okkar Jökuldælinga um langt skeið,“
sagði Björgvin Geirsson, bóndi á Eiríksstöðum I, þegar blaðamaður spurði hann út
í breytingarnar á Jöklu. Bændur á Jökuldal sjást hér skeggræða um breytingarnar á
ánni eftir að lokað var fyrir rennsli Jöklu við Kárahnjúka. Áin minnkaði umtalsvert en
á fjórða tug bergvatnsáa renna í farveg hennar niður eftir Jökuldal. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KAPPSFULLIR Á HÁLSLÓNI Sigurður Grímsson kvikmyndagerðarmaður og Ómar
Ragnarsson sigldu um Hálslón eftir að það tók að myndast. „Sigurður, þú verður að
ná þessu,“ sagði Ómar um leið og hann talaði í símann, og benti Sigurði á að ná
því þegar gróður flaut á vatnsborði Hálslóns. „Rólegur Ómar, ég næ þessu alveg,“
svaraði Sigurður um hæl. Ómar ætlar sér að sigla um Hálslón þangað til það nær 80
metra dýpt. Blaðamaður og ljósmyndari fengu að slást í för með Ómari á siglingunni
og fylgdust með honum ná sér í myndefni fyrir kvikmynd sem hann vinnur að um
Hálslón og landsvæðið sem fer undir vatn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÚSBYGGINGAR Á EGILSSTÖÐUM Miklar
húsbyggingar hafa átt sér stað á Austur-
landi eftir að virkjanaframkvæmdirnar
við Kárahnjúka hófust. Húsbyggingar á
Reyðarfirði og Egilsstöðum hafa verið
sérstaklega áberandi en á myndinni
sjást smiðir virða fyrir sér teikningar,
sem reikna má með að séu af bygging-
unni sem þeir eru að reisa. Þrátt fyrir
framkvæmdirnar á Austurlandi hefur
íbúum þar, með fasta búsetu, fækkað
frá árinu 2001 eins og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær. Stór hluti þeirra sem
vinna við framkvæmdirnar eru erlendir
verkamenn sem ekki hafa fasta búsetu
hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það var spennuþrungið andrúmsloft á útsýnis-pöllum við Kárahnjúkastíflu þegar lokað var fyrir rennsli Jöklu við Kárahnjúkastíflu síðast-
liðinn fimmtudag og vatnssöfnun í Hálslón, uppi-
stöðulón Kárahnjúkavirkjunar, því formlega hafin.
Sérfræðingar sem unnið hafa að virkjanafram-
kvæmdunum árum saman stóðu á útsýnispöllunum,
ásamt fjölmiðlafólki, og fylgdust með því þegar vatn
tók að safnast í uppistöðulón virkjunarinnar. Hálslón
verður um 57 ferkílómetrar að stærð þegar það verð-
ur fullt, eftir rúmlega eitt ár. Magnús Halldórsson og
Gunnar V. Andrésson fylgdust með því þegar söfnun
vatns í Hálslón hófst og kynntu sér áhrifasvæði fram-
kvæmdanna við Kárahnjúka.
Vatnssöfnun hafin í
Hálsón – stór stund