Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 17
SUNNUDAGUR 1. október 2006 Metnaðarleysi fjölmiðla Eiður Guðnason sendi mér eftirfarandi klausu: „Oft blöskrar manni metnaðarleysi fjölmiðlanna í málfarslegum efnum. Hef stundum verið að gera athugasemdir á ýmsum vettvangi, en fæ sjaldnast nokkur viðbrögð, – undanskil þó málfarsráðunaut Ríkisút- varpsins sem jafnan svarar um hæl. Netmiðlarnir svonefndu eru, held ég, verstir. Í gær mátti lesa á mbl.is að hermenn í Afganistan hefðu „notið aðstoðar frá lofti“ þegar vænt- anlega var átt við að herflugvélar hefðu tekið þátt í aðgerðunum. Ef eitthvað bilar í tölvukerfum eða hjá símanum er sagt að tölvukerfið sé „niðri“, síminn sé „niðri“, lesið hef ég um að Grensásstöðin hafi verið „niðri“og jafnvel umferðarljós hafa verið „niðri“. Var þó örugglega ekki átt við að umferð í neðra hafi verið svo mikil að henni hafi þurft að stýra með ljósum! Enn er talað um „áhafnarmeðlimi“ þegar einfald- ara og betra væri að tala um skipverja. Enskan skín hvarvetna í gegn og nær daglega les maður um „eitthvað sem er komið til að vera“. Það eru ótrúlega margir að skrifa fréttir, sem ekki kunna íslensku og ekki raunar ensku heldur, sbr. frétt Morgunblaðsins á dögunum um borgina „Aboriginal“ í Ástralíu!“ Labba, labba, labba „Ég hefði ekki labbað í svona álverslabb,“ skrifar kennari í Mbl. 14. sept. um meðmælagöngu á Norðurlandi. So. labba merkir að rölta, ganga hægt og er til í nýnorsku og sænsku í merkingunni þramma, ganga þyngslalega, og er trúlega leidd af no. labb sem í sömu málum merkir fótur í nýnorsku og stór fótur eða hrammur í sænsku. Nú er sögnin að labba svo ofnotuð að hún virðist nánast orðin einráð yfir þá athöfn að setja annan fótinn fram fyrir hinn, að ganga, eins og mín kynslóð hefur sagt. Kona spyr hvort barnið sé farið að labba. Menn labba alls staðar, jafnvel á fjöll. Þar með hverfa jafn myndrænar sagnir og ana, arka, eigra, feta, haltra, pjakka, ramba, rölta, skunda, staulast, stika, strunsa, svo að fáein dæmi séu nefnd. Ég held að flestir geti séð til hvílíkrar fátæktar í tjáningu slík einhæfni leiðir. Og það vil ég segja við ykkur, að menn labba ekki um „tungunnar bröttu fjöll“, svo að vitn- að sé í ljóð Hannesar Péturssonar. Braghenda Braghenda dagsins varð til við Foss á Síðu: Birtist fram af brúnum háum bjartur strengur. Það er líkt og þráðarlengju sé þyrlað niður klettahengju. Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@vortex.is HLJÓÐFÆRI HUGANS Njörður P. Njarðvík skrifar um íslenskt mál HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 saman við eigum vel Staðalbúnaður MASC stöðugleikastýring ABS hemlalæsivörn • EBD hemlajöfnunarkerfi MATC spyrnustýring • Aksturstölva • Hiti í framsætum Fjarstýrðar samlæsingar • Rafdrifnar rúðuvindur Mitsubishi Colt er frábær bíll sem hefur sópað að sér verðlaunum, enda kostirnir augljósir; glæsileg hönnun, mikið innra rými með mikla möguleika, nýjar öflugar vélar, 6 hraða „Allshift“ sjálfskipting og margt fleira. Komdu og prófaðu hann Verð: 1.590.000 kr. ���������������������������� ����������� � � � �� ������������� �������������������� ������������������������������ �������������������������� ������������������� �������������� ������������ ���������������� �������������������������������� ������������������������������������������� ������������������������������������� ������������������ ���������������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.