Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 16
 1. október 2006 SUNNUDAGUR16 Ingibjörg hefur alla tíð haft mikinn áhuga á tísku og byrj-aði aðeins þrettán ára gömul að vinna í Sautján í Kringlunni með skólanum. „Þegar ég var 23 ára eignaðist ég son minn, Natan, og velti því fyrir mér í orlofinu hvort ég ætti að fara aftur í Sautján eða gera jafnvel eitthvað annað. Ég hafði verið í innkaupum og fleiru þar og var mjög ánægð í vinnunni,“ segir Ingibjörg og bætir því við að hún hafi alltaf verið rosalega metnaðarfull í vinnu. „Mér var síðan bent á að Oasis væri til sölu í Kringlunni og mig langaði strax til að kaupa búð- ina. Ég sá fyrir mér að þarna væri mitt tækifæri.“ Ingibjörg játar því að það hafi verið heilmikil áhætta að kaupa búðina enda hafi hún ekki átt mik- inn pening. „Ég og barnsfaðir minn seldum íbúðina okkar og leigðum litla kjallaraíbúð í stað- inn. Auðvitað fannst öllum þetta vera algjört brjálæði en ég var alveg ákveðin. Natan fór strax til dagmömmu frá átta til fimm, pínu- lítill, og ég vann alla daga til sjö og oft fram á kvöld og nætur hvort sem var um helgi eða á virkum degi. Smátt og smátt kom þetta en þetta var rosalega erfitt og mikil vinna.“ Ótrúleg ósérhlífni Spurð um hvað þurfi til að láta svona verslun ganga vel segir Ingibjörg að maður þurfi fyrst og fremst að vera viss um hvað maður geti sjálfur. „Ég hugsaði aldrei út í þann möguleika að þetta myndi ekki takast. Ég var allan tímann ákveðin í því að ég gæti þetta.“ Fyrstu þrjú árin eftir að Ingi- björg keypti Oasis snerist allt um verslunina í Kringlunni og segir hún að þegar árangur fari að nást þá gerist hlutirnir mjög hratt. „Fyrstu tvö til þrjú árin þurfti maður bara alveg að standa vakt- ina sjálfur frá morgni til kvölds. Það er líka ýmislegt sem fylgir því að vera ungur atvinnurekandi og ekki alltaf auðvelt. Síðan bara fór maður að sjá árangur og rekstur- inn fór að skila sér mjög vel. Eig- endurnir í Englandi fóru að halda mjög mikið upp á mig og búðin mín fór að verða notuð sem fyrir- mynd fyrir aðra sem vildu opna verslanir Oasis í öðrum löndum, af því hún var farin að selja mest á fermetra.“ Danmerkurævintýrið „Danmörk lá alltaf í loftinu hjá þeim úti og það voru nokkrir sem höfðu ætlað sér að opna þar en það gekk aldrei upp. Eigendurnir í Englandi fóru þá að reyna að pressa á mig með að opna í Dan- mörku, ekki síst af því þeir vissu að ég hafði alltaf verið mikið þar. Pabbi bjó þar auk frænda míns og frænku þannig að ég var mikið á ferðinni á milli og var búin að kynnast markaðnum í Danmörku ágætlega.“ Fyrir tveimur árum ákváðu Ingibjörg og Jón Arnar, sambýlis- maður hennar, að láta af því verða- að opna Oasis í Danmörku. Fyrsta Oasis-verslunin opnaði í Fields, sem er ein stærsta verslunarmið- stöðin í grennd við Kaupmanna- höfn. „Við færðum okkur svo inn í Magasín og erum með tvær búðir þar í dag. Síðan opnuðum við í Illum og loks í Magasín í Lyngby, sem er fyrir utan Kaupmanna- höfn. Þannig að við erum núna með fimm búðir inni í öðrum búðum af því við vildum byrja hægt á dönskum markaði. Mark- aðurinn þar er mun erfiðari en hér á Íslandi og þess vegna vildum við finna aðeins út hvernig við ættum að hátta innkaupum og öðru áður en við færum í okkar eigin versl- un. Það stendur hins vegar til í byrjun næsta árs.“ Skrítin jól án Kringlunnar Síðastliðið vor fengu þau svo gott tilboð í búðirnar hérna heima að þau gátu ekki hafnað því. „Við seldum þá allar búðirnar sem við áttum hér á landi en þær voru orðnar fimm talsins og fjárfestum síðan í Habitat og einbeitum okkur algjörlega að því núna. Ingibjörg segir það erfiðast fyrstu mánuðina að opna verslun ef maður gerir allt frá grunni og hefur engan sér að baki. „Það þarf að búa sig undir það andlega að annað hvort vinna stórt eða tapa stórt. Maður getur verið dálítið lengi að byggja sig upp aftur ef illa gengur en ég hugsaði bara með mér að ég hefði enn tíma til að byggja mig upp aftur. Ég leit á þetta pínu fyrst eins og háskóla- nám. Mér fannst ég vera að læra svo mikið og var tilbúin til að taka skellinn ef hann kæmi.“ Ingibjörg lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands og tók síðar tvö ár í menntaskóla með vinnu. „Það verður örugglega und- arleg tilfinning að vera ekki í Kringlunni um jólin enda veit ég varla hvað jól eru án Kringlunn- ar.“ Aldrei farið á hausinn Sögur hafa gengið um að Ingibjörg hafi farið í gjaldþrot með verslan- ir sínar þegar hún seldi þær í vor en hún tekur þeim kvitti af stakri ró. „Já, það eru náttúrulega alltaf sögur. Ég hef aldrei farið á haus- inn með neitt, þannig að það er ekki rétt. Fólk á svo erfitt með að samgleðjast. Það er dálítið ein- kennandi fyrir þessa þjóð. Það virðist hafa verið erfitt fyrir fólk að sætta sig við það að ég átti allt í einu eitthvað sem ég hafði unnið Alltaf ákveðin í að ég gæti þetta fyrir, bara tuttugu og eitthvað ára gömul. Fólki fannst þetta bara ekki ganga upp. Það hlyti að hafa verið eiturlyfjainnflutningur, svik og prettir eða eitthvað slíkt, fólk taldi þetta ekki geta verið eðlilegt.“ Ingibjörg hugsar sig um dálitla stund þegar hún er spurð að því hvort hún sé rík í dag. „Ég er mjög rík af vinum og fjölskyldu,“ segir hún og brosir. Hún tekur undir það að konur geri of lítið af að láta vaða á þær viðskiptahugmyndir sem þær fá. „Konur gera alltof lítið af því. Sér- staklega af því að ég veit að það eru svo margar sem langar. Und- anfarin tvö ár hef ég einmitt verið mikið í því að hvetja konur og þar á meðal vinkonur mínar til að láta vaða í að eignast fyrirtæki eða rekstur. Í staðinn fyrir að hugsa alltaf um að bíða. Óöryggið eykst alltaf eftir því sem beðið er leng- ur, í staðinn fyrir að taka þetta skref fyrir skref og gera bara það sem mann langar til.“ Ingibjörg játar því að sennilega sé það erfiðara fyrir konur að reka fyrirtæki en karla. „Það er ætlast til svo mikils af okkur og sérstak- lega ef við eigum börn. Það hefur verið erfiðast að samræma vinn- una og að eiga stundir með Natan. Maður vill auðvitað standa sig í því að vera mamma því það skiptir mann mestu máli,“ segir kaupmað- urinn og viðurkennir að stundum sé erfitt að gíra sig niður eftir vinnuna. Ingibjörg segir konur almennt finna fyrir meiri tog- streitu gagnvart börnunum sínum en karlmenn. „Svo líka erum við viðkvæmari. Það er bara þannig,“ segir hún og brosir. „Við erum við- kvæmari fyrir gagnrýni, mistök- um og fleiru. Samt höfum við svo marga kosti líka sem karlmenn hafa ekki. Það er oft sagt að kon- urnar séu meira í litlu hlutunum en karlmenn sjái frekar heildarmynd- ina. Ef konum tekst hins vegar að sjá stóru myndina þá höfum við eiginlega meira en þeir. Meiri inn- sýn inn í allt en sjáum samt mögu- leikana umfram það.“ Aldrei liðið betur Ingibjörg svarar því játandi þegar hún er spurð hvort hún sé ham- ingjusöm í dag. „Ég er rosalega hamingjusöm,“ segir hún án þess að þurfa í raun að svara því hún hreinlega geislar af hamingju. „Ég hef ekki alltaf verið ham- ingjusöm síðustu ár því það tekur rosalegan toll að vinna svona mikið og leggja svona mikið á sig. Það er eitthvað sem fólk ætti að átta sig á áður en það fer út í svona lagað að það er algjörlega blóð, sviti og tár. „Markmið Ingibjargar næstu tvö til þrjú árin felast að mestu í því að gefa Habitat allt sem hún á. „Við ætlum að bjóða upp á allt það sem merkið hefur upp á að bjóða og stækka búðina. Byggja þar upp skemmtilegt and- rúmsloft, hafa lifandi hluti að ger- ast allar helgar. Við erum komin með mjög gott starfsfólk og á næstu þremur árum ætlum við að gera þetta virkilega skemmtileg- an áfangastað fyrir fjölskylduna og þá sem eru að spá í lífsstíl yfir höfuð,“ segir Ingibjörg og stefnir á að búðin fái á sig endanlega mynd eftir smátíma. „Það er á þriggja ára planinu að gera þetta allt klárt og hafa búðina sem glæsilegasta og þægilegasta til að koma í og versla. Þá er ég reyndar sjálf með þetta á eins árs plani af því ég vil alltaf gera allt svo hratt,“ bætir hún við hlæjandi. Ingibjörg á von á barni þeirra Jóns Arnars um miðjan nóvember og hefur notið meðgöngunnar þrátt fyrir að hafa heilmikið að gera. „Ég reyni að skipta þessu upp: fjöl- skyldan, heilsan og vinnan. Fjöl- skyldu- og heilsumarkmiðin eiga að vera til lífstíðar en á starfsvett- vangnum eru það svona þrjú til fimm ár.“ Kaupmaðurinn Ingibjörg Þorvaldsdóttir hefur fengið miklu áorkað á undanförnum árum. Hún byrjaði að vinna sem afgreiðslustúlka í Sautján en rekur í dag sex verslanir ásamt sambýlismanni sín- um, Jóni Arnari Guðbrandssyni. Sigríður Hjálm- arsdóttir leit inn til Ingibjargar á nýtt heimili þeirra í Garðabænum og fékk að heyra hvernig kaupmannsævintýrið hefur gengið fyrir sig frá upphafi. FRAMAKONA Á aðeins fimm árum hefur Ingibjörg byggt upp fjölda verslana og er Habitat nýjasta verslunin í eigu hennar og sam- býlismanns hennar, Jóns Arnars. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Oasis í Kringlunni mars 2001 Oasis í Debenhams sept 2004 Oasis í Fields DK febrúar 2005 Oasis í Magasin du nord mars 2005 Oasis í Magasin du nord, jarðhæð maí 2005 Gjörbreyttu Oasis í Kringlunni maí 2005 Oasis Magasin Lyngby september 2005 Oasis verslun í Smáralind september 2005 Coast verslun í Smáralind október 2005 Change verslun í Smáralind febrúar 2006 Seldu allar verslanirnar á Íslandi mars 2006 Oasis í Illum apríl 2006 Habitat í Kópavogi ágúst 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.