Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 2
2 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR STJÓRNMÁL Geir H. Haarde forsæt- isráðherra vill að allt sem snertir hleranamál, hvort heldur á dögum kalda stríðsins eða síðar, verði dregið fram í dagsljósið. „Það er ekkert að fela og allra síst hefur ríkisstjórnin núverandi eitthvað að fela,“ sagði Geir í gær. Ríkissaksóknari hefur falið sýslumanninum á Akranesi að rannsaka ætlaðar hleranir á símum utanríkisráðuneytisins á árunum kringum 1993 og sérstök sérfræðinganefnd, skipuð af for- sætisráðherra, vinnur að mótun reglna um aðgang fræðimanna að gögnum um hleranir á árunum 1945-1991. Þetta telur Geir nóg að gert að svo stöddu og segir ríkis- stjórnina ekki munu aðhafast frekar í málinu. „Ekki að svo komnu máli. Ég tel að það sé óþarft úr því að ríkissaksóknari tók þá ákvörðun sem hann tók og nú verður maður bara að vona að allir þeir sem komið hafa fram með ásakanir eða telja sig hafa upplýsingar um þessa þætti sýni samstarfsvilja og hjálpi þeim sem eru að rannsaka máið að upplýsa það.“ Geir segir eðlilegt að ef fram koma sakir um hugsanlegt refsi- vert athæfi taki ríkissaksóknari það til athugunar enda sé það hlut- verk hans. „Síðan verður bara að koma í ljós hvað út úr þeirri rannsókn kemur.“ Geir segir ennfremur ekki hægt að gagnrýna saksókn- ara fyrir að sinna skyldum sínum með þessum hætti. Að mati Geirs hefur málum er varða hleranir; annars vegar á tímum kalda stríðsins og hins vegar eftir það verið blandað saman. Málin séu nú hvort með sínum hætti til athugunar. Jafnvel sé rætt um að koma á fót sérstakri deild í Þjóðskjalasafninu með gögnum kaldastríðsáranna. „Aðal- atriðið er að opna þessi skjöl og fá allt upp á yfirborðið varðandi þetta tímabil.“ Geir gefur lítið út á efasemdir um að heppilegt sé að lögreglu- menn rannsaki mál er hugsanlega varða gjörðir annarra lögreglu- manna og segir langsótt að lög- reglan á Akranesi hafi átt ein- hverja aðild að málinu. Og í framhaldi af hugmyndum um að þingskipuð nefnd rannsaki hler- anir spyr hann hvort betra sé að pólitíkusar rannsaki pólitíkusa heldur en að lögreglan rannsaki lögregluna. Spurður um vanga- veltur um hvort starfssvið sér- fræðinganefndarinnar sé of þröngt svarar Geir því til að komi það á daginn verði það athugað. bjorn@frettabladid.is SPURNING DAGSINS Aðalatriðið er að opna þessi skjöl og fá allt upp á yfirborðið varðandi þetta tímabil.“ GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐHERRA Núverandi ríkisstjórn hefur ekkert að fela Forsætisráðherra segir hleranamál komin í farveg og telur hvorki ástæðu til að skipa þingnefnd sem rannsaki þau né útvíkka starfssvið sérfræðinganefndar sem er að störfum. Ríkisstjórnin muni ekkert aðhafast að svo komnu máli. HLERANIR „Við höfum ekki gert neinar sérstakar ráðstafanir,“ segir Örnólfur Thorsson forseta- ritari aðspurður um eftirlit með öryggi fjar- skipta hjá forsetaembætt- inu. Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, hefur sagt að fylgst hafi verið reglulega með því í ráðuneyt- um hvort símar væru hleraðir. Þetta eftirlit hafi norskir menn annast. Slíkt reglubundið eftirlit mun hvorki hafa verið stundað hjá forsetaembættinu né mun hafa þótt nokkurt einstakt tilefni hafa gefist til þess að yfirfara öryggi símabúnaðar embættis- ins. - gar Forseti Íslands: Ekki gerðar ráð- stafanir gegn hlerunum ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON ALÞINGI Fulltrúar stjórnarand- stöðuflokkanna á þingi vilja að nefnd á vegum Alþingis fari ofan í saumana á símhlerunum íslenskra stjórnvalda, bæði á tímum kalda stríðsins og eftir það. Í umræðum um störf þingsins í gær kom fram eindreg- inn vilji stjórnarandstöðunnar um að frekar verði aðhafst í málinu en þegar hefur verið ákveðið. Var leið sem norska Stórþingið fór nefnd til fyrirmyndar. Stjórnarliðar kváðu enga þörf á slíku, málin væru þegar í eðlilegum farvegi. Að auki væri ekki hægt að bera saman mál hér og í Noregi. - bþs Stjórnarandstaðan á Alþingi: Þingnefnd ræði um hleranamál STJÓRNMÁL Umræður um breytingu á rekstrarfyrirkomulagi Ríkisút- varpsins héldu áfram á Alþingi í gær. Fjölmargir stjórnarandstæð- ingar lýstu þeirri skoðun sinni að með hlutafélagsvæðingu stofnun- arinnar væri opnað fyrir möguleik- ann á einkavæðingu og hörmuðu það. Stjórnarliðar börðust hins vegar við að leiðrétta stjórnarandstæð- inga og sögðu sölu Ríkisútvarpsins ekki á dagskrá, þvert á móti ætlaði ríkið sér að eiga það. - bþs Stjórnarandstaðan um RÚV: Telur hættu á einkavæðingu SÍMHLERANIR Engir dómsúrskurðir hafa verið kveðnir upp síðustu þrjá áratugina þar sem símhleranir hafa verið heimilaðar á þeim forsend- um að öryggi ríkisins sé hætta búin, að sögn Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Ef íslenskir ráðamenn hafa verið hleraðir, líkt og Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur haldið fram ásamt Árna Páli Árnasyni, fyrrverandi starfsmanni utanríkis- ráðuneytisins, á síðustu þremur áratugum, hafa þær farið fram án dómsúrskurðar og væru því lögbrot. Jón Baldvin skýrði frá því í gær að starfsmaður Pósts og síma, sem varð vitni að því að sími Jóns Baldvins var hleraður í utanríkisráðherratíð hans, hafi lagt fram vottfesta staðfestingu á framburði sínum hjá lögmanni. Jón Baldvin segir jafnframt að starfsmaðurinn muni vitna þar um við rann- sókn málsins. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skýrði síðastliðið vor frá niðurstöðum úr rannsóknum sínum á skriflegum heimildum um símhleranir á árunum 1946 til 1976. Þar kom fram að stjórnvöld létu meðal annars hlera síma íslenskra sósíalista, þar á meðal nokkurra þingmanna. Voru þær hleranir allar framkvæmdar samkvæmt dómsúr- skurði. - sda Helgi I. Jónsson dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur: Engir símhlerunarúrskurðir vegna þjóðaröryggis frá 1976 Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS AUDI A3 Nýskr. 05.05 - Sjálfskiptur - Ekinn 17 þús. - Allt að 100% lán. Verð 2.450 .000. - Maðurinn sem lést í umferðar- slysi í Kjósarskarði við Þórufoss í fyrradag hét Gunnlaugur Axelsson til heimilis að Kirkjuvegi 67 í Vestmannaeyj- um. Gunnlaug- ur var sextíu og sex ára gamall, fæddur 31. maí árið 1940. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Tuttugu og tveir hafa nú látist í umferðinni á þessu ári. - sþs Gunnlaugur Axelsson: Lést í bílslysi í Kjósarskarði GUNNLAUGUR AXELSSON LÖGREGLUMÁL Landssamband lög- reglumanna vill að mótþrói við handtöku verði gerður refsiverður, að sögn Sveins Ingibergs Magnús- sonar, formanns sambandsins. Hann segir að þetta atriði hafi verið viðrað í greinargerð um öryggismál lögreglunnar sem sam- bandið hafi sent dómsmálaráð- herra. Þar var farið fram á að starfsumhverfi lögreglumanna verði bætt. Dómsmálaráðherra hefur boðað breytingar til bóta í þeim efnum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að tíu til tólf lögreglumenn fá bætur úr ríkissjóði á ári hverju vegna meiðsla sem þeir verða fyrir við störf. Að meðaltali tveir lög- reglumenn verða fyrir varanlegum miska og örorku á ári hverju, að sögn Gylfa Thorlacius hæstaréttar- lögmanns sem fer með stærstan hluta bótamála fyrir lögregluna. „Það hefur ekki verið refsivert að sýna mótþróa við handtöku,“ segir Sveinn. „Lögreglumenn hafa þurft að verða fyrir einhverju líkamstjóni til þess að það teljist brot gegn valdstjórninni. Það á ekki að vera íþrótt fyrir viðkomandi að slást við lögregluna.“ - jss Landssamband lögreglumanna um tíð meiðsl lögreglumanna í starfi: Mótþrói við handtöku verði refsiverður LANDSSAMBAND LÖGREGLU- MANNA Vill auka öryggi starfs- umhverfisins til muna. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA Sigurður, leið þér eins og þú værir að koma nakinn fram? „Nei, nei, mér leið bara eins og jólin væru að koma.“ Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Strandagaldurs, lét alskegg sitt fjúka fyrir frægðina á karóki-keppni vinnustaða á Ströndum á laugardag. Skeggleysið dugði honum þó ekki til sigurs. JÓN BALDVIN HANNI- BALSSON HELGI I. JÓNSSON LÖGREGLUMÁL Stúlka um tvítugt, sem nauðgað var í húsasundi á bak við Menntaskólann í Reykja- vík aðfaranótt síðasta sunnudags, gaf í gær skýrslu hjá lögreglu vegna málsins. Hún lagði jafnframt fram kæru vegna árásarinnar, sem að sögn lög- reglu, var óvenju harkaleg. Tveir karlmenn, sem taldir eru vera á aldrinum 20 til 25 ára, réðust á stúlkuna á Amtmanns- stíg og nauðguðu henni eftir að hafa þvingað hana inn í húsasund. Þeir rændu auk þess af henni peningum. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins en hefur ekki neina grunaða að svo stöddu. - mh Nauðgun í húsasundi: Kærði nauðgun til lögreglunnar Óleyst ósætti við ESB Ráðamenn Evrópusambandsins og Tyrklands komust á mánudag engu nær lausn á deilunni um höfnun Tyrkja á því að opna hafnir sínar og flugvelli fyrir umferð frá Kýpur. Eftir fund utanríkisráðherra Tyrklands og Finnlands sagði sá síðarnefndi að ósveigjanleiki Tyrkja í þessu máli gæti fryst viðræðurnar um ESB-aðild Tyrkja. TYRKLAND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.