Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 70
MIÐVIKUDAGUR 18. október 2006 21
UMRÆÐAN
Hleranir
Í grein í Fréttablaðinu í fyrradag segir Össur Skarphéðinsson: ,,Í
þriðja lagi staðhæfir Þór
Whitehead að bæði fyrir – og eftir!
að kalda stríðinu lauk hafi íslensk-
ir öryggisþjónustumenn í sam-
starfi við þýska kollega rannsakað
fortíð róttækra Íslendinga sem
voru í námi austantjalds. Spurt er:
Hver var tilgangurinn með þess-
ari rannsókn, hver fyrirskipaði
hana og á hvaða lagaheimildum
byggðist hún . . . Svavar Gestsson,
Hjörleifur Guttormsson og fleiri
úr röðum námsmanna austan-
tjalds voru árum saman erfiðustu
og hörðustu andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins. Nærtækast er að
forystumenn íhaldsins hafi fyrir-
skipað rannsóknina til að finna
höggstað á þeim í stjórnmálabar-
áttu. Þór Whitehead segir hreint
út að tilgangur rannsóknarinnar
hafi beinlínis verið að grafast
fyrir um hvort einhver úr hópnum
hafi gerst njósnari fyrir austur-
þýsku leyniþjónustunnar STASI.
Menn geta ímyndað sér hvernig
skrímsladeild Sjálfstæðisflokks-
ins hefði notað slíkar upplýsingar,
ef svo hefði verið.
Heimildarmaður minn um
könnun vestur-þýsku öryggisþjón-
ustunnar á STASI-tengslum
Íslendinga er Róbert Trausti Árna-
son, sem var vara-fastafulltrúi
Íslands hjá Atlantshafsbandalag-
inu í Brussel undir lok kalda
stríðsins. Samkvæmt frásögnum,
sem hann segir styðjast við dag-
bækur sínar, voru það tveir ráð-
herrar í ríkisstjórn Framsóknar-
flokks, Alþýðubandalagsins og
Alþýðuflokksins, sem mæltust til
þess í desember 1989 að hann
rannsakaði, hvort einhverjir
Íslendingar hefðu verið í þjónustu
austur-þýsku leynilögreglunnar.
Ráðherrarnir hafi verið þeir Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra og yfirmaður hans í utan-
ríkisþjónustunni, og Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
,,Einkum vildi Jón Baldvin vita,
hvort að Svavar Gestsson hefði
verið í hópi erindreka STASI,“
eins og segir í skriflegri frásögn
Róberts Trausta. Svavar var þá
menntamálaráðherra í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar.
Róbert Trausti kveðst hafa
verið ,,mjög tregur til verksins,
því að hvorki Steingrímur né Jón
Baldvin gátu eða vildu fyrri hluta
árs 1990 gefa . . . viðunandi svör
um það, hvernig þeir eða íslensk
stjórnvöld myndu nota hugsanleg-
ar upplýsingar um mögulega
íslenska erindreka STASI“. Ráð-
herrarnir hafi ekki
getað gefið sér nein
,,fyrirmæli“ um verkið
og ekki viljað ,,opinbera
þessa eftirgrennslan
sína innan íslenska
stjórnkerfisins“. Ráð-
herrarnir hafi tekið sér-
staklega fram við sig,
að ekkert mætti fréttast
um þetta til Árna Sigur-
jónssonar, forstöðu-
manns Útlendingaeftir-
litsins, sem annaðist
öryggisþjónustu á vegum lögreglu
og dómsmálaráðuneytis um þetta
leyti.
Eftirgrennslan á vegum ráðherra
Róbert Trausti segir að eftir ítrek-
uð tilmæli frá Jóni Baldvin hafi
hann snúið sér til vestur-þýskra
öryggisþjónustumanna í janúar
1990, en fengið ,,kuldalegar við-
tökur“. Svör hafi verið á þessa
leið:
1. Bandaríkjamenn hafi öll mikil-
vægustu STASI-skjöl, sem
ekki hurfu til Moskvu undir
höndum. Það tæki mörg ár að
finna svona upplýsingar.
2. Þýsk stjórnvöld verða að virða
ákvæði laga um persónuvernd
og um friðhelgi einkalífins.
3. Hvernig hyggjast íslensk
stjórnvöld nota upplýsingarn-
ar, ef þær eru til og ef þær
verða þá látnar af hendi?
4. Verður höfðað opinbert mál á
hendur meintum íslenskum
STASI-erindrekum og þá sam-
kvæmt hvaða íslenskum
lögum?
5. Af framantöldu mætti öllum
vera ljóst . . . að vilji íslensk
stjórnvöld fá upplýsingar um
íslenska ríkisborgara verður
óhægt um vik að láta þær upp-
lýsingar af hendi ef ekki
ómögulegt.
Róbert Trausti segist við svo búið
hafa leitað til bandarískra leyni-
þjónustumanna í Þýskalandi. Þeir
hafi í fyrstu tekið erindi sínu vel
,,og töldu ekki óeðlilegt að Ísland,
rétt eins og önnur bandalagsríki
sýndi þessum STASI-skjölum
áhuga vegna síns eigin öryggis.
Hin Norðurlöndin væru að biðja
um svipaða fyrirgreiðslu. En
stuttu síðar hefðu Bandaríkja-
mennirnir skyndilega orðið ,,blátt
áfram fjandsamlegir“. Honum
hefði verið ljóst, að kippt hefði
verið ,,í spotta í Washington DC og
sagt að þessa óhefðbundnu
íslensku eftirgrennslan yrði að
stöðva og það yrði að gera á afger-
andi hátt“.
Róbert Trausti segir að þetta
hafi síðan verið staðfest á fundi
með bandarískum leyniþjónustu-
mönnum í Þýskalandi í febrúar
1990, en þar hefði and-
rúmsloftið verið fjand-
samlegt: ,,hollast væri
fyrir mig að láta af allri
eftirgrennslan. Engin
skjöl yrðu látin af hendi
en það eitt staðfest að
STASI hefði enga
íslenska trúnaðarmenn á
sínum snærum og hefði
aldrei haft. Þetta vissi
íslenska öryggisþjónust-
an mætavel.“
Róbert Trausti segir
að nokkru síðar eða snemma árs
1990 hafi hann síðan fengið ítar-
legri svör frá Þjóðverjum við eft-
irgrennslan sinni:
1. STASI njósnaði um alla Vest-
urlandamenn sem komu til
þýska alþýðulýðveldisins og
Íslendingar voru þar ekki und-
anskildir.
2. Þá varð STASI ekkert ágengt í
því að ráða sér íslenska erind-
reka til starfa á Íslandi hvorki
á meðal íslenskra námsmanna
né annarra.
3. Tengslin á milli þess hluta
íslenskrar vinstrihreyfingar,
sem var höll undir austan-
tjaldsríkin, lágu ekki um . . .
hendur leyniþjónustumanna,
heldur um hendur æðstu for-
ystumanna kommúnistaflokk-
anna í þessum ríkjum.
Róbert Trausti segir, að hann hafi
skýrt Jóni Baldvin Hannibalssyni
frá þessum niðurstöðum af eftir-
grennslan sinni, þegar þeir hittust
mánudaginn 12. febrúar 1990.
Afskiptum hans af þessum málum
hafi annars lokið á leiðtogafundi
Atlantshafsbandalagsins í London
5.- 6. júlí 1990, þar sem hann hefði
hitt Steingrím og Jón Baldvin. Þá
hefðu þeir sagt sér að þeir hefðu
misst áhuga á málinu, enda hefði
hann þá verið búinn að gera þeim
fulla grein fyrir því að hann kæm-
ist ekki lengra í eftirgrennslan
sinni. Árið 1993 hefði hann loks
sagt Jóni Baldvin, að væri enn
áhuga á þessu máli, þá bæri að
leita til sérlegs umboðsmanns
þýsku ríkisstjórnarinnar, sem
varðveitti skjöl STASI.
Spurningum svarað
Össur Skarphéðinsson komst m.a.
svo að orði í Fréttablaðinu í fyrra-
dag: ,,Þór gefur tvennar heimildir
fyrir pólitískum rannsóknum sem
fram fóru eftir lok kalda stríðsins.
Önnur var hægri hönd einstaklings
sem Þór upplýsir að hafi stjórnað
hinni ,,strangleynilegu öryggis-
þjónustu“. Hinn [þ.e. Róbert
Trausti Árnason] var skrifstofu-
stjóri varnarmáladeildar undir lok
kalda stríðsins, og síðar ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu.
Þetta eru trúverðugar heimildir.“
Eins og hér hefur komið fram,
var fullyrðing mín um könnun
þýsku öryggisþjónustunnar á
STASI-tengslum Íslendinga reist á
frásögn Róberts Trausta. Mér er
hins vegar ekki kunnugt um að
íslenskir öryggisþjónustumenn
hafi átt frumkvæði að neinni slíkri
könnun.
Heimildarmaður minn úr örygg-
isþjónustunni íslensku staðfesti
einungis að niðurstaðan (eins og ég
lýsti henni fyrir honum eftir
Róberti Trausta), hefði verið á þá
leið, sem öryggisþjónustan sjálf
hefði talið líklegasta undir lok
kalda stríðsins, þ.e. að STASI væri
ekki með neina erindreka á Íslandi
á sínum vegum. Þessi niðurstaða
hefði m.a. byggst á upplýsingum
utanlands frá. Slíkar upplýsingar
voru, eins og Róbert Trausti taldi
sig komast að í eftirgrennslan
sinni, sendar af þar til bærum aðil-
um í Þýskalandi til öryggisþjónust-
uyfirvalda í Atlantshafsbandalags-
ríkjum og hlutlausum
Evrópuríkjum, enda höfðu menn
þá enn ástæðu til að ætla að sov-
éska (og síðar rússneska) leyni-
þjónustan kynni að nota skrár, sem
hún hafði fengið um erindreka
STASI, til að ráða þá eða þvinga í
þjónustu sína.
Nú hef ég svarað eftir bestu
getu þeim spurningum, sem Össur
Skarphéðinsson varpaði fram í
grein sinni. Þegar ég skrifaði rit-
gerð mína í Þjóðmálum hafði ég
ekki hugsað mér að segja frá því,
hvað hrinti af stað sérstakri könn-
un þýsku öryggisþjónustunnar á
þessu máli að sögn heimildar-
manns míns, því að ég leit á það
sem trúnaðarmál utan við efnis-
rammann. Ég get þó aðeins bætt
því við, að rannsókn mín á STASI-
skjölum hjá umboðsmanni í Berlín
hneig að svipaðri niðurstöðu og
þeirri, sem Róbert Trausti skýrði
mér frá áður, en ég greindi honum
frá minni eigin: Ég hefði aðeins
fundið eitt dæmi um að Íslending-
ur í Austur-Þýskalandi hefði um
skeið gerst hjálparmaður STASI.
Hér hefði verið um að ræða ungan
og eflaust áhrifagjarnan mann,
sem Sósíalistaflokkurinn íslenski
hefði falið að halda uppi tengslum
við ,,bræðraflokk sinn“ austur-
þýskan fyrir hönd íslenskra náms-
manna, sem dvöldust eystra á
vegum flokksins. Leynilögreglan
hefði ætlað að nota þennan unga
mann til að ráða sér fasta erind-
reka á meðal Íslendinga í Þýska-
landi, en það ekki tekist, þótt eftir
því væri leitað. Umleitunum hefði
samkvæmt skýrslu STASI m.a.
verið hafnað, þar sem viðkomandi
maður hefði reynst algjörlega ófús
til njósna og m.a. vísað til þess að á
Íslandi hefði nýlega verið flett ofan
af tilraun sovétleyniþjónustunnar
til að ráða sér erindreka. Þar var
öryggisþjónustan íslenska einmitt
að verki, eins og sagt er frá í Þjóð-
málum.
Höfundur er sagnfræðingur
STASI og skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins
ÞÓR WHITEHEAD
UMRÆÐAN
Heilsugæsla
Í framhaldi af grein minni um bíl-slys og afleiðingar þeirra (birt í
Fréttablaðinu
10.10.2006) ber að að
nefna að í bráðalæknis-
þjónustu hefur notkun
hálskraga minnkað tals-
vert sem stöðluð með-
ferð eftir umferðarslys.
Það kom fram í grein-
inni að „flestir eru sam-
mála um notkun háls-
kraga“.
Í raun eru flestir
læknar og sjúkraþjálf-
arar í dag sammála um
það að nota ekki háls-
kraga eftir umferðarslys (nema í
þeim fáu alvarlegu tilfellum sem
brot á hálslið er til staðar).
Í mörgum rannsóknum hafa
verið borinn saman árangur mis-
munandi meðferða eftir umferðar-
slys, en meðferðirnar eru annars
vegar hefðbundin meðferð sem
felst í notkun hálskraga í nokkra
daga og hins vegar að nota engin
ekki hálskraga ásamt sjúkraþjálf-
un (léttar æfingar fyrir háls, herð-
ar og bak). Árangurinn er mældur
út frá því hversu lengi viðkomandi
er að ná sér af verkjum og einnig
hversu lengi viðkomandi er frá
vinnu sökum einkenna eftir slysið
(álagsbundinn verkur í
aftanverðum hálsi og
herðum og höfuðverk-
ur).
Niðurstöður benda til
þess að notkun háls-
kraga seinki lækninga-
ferlinu talsvert og þar
með batanum. Þannig er
besta meðferðin virkar
æfingar fyrir háls og
herðar ásamt því að
forðast of mikla hvíld
(liggjandi eða sitjandi).
Helstu rök fyrir þessu
eru að hálsvöðvar eru virkjaðir og
þannig tapast ekki vöðvastyrkur í
djúpu hálsvöðvunum sem veita
m.a. hálsliðum stöðugleika. Háls-
kragi veitir ytri stöðugleika en
með notkun hans slappast djúpu
hálsvöðvanir og þegar hætt er að
nota hálskragann versnar viðkom-
andi gjarnan í kjölfarið.
Höfundur er sjúkraliði
Hálskragar eftir
aftanákeyrslur?
GUÐJÓN KARL
TRAUSTASON
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
���������������������� ��� ������������ ���
��������������� ������� ����� ��� ���������
����������� �����
������ ������������ ���� �������� �� ����������
��� �������� ����� ����������� ��� �������� ������
��������������������������������
������ ������������ ������� ������� ��� ������
������������
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
����� ���������� �������
���������� ����� ������������ �����������
����������������
�������������� ������������ ����������
���������������
��������������� ������������ ����������
����������������
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður