Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 55

Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 55
MARKAÐURINN 18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR14 F Y R I R TÆ K I Húsgagnaverslunin Ikea flutti vöruhús sitt og verslun úr Holtagörðum í Reykjavík í Kauptún í Garðabæ á fimmtudag í síðustu viku. Langt er um liðið síðan rekstur Ikea á Íslandi rúmaðist í einni lítilli deild í verslun Hagkaupa. Hin nýja verslun Ikea, sem var sérstaklega byggð fyrir fyrirtæk- ið er á tveimur hæðum, og er hvorki meira né minna en 20.600 fermetrar og stærsta verslunarhúsnæði sem reist hefur verið á Íslandi. DEILD Í HAGKAUPUM Rekstur Ikea hér á landi hófst árið 1981. Þetta var tíunda landið sem Ikea opnaði verslun í en áður hafði fyrirtækið dreift úr sér um gjörvalla Skandinavíu og nokk- ur Evrópulönd til viðbótar. Fyrsta verslunin opnaði í litlu rými á efri hæð Hagkaupa í Skeifunni en fluttist nokkrum árum síðar undir Hús versl- unarinnar gegnt Kringlunni. Þetta þótti geysistórt rými en ekkert miðað við það þegar Ikea fór í Holtagarða árið 1994. Þar hafði stórmarkaðurinn Mikligarður verið áður til húsa í um 9.000 fermetrum. Þórarinn Ævarsson, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Ikea, sem tók við af Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni við flutn- inginn, segir breytinguna mikla. Ikea hafi eiginlega verið á undanþágu frá Ikea enda Holtagarðar sniðnir sem vöruhús. Þórarinn segir aðkomuna að Holtagörðum og skort á bílastæðum hafa verið helsta Akkilesarhæl Ikea. Í fyrra voru viðskiptavinirnir tæplega tvær milljónir talsins en búist er við að þeir verði þrjár milljónir á þessu ári. Þakkar hann það mikilli aukningu á bílastæðum við nýja húsið. Svipuðu máli gegnir um veltuna en hún var þrír milljarðar króna á síðasta ári. KLÆÐSKERASNIÐIÐ HÚS Nýja húsnæðið er gert eftir grunnteikn- ingu frá Ikea í Svíþjóð og þannig klæð- skerasaumað fyrir reksturinn. Af þessu leiðir að næstum allar verslanir Ikea úti í hinum stóra heimi eru eins og versl- unin í Kauptúni og verður upplifun við- skiptavinar Ikea því nokkurn veginn sú sama hér og í öðrum löndum, að sögn Þórarins. „Hugmyndin um Ikea er að leiða alla í hring. Fyrst er farið í gegnum húsgagna- deildina. Á leiðinni geta gestir sest niður, fengið sér að borða og haldið áfram að því loknu í gegnum smávörudeild og lager. Verslunarhúsnæðið er sambæri- legt að stærð og í öðrum löndum en lagerinn er mismunandi. Ef við ákveðum að stækka húsið þá verður það lagerinn sem stækkar,“ segir Þórarinn og bendir á að verslanirnar ytra séu allt upp undir 24.000 fermetrar. „Sýningarsvæðið í hús- inu er fullkomið fyrir okkur og það mun ekki breytast,“ segir hann. Umtalsverður munur er á IKEA í Holtagörðum og versluninni í Kauptúni í Garðabæ. Sýningarsvæðið er talsvert stærra. Þórarinn segir vöruúrval hafa aukist um fjórðung í nýju versluninni auk þess sem fleiri lausnir séu kynntar nú en áður. „Í Holtagörðum gátum við sýnt sjö eða átta mismunandi eldhús en nú getum við sýnt allt að 18 fullbúin eldhús,“ segir hann og leggur mikla áherslu á hversu gott nýja verslunarhúsnæðið sé. MATREITT Í ELDHÚSINU Holtagörðum sýndi Ikea mismunandi lausnir á einu heimili, fullbúnu rými með herbergjum, eldhúsi og innanstokksmun- um. „Hérna erum við með þrjú fullbúin heimili sem vel má ímynda sér að einhver búi í, sjónvarpið er í gangi og í fram- tíðinni er stefnt að því að einhver eldi í eldhúsunum,“ segir Þórarinn. Þá er veitingastaðurinn umtalsvert stærri en hann var í Holtagörðum. Fyrir flutningana gátu 80 gestir setið við borð í veitingarýminu en í Kauptúni eru sæti fyrir 250 manns, sem gerir þetta að stærsta veitingahúsi landsins. Engir réttir eru dýrari en 490 krónur auk þess sem stefnt er að því að bjóða léttvín til sölu á vægu verði. Vonast er til að af því verði um næstu helgi, að sögn Þórarins Ævarssonar, framkvæmdastjóra Ikea. ÚR VERSLUN IKEA Í nýrri verslun Ikea eru nokkrar íbúðir til sýnis. Hugmyndin er að fá kokk til að elda í einhverju þeirra fjölmörgu eldhúsa sem eru til sýnis í versluninni á næstunni. MARKAÐURINN/VILHELM Ikea er stærsta verslun landsins Þetta ár er svo sannarlega stórt hjá Ikea á Íslandi. Ikea hefur verið með rekstur hér á landi í aldarfjórðung og flutti í nýtt og geysistórt húsnæði í síðustu viku. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við störfum á fimmtudag. Þórarinn Ævarsson, framkvæmda- stjóri Ikea á Íslandi, fræddi Jón Aðalstein Bergsveinsson um nýju verslunina í Garðabæ. STÆRSTA VERSLUN LANDSINS Ikea flutti í stærsta verslunarhúsnæði landsins undir lok síðustu viku. Rýmið er tæplega þrefalt stærra, veitingastaðurinn sömuleiðis og bílastæðin þrefalt fleiri. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við rekstrinum. Viðskiptavinir Ikea ruglast ekki í ríminu þótt þeir fari utan landsteina því verslanir Ikea eru næstum eins í öllum löndum. MARKAÐURINN/VILHELM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.