Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 48
■■■■ { líf og heilsa} ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Actavis er eitt þeirra íslensku fyrir- tækja sem hvað mesta athygli hafa vakið í útlöndum, enda hefur það vaxið hratt síðustu ár og er með fremstu samheitalyfjafyrirtækjum í heimi, en félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á slíkum lyfjum. Höfuðstöðvarnar eru hér á landi, en starfsemin í um 30 lönd- um í fimm heimsálfum. Starfsmenn Actavis eru um tíu þúsund talsins. Fyrirtækið á sér hins vegar 50 ára sögu, en hún er rakin til þess tíma þegar forveri félagsins, Pharmaco var stofnað. Í upphafi var Pharmaco innkaupasamband en þegar árið 1960 var hafin framleiðsla á lyfjum hjá fyrirtækinu. Árið 1999 störfuðu hjá Pharm- aco um hundrað manns og þá eingöngu hér á landi á sviði inn- flutnings og dreifingar lyfja. Þá hafði undirbúningur að útrás Delta hf. staðið í nokkur ár sem flutti út fyrstu lyfin árið 1988 á Bretlands- markað. Höfðu menn þá áttað sig á að þar sem einkaleyfaumhverfið væri hagstætt hér á landi mætti vinna að þróun lyfja, þótt þau væru vernduð af einkaleyfum í flestum Evrópulöndum. Þannig sáu menn svo fram á að geta verið tilbúnir til að markaðssetja lyfin um leið og einkaleyfin féllu úr gildi erlendis. Pharmaco stofnaði lyfjafyrirtækið Delta árið 1981 ásamt hópi lyfja- fræðinga. Delta var svo að stærst- um hluta í eigu Pharmaco til ársins 1992 þegar Pharmaco seldi sinn hlut í fyrirtækinu. Delta var sameinað Pharmaco aftur árið 2002 og í maí 2004 var svo nýja nafnið, Actavis, kynnt. Nafnið er samsett úr „acta“ og „vis“ sem útleggjast á máli gullaldar- Rómverja „framkvæmd“ og „styrk- ur“. Á þeim tíma sagði Róbert Wess- mann, forstjóri fyrirtækisins, nýja nafnið lið í uppbyggingu félagsins á alþjóðlegum samheitalyfjamark- aði. Verður að teljast að uppbygg- ingin hafi gengið vel. Actavis framleiðir og selur lyf og lyfjahugvit bæði innanlands sem utan og markmið félagsins að vera með þeim fyrstu á markaðinn með samheitalyf þegar einkaleyfi renna út. Sáu sóknarfæri hér á landi Sérstakar aðstæður hér gerðu kleift að hægt var að hefja lyfjaþróun í samheitalyfja- geira fyrr en í öðrum Evrópulöndum. Á þessu byggir veldi Actavis sem nú er meðal fremstu samheitalyfjafyrirtækja í heimi. Vöxtur fyrirtækisins hefur vakið slíka athygli fjárfesta að stórir bankar leita eftir aðild að Kauphöll Íslands til að geta miðlað bréfum þess. Róbert Wessman í pontu á kynningarfundi Actavis fyrr á þessu ári. Actavis er eitt þeirra íslensku fyrirtækja sem hvað mesta athygli hafa vakið fyrir útrás sína á erlenda markaði. Áhuginn er svo mikill að stórir erlendir bankar hafa sóst eftir aðild að Kauphöll Íslands til að geta miðlað bréfum Actavis til viðskiptavina sinna. Paratabs er dæmi um samheitalyf sem Act- avis framleiðir en virka efnið í þeim töflum er verkjalyfið parasetamól.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.