Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 83
34 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Í Fréttablaðinu í gær var gagnrýnt að Roland Valur Eradze væri sagður meiddur í fréttatilkynningu HSÍ vegna vals á landsliði á sama tíma og hann spilaði alla leiki Stjörnunnar með ágætum árangri. Til að mynda lék hann með liðinu degi eftir að hann var sagður meiddur í fréttatilkynningu HSÍ. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, vildi koma því á framfæri að staðreyndin með Roland væri sú að hann æfði ekkert með liðinu heldur spilaði eingöngu. Þess utan væri hann illa haldinn eftir leiki og þar af leiðandi gæti hann ekki spilað tvo leiki í röð sem hentar illa fyrir landsliðið sem ávallt spilar þétt. Einar játaði jafnframt að tilkynningin hefði getað útskýrt málið betur en hún gerði. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru litlar sem engar líkur á því að Roland verði með landsliðinu á HM í janúar enda á hann langt í land með að ná fullum bata. Hann mun tæplega ná fullum bata fyrr en hann fer í aðgerð sem hann hefur ekki látið verða af. - hbg Roland Valur Eradze: Spilar en getur ekki æft ROLAND ERADZE Er ekki í góðu standi og spilar eingöngu en æfir ekkert. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR > Úrskurður væntanlegur í vikunni Samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ mun síðar í vikunni úrskurða um stöðu Hafþórs Ægis Vilhjálmssonar hjá ÍA. Hafþór er samningsbundinn ÍA til 2008 en skrifaði í síðasta mánuði undir viðauka við samning sinn sem sagði að hann yrði laus allra mála í lok október ef Guðjón Þórðarson tæki við þjálfun liðsins. Sú er raunin en ný rekstrarstjórn meistaraflokks ÍA telur viðaukann ekki löglegan og var því farið fram á úrskurð nefndarinnar um stöðu leikmannsins. Hafþór hefur verið til reynslu hjá sænska 1. deildarliðinu Norrköping undanfarið en er sagður vera klár með samning við Val fari hann ekki utan. FÓTBOLTI Íslenski landsliðsfyrirlið- inn Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að bíða lengi eftir kvöldinu í kvöld er hann mætir sínu gamla félagi Chelsea í meistaradeildinni. Eiður gerði garðinn frægan hjá félaginu í sex ár en var seldur síð- asta sumar til Barcelona fyrir einn milljarð íslenskra króna. Eiður og félagar í Barcelona komu til London í gær og Frétta- blaðið heyrði í Eiði rétt áður en hann fór á æfingu með liðinu. „Það verður skrítin tilfinning að koma aftur á Stamford Bridge og ég vona ég fari ekki í rangan búningsklefa. Ég var náttúrulega lengi hjá Chelsea og þekki nánast alla í kringum félagið og það verð- ur svolítið sérstakt að hitta allt þetta fólk á nýjan leik,“ sagði Eiður Smári en Chelsea hyggst afhenda Eiði verðlaun fyrir leik- inn sem þökk fyrir framlag hans í garð Chelsea. „Ég var að frétta af þessu rétt áðan og þetta er mikill heiður fyrir mig og þeir sýna mér mikla virðingu með þessari athöfn. Fyrir það er ég þakklátur.“ Bresk og spænsk blöð hafa verið uppfull af fréttum þess efnis að Eiður Smári muni veita Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, mik- ilvægar upplýsingar um Chelsea- liðið sem geti haft stór áhrif á útkomu leiksins. Ekki hafa öll blöð slegið þessu upp og því er spurn- ingin hvort þetta sé satt? Algjört kjaftæði í gulu pressunni „Satt best að segja er þetta algjört kjaftæði. Ég var spurður að þessu fyrir löngu og svaraði þá að ég myndi veita þá hjálp sem ég yrði beðinn um. Gula pressan á Englandi tók þetta mál síðan og blés það upp því þeir vilja búa til fyrirsagnir. Ég er þess fullviss að þjálfarateymi okkar veit nóg um Chelsea-liðið og þeir þurfa ekki mína hjálp. Það hefur ekkert verið leitað til mín ennþá en kannski spyr Rijkaard að einhverju fyrir leik,“ sagði Eiður sem er greini- lega hættur að kippa sér upp við misvísandi sögur í bresku press- unni. Leikir Chelsea og Barcelona síðustu tvö ár í meistaradeildinni hafa verið stórkostleg skemmtun og skemmtilegur rígur hefur myndast á milli liðanna. Ætli Jose Mourinho, stjóri Chelsea, undir- búi lið sitt öðruvísi fyrir leiki gegn Barcelona? „Nei, en undirbúningurinn fyrir leiki í meistaradeildinni er samt alltaf öðruvísi hjá Chelsea og það er oftast gist á hóteli nóttina fyrir leik en það er ekki gert fyrir deildarleiki.“ Hætti að tala við Terry og Lampard Eiður Smári eignaðist góða vini á tíma sínum hjá Chelsea og hann heldur enn góðu sambandi við ensku landsliðsmennina John Terry og Frank Lampard. Eiður segist lítið hafa verið í sambandi við þá fyrir leikinn. „Ég hringdi í þá báða um dag- inn og við ákváðum að vera ekkert að tala aftur saman fyrr en eftir leikinn,“ sagði Eiður Smári en Terry mun væntanlega þurfa að hafa gætur á félaga sínum í leikn- um en óttast Eiður að Terry muni taka hraustlega á honum. „Ég held að John Terry og varnarmenn Chelsea taki fast á öllum leik- mönnum. Sama hvort það er ég eða einhver annar. Þannig að ég veit hvað er í vændum,“ sagði Eiður en hann átti ekki von á því að Terry myndi stríða sér með ein- hverjum óþverrabrögðum. Hef ekkert að sanna „Ég er búinn að hugsa mikið um þennan leik og hvernig það verði að labba aftur inn á völlinn í búningi andstæðingsins. Þetta verður örugglega mjög skrítið en svona er fótboltinn. Hlutirnir eru fljótir að breytast og hverjum hefði dottið í hug fyrir ári síðan að ég myndi spila hér með Barcelona. Þetta verður spennandi og ég hlakka mikið til,“ sagði Eiður sem telur sig ekki hafa neitt að sanna í leiknum. „Ég tel mig hafa sannað mig nægilega á mínum árum hjá Chel- sea og ég tel mig ekki þurfa að gera neitt aukalega þó þetta sé mitt gamla félag. Ég skildi við Chelsea á góðum nótum og það er allt í góðu á milli mín og Mourinhos. Við berum mikla virðingu hvor fyrir öðrum,“ sagði Eiður sem hefur eðlilega mikið pælt í því hvað hann gerir ef hann skorar. „Ég hugsa að ég fagni bara létt ef ég skora. Annars er erfitt að segja og það veltur líka á því hvernig leikurinn spilast.“ Það hefur verið mikið álag á Eiði síðustu vikur og hann virkaði þreyttur á köflum gegn Svíum í Laugardal. „Það sat í manni smá þreyta eftir þessa landsleiki sem er eðlilegt þar sem ég hef ekki spilað mikið á tímabilinu og þurfti á þessum leikjum að halda til þess að komast í betri leikæfingu,“ sagði Eiður sem veit ekki hvort hann verði í byrjunarliðinu en fastlega má gera ráð fyrir því þar sem hann hefur verið í liðinu síðan Eto´o meddist. Eiður á ekki von á því að Barca leggist í vörn og reyni að halda stigi. „Það er bara einn stíll hjá Barcelona og það er sækja til sig- urs sama hvert við förum,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen. henry@frettabladid.is Þetta verður örugglega skrítið Eiður Smári Guðjohnsen snýr aftur á Stamford Bridge í kvöld með sínu nýja félagi Barcelona. Eiður Smári segir í viðtali við Fréttablaðið að það verði eflaust skrítin tilfinning að labba inn á völlinn í búningi and- stæðings Chelsea. Hann segir einnig að Barcelona muni leika til sigurs eins og alltaf. Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA Eiður hefur lítið verið í sambandi við Terry og Lamp- ard fyrir leikinn. Þeir verða aftur vinir eftir leikinn. GETTY IMAGES HLAKKAR MIKIÐ TIL Eiður Smári segist vera búinn að bíða spenntur eftir því að koma á Stamford Bridge með Barcelona en góðvinur hans John Terry lendir væntanlega í því að dekka Eið í leiknum FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES A-riðill: CHELSEA - BARCELONA SÝN WERDER BREMEN - LEVSKI SOFIA B-riðill: INTER - SPARTAK MOSKVA S. LISBON - B. MUNCHEN SÝN EXTRA 2 C-riðill: BORDEAUX - LIVERPOOL SÝN EXTRA GALATASARAY - PSV EINDHOVEN D-riðill: OLYMPIAKOS - AS ROMA VALENCIA - SHAKTAR DONETSK LEIKIR KVÖLDSINS Knattspyrnumaðurinn Jóhann Þórhallsson er á leið frá Grinda- vík eftir að hafa verið hjá liðinu í eitt ár. Grindavík féll í haust og það þrátt fyrir að Jóhann hafi verið meðal markahæstu manna deildarinnar. Vitað er að mörg lið hafa áhuga á Jóhanni og segir hann sjálfur við Fréttablaðið að hann sé í viðræðum við 2-3 lið. Þó sé aðeins eitt sem komi til greina í hans huga. „Ég get þó ekki greint frá því á þessari stundu hvaða lið það er sem um ræðir,“ sagði Jóhann. Samningur hans við Grindavík segir að honum er frjálst að fara frá Grindavík á lánssamningi í eitt ár og eftir það yrði hann laus allra mála í Grindavík. Honum hefur því verið leyft að ræða við önnur félög. Jóhann staðfesti einnig að Grindavík hefði hafnað tilboði frá Esbjerg, úrvalsdeildarliði í Danmörku, sem kom í Jóhann fyrr í sumar. „Ég veit reyndar ekki hvað tilboðið var hátt en mér skilst að það hafi verið þokkalegt. Og mér þykir svo sem ekki ólíklegt að þeir væru enn til í að fá mig fyrst þeir voru reiðubúnir að gera tilboð í mig.“ Hann segir að atvinnumennskan heilli og sé umboðsmað- ur hans, Arnór Guðjohnsen, að kanna hvaða möguleikar standi honum til boða. „Ég hef þó ekki mikinn áhuga á að fara til margra liða í reynslu. Ég vil frekar að lið taki ákvörðun um að fá mig til liðsins þó að það sé vitanlega alltaf hollt að skoða viðkomandi lið áður en maður skrifar undir eitthvað.“ Jóhann hefur komið víða við á sínum meistaraflokksferli sem hófst með Þór á Akureyri. Árið 1999 fór hann til KR en náði sér aldrei á strik í Vesturbænum og fór aftur í Þór tveimur árum síðar. Árið 2003 skipti hann yfir í KA en fór svo í Grindavík fyrir tímabilið sem fyrr segir. Hann hefur á þessum tíma þrívegis fallið úr efstu deild með jafn mörgum liðum en hefur engu að síður verið iðinn við markaskorun. Árið 2002 skoraði hann tíu mörk með Þór í efstu deild, rétt eins og hann gerði með Grindavík í sumar. JÓHANN ÞÓRHALLSSON: Á Í VIÐRÆÐUM VIÐ 2-3 LIÐ Í LANDSBANKADEILD KARLA Grindavík hafnaði tilboði frá Esbjerg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.