Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 52
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 Ú T T E K T ingssviðs hjá Sjóvá. „Við vorum að breyta húsnæðinu okkar til betri vegar þar sem allt er í anda leiðarljósanna. Okkur þótti eðlilegt að endurskoða í leiðinni hvernig myndlist við viljum hafa í kringum okkur. Í nýja hús- næðinu er mikið um opin rými, létt er yfir öllu og einfaldleikinn ríkir. Myndlist sendir mjög sterk skilaboð og okkur fannst þau klassísku verk sem við áttum ekki eiga við þá ímynd sem við vorum að skapa.“ Þannig var ákvörðun tekin um að stofna menningarsjóð sem hefur það að markmiði að fjárfesta í nýjum verkum sem styðja við einkunnarorð fyrirtækisins. Það fjármagn sem bundið er í eldri myndlist er notað til að fjármagna kaup á verkum eftir núlifandi listamenn og meiri fjármunir lagðir í verkefnið aukalega. Böðvar segir að með þessu móti sé einfald- lega verið að koma þessari eldri klassísku myndlist til þeirra sem hafa áhuga á henni. „Allt er þetta gert með fullri virðingu fyrir klassískri list. Þetta er bara spurningin um hvaða skilaboð við viljum senda. Við erum að skerpa frekar á léttleika og einfaldleika. Fyrir vörumerki skiptir svona lagað mjög miklu máli.“ TÍU MILLJÓNIR Í LISTAVERK Á ÁRINU Nú í ár hefur Sjóvá þegar fjárfest, bæði í formi þess að kaupa verk og styrkja verk- efni, fyrir um tíu milljónir króna í gegnum menningarsjóð sinn. Sjóvá hefur ekki bara verið að kaupa verk fyrir veggi eigin rýmis heldur var meðal annars einn af styrktarað- ilum sýningarinnar Eilands í Gróttu í sumar. „Okkur þótti þetta áhugaverð hugmynd enda varð þetta ein mest sótta sýning á landinu í sumar. Samningur okkar gekk út á að styðja verkefnið en í framhaldi af því höfum við verið að kaupa verk af listamönnunum sem tóku þátt í því.“ Böðvar segir félagið rétt að byrja og það stefni að því að styðja áfram við samtímalist. Tryggvi Páll Friðriksson, listmunasali og uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, segist þekkja þess dæmi frá útlöndum að fyrirtæki stundi það að kaupa verk eftir unga listamenn og selja þau aftur þegar þeir verða þekktari og verðmæti verkanna eykst. Þetta segir hann óskandi að myndi gerast hér enda myndi það hafa afar hvetjandi áhrif á kaup og sölu listaverka. Hann telur aðgerðir Sjóvár að sama skapi jákvæðar, ekki síst ef fleiri fyrirtæki tækju sér þetta til fyrirmyndar. Hann telur þó ólíklegt að eigendur stórra safna listaverka á borð við bankana hafi nokkuð þessu líkt á prjónunum. Þeir hafi, að því er hann best veit, heldur áhuga á að efla safn sitt jafnt af yngri sem eldri verkum. SALA HEYRIR TIL UNDANTEKN- INGA Listaverkasafn Landsbankans er hið stærsta í eigu og umsjón einkafyrirtækis á Íslandi. Upplýsingar þaðan styðja þessi orð Tryggva. Ásgeir Friðgeirsson, talsmað- ur Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbank- ans, segir það heyra til algerra undantekninga að bankinn selji verk í sinni eigu. „Það er skýr stefna Landsbankans að við- halda listaverkasafni sínu. Það þýðir hvort tveggja að keypt eru ný verk í safnið og eldri verkum haldið við. Með lista- verkasafni sínu vill bankinn halda til haga listasögu þjóðar- innar frá stofnun bankans.“ Landsbankinn á um 1.500 listaverk frá hinum ýmsu tíma- bilum. Ásgeir segir erfitt að leggja mat á verðmæti þeirra þar sem markaðsverð einstakra listaverka er breytilegt. Þá sé ekki talin ástæða til að meta og endurmeta einstaka listaverk frá ári til árs. Landsbankinn styður við samtímalistamenn með því annars vegar að kaupa verk þeirra og hins vegar með stuðningi við viðburði á þeirra vegum. Styður bankinn meðal annars við myndlistarhátíð- ina Sequences sem haldin er í Reykjavík um þessar mundir, listamannahús SÍM og hefur átt aðild að myndlistarverðlaun- um Myndstefs, auk margvíslegs stuðnings við einstaka listamenn og verkefni á þeirra vegum. Að sögn Ásgeirs hefur Landsbankinn aukið verulega stuðning sinn við samtímalist á síðustu árum og muni vafalaust auka hann frekar á næstu árum. Kaupþing á líka stórt safn listaverka eins og þekkt er. Þær upplýsingar feng- ust hjá Benedikt Sigurðssyni, blaða- fulltrúa Kaupþings, að engar áætlanir séu uppi um að selja eitt- hvað af þeim fjölda verka sem bankinn á. Bankinn álíti það eitt af hlutverkum sínum að styðja við íslenska menningu og undanfar- in ár hafi hann heldur verið að auka við kaup af verkum samtíma- listamanna. „Við eigum mikið af verkum eftir eldri listamenn en líka töluvert eftir nýja. Hve mikið liggur ekki fyrir eða hvert verðmætið er, annað en að þetta er töluvert safn.“ MIKIÐ FRAMBOÐ OG EFTIRSPURN Af svörum bankanna og áliti sérfræðinga að dæma hefur Sjóvá ekki komið nýrri bylgju af stað með sínum breyt- ingum. Flestum ber þó saman um að áhugi á íslenskri list hafi held- ur aukist undanfarin misseri. Tryggvi hjá Gallerí Fold segir að uppboðum hafi fjölg- að að undanförnu. Þau hafi verið fimm í ár en á venjulegu ári séu þau ekki nema fjögur. Segir hann það bæði koma til af því að í ár fékk gall- eríið óvenjumikið af góðum verkum inn til sölu. Uppboðin hafi öll gengið vel fyrir sig og því hafi eftirspurnin líka verið talsverð. Enginn vafi leikur því á að myndlistaráhugi á Íslandi er feikilega mikill og fer frekar vaxandi en minnkandi. Tryggvi Páll Friðriksson, listmunasali og uppboðs- haldari hjá Gallerí Fold, telur að íslenski myndlist- armarkaðurinn velti um einum milljarði króna á ári hverju. „Þá tek ég inn í sölu á uppboðum, á sýningum og ekki síst hjá listamönnunum persónulega,“ segir Tryggvi sem hefur um nokkra hríð reynt hið erfiða verk að meta hversu stór íslenski markað- urinn er í reynd. Ef að líkum lætur munu íslensk listaverk hafa skipt um hendur, á uppboðum hér heima og í útlöndum, fyrir allt að 77 milljónir króna, á sex vikna tímabili frá 15. september til 31. október næstkomandi. Gangi það eftir mun þetta vera ein mesta velta með íslensk verk á upp- boðum á svo stuttu tímabili sem elstu og reyndustu menn muna. Það sem er „íslenskt“ getur þó verið teygjanlegt hugtak. Sá fyrirvari skal því hafður á að inni í þess- um tölum er sala á verkum Ólafs Elíassonar, sem bæði Íslendingar og Danir vilja eigna sér. Síðastliðinn sunnudag stóð Gallerí Fold fyrir uppboði í Súlnasal Hótel Sögu þar sem 128 verk voru í boði. Meðal annars voru þarna verðmæt verk eftir Jón Stefánsson, Þorvald Skúlason, Svavar Guðnason, Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Nínu Tryggvadóttur og fleiri mæta listamenn. Nánast öll verkin á uppboðinu seldust og var heildarsöluand- virði þeirra samtals rúmar 22 milljónir króna. Að sögn Tryggva Páls Friðrikssonar, listmunasala og uppboðshald- ara hjá Gallerí Fold, var upp- boðið fjörugt og fjölmennt. Í boði var óvenjumikið magn reglulega góðra mynda og verðmæti þeirra þar af leið- andi meira en á uppboðum almennt hér á landi. GÓÐ SALA VÍÐAR EN Á ÍSLANDI Íslensk verk hafa selst vel víðar en hér á landi að undanförnu. Á uppboði hjá danska uppboðsfyrirtæk- inu Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn seldust nýverið myndir eftir íslenska listamenn fyrir á bilinu 12 til 13 milljónir íslenskra króna. Þar á meðal voru átta mynd- ir eftir Þorvald Skúlason og mun metverð hafa fengist fyrir verkin hans. Einnig fóru myndir eftir Svavar Guðnason, Ólaf Elíasson, Eggert Guðmundsson, Erró, Jón Helgason, auk annarra. Eitt verk eftir Jón Stefánsson, sem var selt í síðustu viku af uppboðsfyrirtækinu Lauritz, var slegið á fjórar milljónir króna. Talið er að þetta sé hæsta verð sem fengist hefur fyrir verk eftir Jón. Þann 31. október næst- komandi verður svo breska uppboðsfyrirtækið Christie’s með uppboð með verkum eftir norræna listamenn. Nokkuð verður þar af verkum eftir íslenska listamenn. Þar verða til sölu nokkur verk eftir Ólaf Elíasson, samtals metin á 133 til 197 þúsund pund, sem jafngildir 16 til 25 milljónum króna. Þar verður jafnframt til sölu eitt olíumálverk eftir Kjarval, verk eftir Louisu Matthíasdóttur og eitt eftir Nínu Tryggvadóttur. Gangi það uppboð vel fyrir sig og seljist öll verkin má samtals gera ráð fyrir að þau verk fari á bilinu 206 til 297 þús- und punda eða sem nemur um 26 til 38 milljónum króna. Upphæðirnar sem hér um ræðir eru án allra höfund- arréttargjalda og annarra þóknana sem leggjast ofan á söluverð listaverka. Þau gjöld eru misjöfn eftir löndum en gróflega má gera ráð fyrir að með því að leggja 25 prósent ofan á slegið virði sé talan nær lagi. Þar að auki ganga listaverk kaupum og sölum á hverjum degi, meðal annars á sýningum og á vinnustofum listamannanna sjálfra. Myndlist fyrir milljarð Samtímalist krafsar í köku meistaranna Sjóvá hefur ákveðið að selja öll sín klassísku listaverk og kaupa og styðja frekar við samtímalist. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að raun um að eigendur stórra listaverkasafna hyggjast ekki feta sömu slóð, heldur gera nýrri og eldri list jafnhátt undir höfði. MÁLVERK EFTIR GUNNLAUG BLÖNDAL MÁLVERK EFTIR LOUISU MATTHÍASDÓTTUR MÁLVERK EFTIR JÓN STEFÁNSSON V E R K E L D R I M E I S T A R A TRYGGVI PÁLL FRIÐRIKSSON HJÁ GALLERÍ FOLD Hann telur að íslenski myndlistarmarkaðurinn velti um milljarði á ári hverju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.