Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 18.10.2006, Qupperneq 14
 18. október 2006 MIÐVIKUDAGUR STJÓRNMÁL Ellert B. Schram hefur lýst yfir að hann gefi kost á sér í prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fer fram þann 11. nóvember næstkomandi. Ellert býður sig fram án þess að tiltaka eitthvert sérstakt númer í röðinni. Ellert er formaður 60 plús sem eru samtök eldri borgara innan Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður Íþróttasambands Íslands. Ellert sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á áttunda og níunda áratug seinustu aldar. - sdg Ellert B. Schram: Fram í prófkjör Samfylkingar ELLERT B. SCHRAMNYJUNG!með eplum og gulrótum – án viðbætts sykurs Nú hefur ný Létt ab-mjólk með eplum og gulrótum bæst í hópinn. Prófaðu þær allar! ! LETTU ������������������������������������������ ���������������������� ����������������������������������������� �������������������������������������������������������� ���������������������� ����������������������������������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������ ��������������������� ����������������������� ������� ��������������������������������������������������� BANDARÍKIN George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, undirritaði í gær lög um herdómstóla, sem eiga að fjalla um mál grunaðra hryðju- verkamanna sem hafðir eru í haldi í Guantanamo á Kúbu. Jafnframt er í lögunum heimild til þess að harkalegum yfirheyrsluaðferðum, sem jaðra við pyntingar, sé beitt á þessa fanga. „Frumvarpið sem ég undirrita í dag hjálpar til við að gera þetta land öruggara og sendir skýr skilaboð: Þessi þjóð er þolinmóð og siðprúð og sanngjörn og við munum aldrei láta undan hótunum gegn frelsi okkar,“ sagði Bush í gær. „Við erum jafn einörð í dag og við vorum að morgni 12. sept- ember árið 2001.“ Lögin eru sett vegna þess að Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í júní að þeirri niðurstöðu að fyrri dómstólar, sem skipaðir voru af Bush forseta án sérstakrar heim- ildar í lögum, og áttu að dæma í málum fanganna, brytu í bága við bæði bandarísk lög og alþjóðlega mannréttindasamninga. Með því að gefa dómstólunum lagalega stoð vonast Bush til þess að ekkert standi lengur í vegi fyrir því að fangarnir, í það minnsta sumir þeirra, verði dregnir fyrir dómstóla. Nýju lögin eru þó umdeild, ekki síst vegna þess að dómstólunum verður heimilt að nota vitnisburð sem fenginn er með umdeildum yfirheyrsluaðferðum. Einnig verð- ur heimilt að nota upplýsingar, sem fangarnir sjálfir fá ekki að sjá, til þess að sakfella þá. - gb BUSH UNDIRRITAR LÖGIN Forsetinn segir nýju hryðjuverkalögin hjálpa til við að gera Bandaríkin öruggari. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bush undirritar lög um sérstaka herdómstóla fyrir grunaða hryðjuverkamenn: Leyfi til að beita harkalegum aðferðum við yfirheyrslur VESTMANNAEYJAR Skipalyfta við höfnina í Vestmanna- eyjum gaf sig þegar hún var að lyfta netabát í slipp um klukkan fjögur í gær. Báturinn, sem heitir Gandí VE 171, var kominn langleiðina upp í slippinn þegar hluti lyftunnar gaf sig og hrundi niður þannig að skip- ið stóð uppi líkt og það hefði stungist í jörðina. Betur fór en á horfðist og urðu aðeins lítilsháttar meiðsli á fólki. Orsakir slyssins eru ekki ljósar en rannsókn málsins stendur yfir. Óttast er að tjón af völdum slyssins nemi milljónum. Lyftan er í eigu fyrirtækisins Skipalyftan ehf. Að sögn Tryggva Kristins Ólafssonar, lögreglu- fulltrúa í Vestmannaeyjum, voru sex manns staddir undir skipinu þegar lyftan gaf sig og fóru þeir allir í sjóinn. Einn þeirra slasaðist á baki og annar fékk skurð á höfuð. Hinir sluppu tiltölulega ómeiddir en allir voru kaldir eftir volkið. - sþs Stórtjón varð þegar skipalyfta gaf sig í Vestmannaeyjahöfn í gær: Skipið skagaði langt upp í loftið RÓM, AP Kona á þrítugsaldri fórst þegar jarðlest á fullri ferð ók aftan á kyrrstæða lest á lestar- stöð í miðborg Rómar í gær. Meira en hundrað manns að auki slösuðust, þar af tíu alvarlega. Áreksturinn varð klukkan níu í gærmorgun á neðanjarðarstöðinni Piazza Vittorio Emanuele II, sem er skammt frá aðallestarstöðinni í Róm. Björgunarmenn settu upp sjúkraskýli skammt frá lestarstöð- inni til þess að hlynna að hinum slösuðu. Sumir farþegar í lestinni, sem ekið var á hina kyrrstæðu, segja lestarstjórann hafa farið yfir á rauðu ljósi skömmu áður en áreksturinn varð. - gb Lestarslys í miðborg Rómar: Yfir hundrað manns slasaðir GANDÍ Orsakir slyssins eru ekki ljósar en rannsókn stendur yfir. Óttast er að tjónið nemi milljónum króna. MYND/ÓSKAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.