Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 18. október 2006 3 Vetur konungur er á næsta leiti. Ert þú tilbúin(n)? FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Töluverð aukning hefur átt sér stað á notkun etanbíla í Svíþjóð að undanförnu. Fjöldi slíkra bíla í eigu ríkisins hefur stóraukist. Umhverfisverndarsinnar horfa nú björtum augum til Svíþjóðar, þar sem etanól er talið vera metanól 21. aldarinnar. En hverjir eru kost- ir þess? Yfirleitt eru tvenns konar rök almennt höfð fyrir því að nota metan- eða etanbíla fram yfir bensín- eða díselbíla. Í fyrsta lagi vilja ríki spara sér kostnaðinn við innflutning á bensíni eða dísel með því að taka upp notkun metanóls og etanóls, sem er innlent elds- neyti. Í örðu lagi eru metan- og etan- bílar ekki nærri því eins mengandi og bensín- eða díselbílar, en sam- kvæmt tölum á heimasíðu Sorpu, www.sorpa.is, þarf til að mynda 38 bíla til að menga jafn mikið og aðeins einn bensínbíll. Etanól er hins vegar talið hafa ýmsa kosti fram yfir metanól, sem gæti aftur útskýrt vinsældir etan- bíla í Svíþjóð. Samkvæmt saman- burðarrannsóknum á þessu tvennu er metónal álitið eitraðra og orka þess rýrnar frekar við flutning og geymslu. Á móti kemur að metanól er talið vera hentugra til framleiðslu en etanól, miðað við þau tæki og tól sem við búum yfir í dag. Það er af sömu ástæðum talið vera ódýr- ara í framleiðslu heldur en etanól. Með hliðsjón af ofangreindum ástæðum er því erfitt að skera úr um hvort efnið er hentugra í notk- un. Auk þess er enn margt ólært um notkun etanóls sem bílaelds- neytis þrátt fyrir vinsældir í Sví- þjóð og víðar, en vonandi munu frekari rannsóknir leiða í ljós að þar er framtíðareldsneyti á ferð. -rve Etanbílar eftirsóttir hjá Svíum Frumgerð Saab Aero-X sem gengur fyrir etanóli var sýndur á bílasýningu í Sviss fyrr á þessu ári. Vetrarfærðin undirbúin Ár eftir ár kemur veturinn okkur á óvart. Í þetta skipti er ekki óvitlaust að vera viðbúinn. Fyrsta vetrardag ber upp á næsta laugardag. Frétt- ir af hálku eru farnar að berast ofan af heiðum og það er ískyggilega kalt á morgnana þegar við leggj- um af stað til vinnu. Hér eru nokkrir hlutir sem gott er að hafa á hreinu og í bílnum svo veturinn komi ekki aftan að manni. Skafa Skafa er öryggistæki. Ekki bíða með að finna hana aftur eftir sumarið. Það er mjög lítið spenn- andi að þurfa að leita, skafa og blóta því maður er allt of seinn í vinnuna á þriðjudagsmorgni. Vertu ekki of nísk(ur) þegar kemur að því að velja sköfu því þú ert svo miklu fljótari að skafa með réttum verkfærum og mun auð- veldara er að gera það vel. Rúðuþurrkur Drullan sem fylgir slabbinu og slitið sem fylgir frostinu fer ekki vel með rúðuþurrkur. Þær þarf að skipta um reglulega því rétt eins og með sköfuna er um öryggis- tæki að ræða. Strjúktu reglulega yfir þær með tjöruhreinsi, það lengir líftíma þeirra, og ekki hika við að skipta um séu þær lélegar. Dekk Tími sumardekkjanna er liðinn. Kominn er tími á naglana eða gróf- korna dekk til að hlífa malbikinu. Tjara og önnur drulla vilja setj- ast á dekkin yfir vetrar- mánuðina svo ágætt er að hreinsa þau með tjöru- hreinsi reglulega. Fyrir stærri bíla og þá sem fara um varhugaverða vegi eru keðjurnar enn lang- besta lausnin. Frostlögur Hann þarf að þola 26 gráðu frost og það þarf að vera nóg af honum. Hann á til að gufa upp á nokkrum árum svo það þarf að bæta reglulega á hann. Ekki gleyma frost- leginum í rúðupissinu heldur. Lásar Ef lás er frosinn er best að sprauta þar til gerðum lásaúða á hann. Þessir úðar fást á bensínstöðum og ekki er vitlaust að eiga eina slíka dós í þvottahúsinu. Endir engum kringumstæðum skaltu sprauta WD40 í lásinn. Sú smurning sem fyrir er skemmist og lásinn getur fest og skiptir hita- stigið þá engu máli. Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Pitstop – góð vara, frábært verð og framúrskarandi þjónusta Toppvara á frábæru verði Vörumerki sem framleidd eru af Michelin – þekktasta og virtasta dekkjaframleiðanda í heimi Hjallahrauni 4 Hfj. 565 2121☎Dugguvogi 10 568 2020☎ Gæðakaffi , nettengd tölva, tímarit og blöð ... ... fyrir þig á meðan þú bíður Mikið úrval af heilsárs- og vetrardekkjum undir allar tegundir bifreiða ... þjónusta í fyrirrúmi Við geru m þér TILBOÐ SÚPE R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.