Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 18. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8 F R É T T A S K Ý R I N G Áætlanir FL Group um sölu á hlutafé í Icelandair Group gengu eftir í vikunni þegar tilkynnt var um kaup fjárfesta á um 67 prósenta hlut í félaginu. Glitnir sölutryggir svo þann þriðjungshlut sem út af stendur og ætlar að bjóða almenningi og fagfjárfestum bréf til kaups á næstu vikum samfara skrán- ingu Icelandair í Kauphöll Íslands. Icelandair verður þar með þriðja nýja félagið sem skráir hlutabréf sín í Kauphöll á þessu ári en hin eru Avion Group og Exista. Heildarvirði Icelandair liggur í kringum 43 milljarða króna sem mun gera það að tólfta stærsta fyrirtækinu á markaði. Avion Group, sem er fjárfestingafélag í flutninga- og ferðaþjónustustarfsemi, er eina félagið sem svipar til þess rekstrar sem Icelandair fæst við. BREYTT ÁFORM Þar með hafa áætlanir stjórnenda FL Group gengið að öllu leyti upp og gott betur því ólíklegt má telja að þeir hafi horft fram á það að selja allan sinn hlut í Icelandair Group. Þegar félagið greindi frá því í febrú- ar að Icelandair yrði sett á markað á öðrum ársfjórðungi og hlutabréf seld til almennra fjárfesta voru markaðsaðstæður einkar ákjósanlegar eftir miklar hækkanir í desem- ber og janúar. Þegar áformin voru kynnt á blaðamannafundi benti ekkert til annars en að FL myndi halda utan um tauma Icelandair, enda ætlaði félagið sér að halda utan um kjöl- festuhlut – líklega 30-40 prósenta hlut. Hins vegar dró ský snögglega fyrir sólu þegar bankaskýrslur komu á færibandi, hlutabréf féllu og krónan var í lausu lofti. Hætt var við áformin og hlutabréfunum stungið undir kodda. Þegar rofa tók á nýjan leik á hlutabréfamarkaði upp úr miðjum ágúst var málið sett í gang á ný. GLITNIR MEÐ FJÓRA MILLJARÐA Í september hófu fjölmiðlar að greina frá viðræðum FL Group við fjárfestahópa ann- ars vegar undir forystu Ólafs Ólafssonar í Samskipum og Kaupþings og hins vegar Glitnis og fyrirtækja tengd S-hópnum. Líklegra þótti að Ólafur tæki Icelandair til sín og gekk Financial Times svo langt að full- yrða að félagið væri hans. En snurða hljóp skyndilega á þráðinn þegar semja átti um verð. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kers, var ósáttur við aðferðafræðina við söluna og verðlagningu og sleit viðræðum. Daginn eftir blés FL til blaðamannafundar þar sem kynnt var samkomulag félagsins við Glitnir um að bankinn sölutryggði 51 prósents hlutafjár í Icelandair eftir að áreiðanleikakönnun lyki. Bankinn gerði gott betur en það því hann hefur fundið kaupendur að 67 prósentum hlutafjár og sölutryggir þau 33 prósent sem eftir standa. Vitað var að bankinn hefði kaup- endur til taks, enda höfðu Morgunblaðið og Fréttablaðið bæði greint frá því að annar fjárfestahópanna sem ræddu við stjórnendur FL væri S-hópurinn í samvinnu við Glitni. Þar sem verkefnið verður stærra í hönd- um Glitnis er ljóst að þetta er stærsta fyr- irtækjaverkefni bankans frá upphafi. Miðað við fimm prósenta söluþóknun ætti bankinn að taka um fjóra milljarða króna í þóknunar- tekjur fyrir verkefnið sem færist til tekna á fjórða ársfjórðungi. GAMLIR FJENDUR Svo skemmtilega vill til að tveir stærstu fjárfestahóparnir sem koma að kaupun- um, Langflug sem Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar fer að stærstum hluta fyrir, og Naust, að stærstum hluta í eigu Benedikts Sveinssonar, geta rakið uppruna sinn til gömlu valdablokkanna í Smokkfiskinum og Kolkrabbanum. VÍS-hópn- um eða S-hópnum svokallaða, sem fer fyrir Langflugi, er stýrt af mönnum á borð við Axel Gíslasyni, Finni Ingólfssyni og Þórólfi Gíslasyni sem byggðu upp stórfyrirtæki úr gömlum sambandsfélögum. Þarna eru einnig Helgi S. Guðmundsson formaður og Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki og forsvarsmaður Hesteyris. Naust hins vegar, sem er eigandi Olíufélagsins og Bílanausts, er að stærstum hluta í eigu Benedikts sem var áður stjórn- arformaður Eimskipafélagsins og Sjóvár- Almennra. Einar Sveinsson, bróðir hans, er stjórnarformaður Glitnis og jafnframt í stjórn Olíufélagsins ESSO sem svo skemmtilega vill til að er einmitt gamalt sambandsfyrirtæki. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að gömlu brýnin í Kolkrabbanum og Smokkfiskinum tækju höndum saman. Svona breytast hlutirnir hratt í viðskiptalífinu. Með hlutafjárútboði til almennings og fag- fjárfesta myndast breiður hluthafahópur og jafnframt næst það markmið að koma félag- inu í almenningseign. Um 34 mánuðum eftir að Hannes Smárason komst til áhrifa í gömlu Flugleiðum verða þáttaskil í rekstri FL Group. FL hefur slitið samvistum við dótturfélagið sitt Icelandair Group og heldur til frekari fjárfestingaverk- efna með 35 milljarða í auknu handbæru fé, en nýir fjárfestar koma að frekari uppbygg- ingu mikilvægasta samgöngutækis þjóðar- innar. Það fer vel á því að nýir eigendur komi að Icelandair nú þegar félagið fagnar sjötíu ára afmæli sínu á næsta ári. Flugáætlun félagsins verður sú stærsta í sögu þess á næsta ári en framboði á flugsætum verður fjölgað um sautján prósent og bætast þrjár nýjar leiðir við leiðakerfið. Afgreitt á tveimur vikum Það tók Glitni ekki langan tíma að selja allt það magn sem félagið hafði sölutryggt og gott betur en það. FL gengur að öllu leyti út úr eigendahópi Icelandair sem hefði þótt ótrúleg staða þegar áform um sölu og skráningu Icelandair í kauphöll voru fyrst kynnt í febrúar. SIGURÐUR HELGASON OG HANNES SMÁRASON Tveir þeirra sem hvað mest áhrif hafa haft á rekstur Icelandair á síðustu árum. Sigurður sem forstjóri flugleiða um árabil og Hannes sem stjórnandi FL Group og stærsti eigandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.